Morgunblaðið - 26.08.2013, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2013
✝
Faðir minn, sambýlismaður og bróðir,
FRIÐGEIR STEFÁNSSON,
Guðrúnargötu 2,
lést mánudaginn 19. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 28. ágúst kl. 13.00.
Halldór Friðgeirsson,
Marilene Ramos Pinto,
Anna, Guðrún og Borghildur Stefánsdætur.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
RUT MAGNÚSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 28. ágúst kl.13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
Níls Ólafsson,
Lísbet Nílsdóttir, Ragnar Gíslason,
Ólafur Nílsson,
Linda Rut Ragnarsdóttir, Eyþór Björnsson,
Gísli Einar Ragnarsson,
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
og langömmubörn.
✝ Jón Valur Sam-úelsson fæddist
21. ágúst 1933 í
Reykjavík. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 18.
ágúst 2013.
Foreldrar hans
voru Samúel Krist-
jánsson, f. 8. októ-
ber 1899 í Kumlá í
Grunnavík-
urhreppi, N-
Ísafjarðarsýslu, d. 26. júlí 1965
og Margrét Hannesdóttir, f. 15.
júlí 1904 að Núpstað, V-
Skaftafellssýslu, d. 3. ágúst
2011. Systkini hans eru: Hanna
Þóranna, f. 22. mars 1932, d. 21.
febrúar 2012, og b) Guðmundur,
f. 5. júlí 1988, unnusta hans er
Sara Mjöll. 2) Gunnar Kristinn, f.
29. júlí 1961. Sambýliskona hans
var Bára Baldursdóttir sem lést
1996. Maki hans er Ragna Rós
Bjarkadóttir. Börn Gunnars og
Báru eru Karl Róbert, f. 5. des.
1985, Einar Valur, f. 27. júlí 1989
og Baldur Jónas, f. 26. júní 1994.
Börn Rögnu eru Elín og Bjarki
Þórður. 3) Stefán Ingi, f. 11. nóv.
1967. Maki hans er Valdís Valdi-
marsdóttir. Börn þeirra eru
Arnór Freyr, f. 7. mars 1991,
unnusta hans er Guðrún, og Jak-
ob Ingi, f. 22. maí 1997.
Jón Valur starfaði fyrst um
sinn sem sjómaður og svo sem
vörubifreiðastjóri til ársins 2000
þegar hann lét af störfum 67
ára.
Útför Jóns Vals verður gerð
frá Digraneskirkju í dag, 26.
ágúst 2013, og hefst athöfnin kl.
13.
apríl 2010, Elsa, f.
23. nóvember 1935,
Auður, f. 20. desem-
ber 1941, d. 15. jan-
úar 1993, Margrét,
f. 11. mars 1944.
Jón Valur kvænt-
ist, 20. ágúst 1961,
Lovísu Gunn-
arsdóttur, f. í
Stykkishólmi 22.
ágúst 1939. Börn
Vals og Lovísu eru:
1) Samúel Kristján, f. 2. júlí
1959. Maki hans er Bryndís Guð-
mundsdóttir. Börn þeirra eru a)
Margrét, f. 6. mars 1986, unnusti
hennar er Bryngeir Arnar, þau
eiga Samúel Bryngeir, f. 24.
Elsku pabbi. Það er svo sárt
að þú sért farinn. Þú fórst svo
snögglega. Áttræðisafmælið þitt
var í undirbúningi og ætluðum
við öll að eiga góðar stundir með
þér á þeim tímamótum.
Þú varst svo góður pabbi og
duglegur að fara með okkur t.d.
á skauta á tjörninni og skíði í Ár-
túnsbrekku og ferðalög á sumr-
in, hér á árum áður.
Mikið ósköp hlýtur að vanta
flotta, færa og duglega vörubíl-
stjóra í himnaríki, þar sem varla
eru tveir mánuðir síðan tengda-
pabbi lést, var hann einnig vöru-
bílstjóri.
Þú áttir ættir að rekja austur
að Núpsstað og hafðir sterkar
taugar þangað. Þar var móðir
þín fædd og þú varst þar oft sem
ungur strákur. Því var ráðist í að
reisa sumarhús á landi Núps-
staðar. Þar var byrjað 1988 og
keyrðir þú vörubílafarmana
helgi eftir helgi og allaf hefur þú
verið að dytta að einu og öðru
þar öll sumrin. Þú beiðst eftir
vorinu til að fara austur, enda er
þessi staður paradís á jörðu, með
sínar miklu andstæður, há og
mikil fjöll og sandauðnir. Þú
fórst upp á fjöllin eins og ekkert
væri, að okkur yngra fólkinu
fannst nóg um. Oft fórst þú með
barnabörnin að veiða þarna. Það
fannst þeim nú skemmtilegt og
svo tók amman við og gerði að
aflanum, sem stundum var eld-
aður. Einu sinni sem oftar var
farið að veiða og náðir þú áli,
settir hann í poka og á bakaleið-
inni hlóst þú mikið og vissi ég
ekki hvað var í gangi. Þegar
komið var í bústaðinn þá sátu
stelpurnar þínar, semsagt konan
þín og tengdadætur við eldhús-
borðið, og hvolfdir þú álinum úr
pokanum í skál sem var á borð-
inu en það olli miklu fjaðrafoki
hjá dömunum sem stukku í allar
áttir með öskrum og látum en þú
hlóst manna mest og sagðir allt-
af að þær hefðu hangið í rjáfr-
unum af hræðslu.
Hlátur þinn var svo smitandi
og innilegur.
Þú sást spaugilegar hliðar á
mörgu og fannst gaman að glett-
ast og hlóst innilega. Það var svo
gaman að sjá hvernig þú og
Samúel, litla langafabarnið þitt
náðu vel saman, eins og á milli
ykkar væri sterkur strengur,
alltaf vildi hann sitja í fangi þínu
og leiða þig um allt.
Öll barnabörnin sóttu mikið í
þig og þú varst svo duglegur að
dútla með þeim, hvort sem það
var í bílskúrnum þar sem meist-
arastykkin urðu til úr spýtu og
nagla og svo í sumarbústaðnum.
Þú varst líka duglegur að fara á
fótbolta- eða handboltaleiki hjá
þeim og varst áhugasamur um
þeirra hagi. Þú fylgdist líka vel
með leikjum Liverpool og Vals,
enda varstu Valsari frá því að þú
varst ungur.
Þú varst mikill útivistarmað-
ur, gekkst á Esjuna mjög oft og
síðustu árin um hverfið þitt.
Einnig fannst þér gaman að fara
erlendis og fóruð þið hjónin í
margar ferðir til ýmissa staða og
oft komst þú óþekkjanlegur
heim þar sem þú varst svo
brúnn, um leið og þú steigst úr
flugvélinni. Síðasta ferð þín aust-
ur í bústaðinn var um verslunar-
mannahelgina síðustu og þar var
mikið gert, skipt um hluta palls-
ins og þú boraðir og negldir alla
daga. Það sem þú varst ánægður
með það og dáðist lengi að
breytingunum.
Elsku pabbi, þín verður sárt
saknað. Ég veit að vel hefur ver-
ið tekið á móti þér á nýjum stað.
Bið að heilsa.
Samúel.
Faðir minn er látinn. Það er
mjög sárt. Mig langar að þakka
þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig og allt sem við gerðum sam-
an. Þegar ég leitaði til þín kom
ég alltaf að opnum dyrum og
fékk leiðbeiningar hjá þér, Þegar
ég var 6 ára til 10 ára aldurs þá
var ég oft með þér í vörubílnum
sem þú keyrðir hjá BYKO og þar
var ég aðstoðarmaður þinn og
fékk alltaf laun fyrir það, launin
voru kók og snúður og 100 kall.
Þetta þótti mér alveg hrikalega
gaman og við spjölluðum um allt
milli himins og jarðar í þessum
ferðum. Við vorum miklir vinir
og gerðum margt saman, fórum
á skíði í bláfjöll, Skálafell og
Hveradali. Einnig man ég alltaf
eftir skautaferðum okkar á
tjörnina. Við fórum alltaf í sund
á laugardagsmorgnum og kom-
um við hjá ömmu á Langholts-
veginum í kakó og kökur. Þó þú
hafir unnið mikið þá áttir þú allt-
af tíma til að sinna fjölskyldunni
og aldrei vantaði þig á hliðarlín-
una þegar ég spilaði fótbolta
með Val. Ferðirnar í sumarbú-
staðinn á seinni árum voru frá-
bærar og fjallgöngurnar með þér
þar voru oft á tíðum glæfralegar
en alltaf talaðir þú í mig kjark og
ég hélt áfram eftir þína leiðsögn,
þú þekktir þetta allt enda búinn
að fara þetta oft. Ekki lést þú
þig vanta þegar synir mínir voru
að keppa í handbolta, ég sótti þig
í Furugrundina 1-2 í viku og
mættum við í íþróttahúsin. Ég
var svolítið æstur á leikjum
stundum og þá komst þú til
hjálpar og er ein setning mér
mjög kær „róum okkur nú að-
eins drengurinn minn“ og það
virkaði vel.
Það er erfitt að sjá á eftir þér
og mikið á ég eftir að sakna þín
elsku pabbi. Þín verður sárt
saknað en sá sterki persónuleiki
og gleðigjafi sem þú hafðir að
geyma mun aldrei gleymast og
mun vera í hjörtum okkar sem
kynntumst þér að eilífu.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þinn sonur,
Stefán Ingi Valsson.
