Morgunblaðið - 19.07.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2013
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Framkvæmdir við Franska spítalann
og læknishúsið á Fáskrúðsfirði eru
vel á áætlun, bæði hvað fjármagn
varðar og tíma, segir Þorsteinn
Bergsson, framkvæmdastjóri Minja-
verndar. Mannvirkin hafa verið í
endurbyggingu frá árinu 2009 í sam-
starfi Minjaverndar, Fjarðabyggðar
og Alliance Francaise á Íslandi. Ætl-
unin er að opna þarna Foss-hótel,
veitingahús og safn á næsta ári. Þá
verða liðin 100 ár frá því að spítalinn
var tekinn í notkun. Hann var einn
þriggja spítala sem byggðir voru hér
á landi af franska ríkinu, til að þjóna
fjölda franskra fiskimanna sem
stunduðu veiðar við landið.
Húsið var tekið niður og flutt út á
Hafnarnes árið 1939, þegar veiðum
Frakka á Íslandsmiðum var lokið.
Fram til 1964 var húsið notað undir
íbúðir og skóla, en stóð autt eftir það.
Árið 2006 var byrjað að hugleiða
endurbyggingu spítalans og þremur
árum síðar var byggingin flutt á sinn
stað, neðan læknishússins, sem einn-
ig var ákveðið að endurgera. Er sú
vinna skemmst á veg komin en búið
að lyfta húsinu með steyptri jarð-
hæð.
Að sögn Þorsteins er fram-
kvæmdum við spítalahúsið að mestu
lokið að utan en að innan hafa mál-
arar hafið störf. Húsið verður einmitt
til sýnis fyrir gesti og gangandi á
Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði
eftir rúma viku.
Neðanjarðargöng voru gerð milli
bygginganna en í læknishúsinu verð-
ur móttaka hótelsins auk safns um
dvöl frönsku sjómannanna á Fá-
skrúðsfirði. Í sjálfri spítalabygging-
unni verða 26 fullbúin herbergi í
fyrsta áfanga, sem jafnast á við fjög-
urra stjörnu hótel.
„Við höfum fengið þær upplýs-
ingar frá Foss-hóteli að það sé búið
að fullbóka þessi húsakynni næsta
sumar þannig að það er kominn
þrýstingur á okkur að klára verkið
fyrir þann tíma. Það mun takast,“
segir Þorsteinn að endingu.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Framkvæmdir Franski spítalinn hefur tekið á sig mynd að utan þó að ýmis frágangur sé eftir.
Franski spítalinn á áætl-
un og fullbókaður að ári
Verður til sýnis á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði
Malbikun Læknishúsið gegnt spítalanum verður móttaka fyrirhugaðs hót-
els en malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir, enda stutt í Franska daga.
Lækjargötu og Vesturgötu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
rjóminn er kominn
í nýjar umbúðir
Rjóminn er einstakur. Hann á sér fastan
sess í matargerð okkar íslendinga.
Þú finnur girnilegar og sumarlegar
uppskriftir með rjóma á gottimatinn.is
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga