Morgunblaðið - 17.07.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Það er meiri snjór núna á þessum slóðum en
hefur verið í mörg ár á þessum tíma,“ segir Páll
Rúnar Traustason á Akureyri, sem hefur litið til
með skála Ferðafélags Akureyrar í Laugafelli,
ofan Eyjafjarðar. Hann fór nýverið upp Eyja-
fjarðardal og myndin er tekin framan við Svín-
heiði þar sem snjóskaflar eru enn miklir. Páll
segir veginn ekki góðan fram dalinn en Vega-
gerðin hafi verið að vinna að viðgerðum.
Skaflar á leiðinni ekki meiri í mörg ár
Ljósmynd/Páll Rúnar Traustason
Leiðin upp í Laugafell ofan Eyjafjarðar enn torsótt en Vegagerðin vinnur að viðgerðum
Olíufélögin hækkuðu öll verð á bensínlítranum um þrjár
til fjórar krónur í gær. Olís, N1 og Shell riðu á vaðið í
gærmorgun og hækkuðu lítraverðið hjá sér um fjórar
krónur. Eftir hækkunina kostaði lítrinn á stöðvum þeirra
255,40 krónur.
ÓB, Atlantsolía og Orkan sigldu svo í kjölfarið síðar um
daginn með sambærilegri hækkun. Í gærkvöldi var bens-
ínlítrinn ódýrastur hjá Orkunni þar sem hann kostaði
254,60 krónur.
Þetta er önnur hækkunin á stuttum tíma en olíufélögin
hækkuðu verð á bensíni um fimm krónur í síðustu viku. Á
þriðjudag í síðustu viku kostaði lítrinn minnst 246,2 krón-
ur. Hann hefur því hækkað um átta og hálfa krónu á einni
viku. „Skeljungur hækkaði verð á bensíni og dísilolíu um
þrjár krónur í gær [í fyrradag] og um 3,5 krónur í síðustu
viku. Það kann að vera að Orkan hafi hækkað verðið ívið
meira eða um samtals sjö krónur. Á síðustu sjö dögum
hefur bensínverð hækkað um 50 dollara tonnið. Til við-
bótar fór gengið á bandaríkjadalnum upp en fór síðan
niður. Hækkunin í gær (í fyrradag) var því minni en ella,“
segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, en Orkan
er dótturfélags Skeljungs.
Að sögn Einars Arnar kostaði tonnið af bensíni um
1.050 bandaríkjadali eftir hækkunina í fyrradag en
hækkaði síðan um 15 dali til viðbótar í gær. Hann segir
hækkun um 50 dali á tonnið þýða hækkun um 5,90 krónur
á bensín- og dísillítranum. baldura@mbl.is
Bensínið hækkar áfram
Morgunblaðið/Kristinn
Á dælunni Öll olíufélögin hækkuðu verð á bensínlítr-
anum um þrjár til fjórar krónur í gær.
8 kr. hækkun á einni viku
vegna heimsmarkaðsverðs
Hæstiréttur stað-
festi í gær gæslu-
varðhalds-
úrskurði yfir
þremur af mönn-
unum fimm sem
handteknir voru í
síðustu viku í
tengslum við
rannsókn á því
þegar manni var
haldið nauðugum
á Stokkseyri og hann pyntaður.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fór fram á að forsendur úrskurðanna
yrðu ekki birtar sökum rannsóknar-
hagsmuna.
Stefán Logi Sívarsson er á meðal
þeirra sem gæsluvarðhald var stað-
fest yfir. Hann var handtekinn í lok
síðustu viku eftir umfangsmikla leit
lögreglu í höfuðborginni og á Suður-
landi. Leitað var í bílum og þyrla
Landhelgisgæslunnar aðstoðaði við
leitina.
Áður hafði verið staðfestur úr-
skurður yfir einum sakborninganna
en sá fimmti kærði ekki til Hæsta-
réttar. Mennirnir fimm verða því all-
ir áfram í haldi. aslaug@mbl.is
Verða
áfram í
varðhaldi
Hæstiréttur
Íslands.
Einn kærði ekki
til Hæstaréttar
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
Krókar fylgja öllum túpum
www.frances.is
Frí heimsending
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Félag forstöðumanna ríkisstofnana
(FFR) er ósátt við úrskurð kjara-
ráðs vegna kröfu félagsins um leið-
réttingu launa afturvirkt, eftir
tímabundna frystingu í kjölfar efna-
hagshrunsins haustið 2008.
Að sögn Magnúsar Guðmunds-
sonar, formanns FFR, varðar málið
alls um 180 forstöðumenn í ríkis-
kerfinu.
Laun þeirra hafi verið fryst 2009
vegna bágrar stöðu ríkissjóðs með
bráðabirgðalögum sem giltu til
2011.
Þrátt fyrir að lögin hafi runnið út
í desember 2011 vilji kjararáð að
þessi hópur njóti ekki almennra
launahækkana á vinnumarkaði fyrr
en frá og með október 2012. Þarna
muni 10 mánuðum sem félagsmenn
vilji leiðrétta með afturvirkum
hækkunum.
Hefur hópurinn fengið laun
þrisvar hækkuð frá og með október
2012, í takt við síðustu kjarasamn-
inga ríkisstarfsmanna sem gerðir
voru í kjölfar þess að kjarasamn-
ingar á almennum vinnumarkaði
voru undirritaðir í maí 2011.
Vilja líka vísitöluleiðréttingu
Til viðbótar vilji FFR að laun fé-
lagsmanna verði leiðrétt m.t.t. vísi-
töluþróunar frá og með 2009 þannig
að launin leiðréttist um sem nemur
10-20% eftir því hver á í hlut. Er
krafan sú að fyrirhugaðar launa-
hækkanir í haust komi ofan á þessa
leiðréttingu, þannig að þessi hópur
sitji við sama borð og aðrir rík-
isstarfsmenn sem ekki hafi búið við
frystingu launa.
Undir þennan hóp heyra for-
stöðumenn nokkurra félaga í eigu
ríkisins sem færðir voru undir kjar-
aráð árið 2010. Hefur sá hópur
einnig fengið launahækkanir í þrem
lotum síðan síðustu kjarasamningar
voru gerðir. Er þar um að ræða til
dæmis bankastjóra Landsbankans,
seðlabankastjóra, forstjóra RARIK,
forstjóra FME, forstjóra Orkubús
Vestfjarða og forstjóra Samkeppn-
iseftirlitsins.
Hafa hækkanir þeirra verið að
jafnaði um 4% í hverri lotu en það
fer nærri hækkunum á almennum
vinnumarkaði sem voru samtals ríf-
lega 11% með hækkunum í júní
2011 og 1. febrúar 2012 og 2013.
Heyrði áður undir kjararáð
Þessi hópur var færður undir
kjararáð eftir efnahagshrunið og
lækkuðu laun hans samhliða því.
Að sögn Kolbeins H. Stefánsson-
ar, sem situr í kjararáði, ákvarðaði
ráðið í lok júní sl. breytingar á
kjörum 23 forstjóra hlutafélaga í
eigu ríkisins. Breytingarnar eru
afturvirkar og ná til 1. ágúst 2012,
nema hvað laun bankastjóra Lands-
bankans breytast frá og með 1. júní
2012. Laun umrædds bankastjóra
hækka mest eða um 14,1% og fær
hann nú 934.637 krónur í grunnlaun
og greiddar 65 einingar fyrir álag
og yfirvinnu, 6.918 kr. á einingu,
eða alls 1.384.307 í heildarlaun.
Greiðslur á hverja einingu hjá
þessum hópi voru hækkaðar í 6.918
kr. til jafns við aðra forstöðumenn
ríkisstofnana en einingafjöldi end-
urskoðaður á móti. Var forstjór-
unum 23 gefið tækifæri til að gera
grein fyrir breytingum á álagi og
skiluðu sumir inn greinargerðum.
Áhrif breytinganna eru mismun-
andi eftir einstaklingum og hafa
jafnvel óveruleg áhrif á heildarlaun.
Launin leiðréttist um 10-20%
Félag forstöðumanna ríkisstofnana krefst 10-20% hækkunar launa í takt við vísitöluþróun frá 2009
Tímabilið hefst frá og með frystingu launa eftir hrunið Fyrirhugaðar launahækkanir leggist ofan á
Morgunblaðið/Kristinn