Sagt er að það taki bara eina
mínútu að kynnast einstakri
manneskju, klukkutíma að
kunna að meta hana, einn dag að
elska hana en það taki allt lífið
að gleyma henni.
Það var erfitt símtalið sem við
fengum á sunnudaginn 18. ágúst
sl. Pabbi er að deyja. Valur var
yndislegur maður, góður pabbi,
afi og tengdapabbi. Hann var
hagsýnn og úrræðagóður. Alltaf
var hann tilbúinn til að hjálpa ef
við vorum að framkvæma eitt-
hvað, t.d. eins og þegar við
stækkuðum kaffistofuna í hest-
húsinu, hann var með okkur
marga daga að græja og gera.
Honum fannst nú ekki leiðinlegt
að ræða við Gunna um vörubíl-
inn og vinnuna í Byko, enda
keyrði hann fyrir Byko í mörg
ár. Gunni sagði við mig um dag-
inn: „Skrýtið Ragna, hann pabbi
fór með mig í bílskúrinn og vildi
láta mig taka vörubíladótið sem
hann á, en ég vildi það ekki því
nógur er tíminn.“ Þótt fólk verði
fullorðið og maður sjálfur orðinn
fullorðinn finnst manni alltaf að
allir verði alltaf til staðar, svo er
ekki og það er það sem er svo
sárt. Við fjölskyldan héldum upp
á afmælið hans á miðvikudaginn,
þá hefði hann orðið 80 ára, við
vitum að þú varst með okkur þá,
þú varst alltaf svo ánægður þeg-
ar öll fjölskyldan var samankom-
in. Á Þorláksmessu í skötunni,
hádegisboðið á jóladag og svo
gamlárskvöld, þá varstu með öll-
um þínum. Við munum sakna þín
elsku pabbi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku pabbi, afi og tengda-
pabbi, þakka þér fyrir allt, sér-
staklega fyrir að vera þú.
Gunnar, Ragna Rós og
fjölskylda.
Lífið er svo óútreiknanlegt.
Við vitum aldrei hvað bíður okk-
ar handan hornsins né hvað
morgundagurinn ber í skauti
sér. Þú sem áttir að vera mun
lengur hjá okkur.
Þú varst alltaf svo hress og
kátur og stutt í hláturinn þinn
sem fékk okkur alltaf til að hlæja
með þér. Við fengum oft að fara í
bílskúrinn þinn að smíða þegar
við vorum yngri en þar urðu
mörg listaverkin til. Og margar
voru veiðiferðirnar í sumarbú-
staðnum fyrir austan. Þú hafðir
alltaf tíma fyrir okkur. Þér
fannst líka gaman að ganga á
fjöll en þau voru ófá skiptin sem
við fylgdumst með þér fyrir
austan þegar þú varst kominn
upp í fjallið fyrir ofan bústaðinn
og dáðumst að þér. Mikið var
langafastrákurinn þinn líka glað-
ur að sjá þig en hann hljóp bros-
andi til þín í hvert sinn sem hann
hitti þig.
Við munum sakna þín, afi. Við
þökkum þér fyrir þann tíma sem
við fengum með þér og varðveit-
um minningarnar í hjörtum okk-
ar. Vonandi er nóg af fjöllum til
að klífa og bílskúr til að dunda
sér í á nýja staðnum.
Af lifandi gleði var lund þín hlaðin,
svo loftið í kringum þig hló,
en þegar síðast á banabeði
brosið á vörum þér dó,
þá sóttu skuggar að sálu minni
og sviptu hana gleði og ró.
En seinna skildi ég: Hér áttirðu ekki
að eiga langa töf.
Frá drottni allsherjar ómaði kallið
yfir hin miklu höf:
Hann þurfti bros þín sem birtugjafa
bak við dauða og gröf.
(Grétar Ó. Fells)
Þín barnabörn,
Margrét og Guðmundur.
Elsku afi.
Ég get ekki lýst því hversu
sárt það er að þurfa að kveðja
þig.
Ég mun aldrei gleyma því
þegar bankað var á dyrnar í
Furugrund, þá opnaðist alltaf
hurðin en enginn stóð í dyra-
gættinni og það fyrsta sem ég
gerði var að kíkja á bak við hurð-
ina og þar stóðst þú alltaf alveg
skellihlæjandi og tókst á móti
mér.
Hjá þér og ömmu í Furu-
grundinni mátti gera nánast allt
sem ekki mátti gera hjá mömmu
og pabba, ég man þegar ég fór
með þér í bílskúrinn þar sem ég
mátti nota vasahníf sem var ekki
í boði heima. Það var eitt skipti
þar sem ég skar mig og þú vand-
aðir þig svo að gera um sárið svo
að það færi sem minnst fyrir því
þegar pabbi kom að sækja mig.
Takk fyrir allar sumarbú-
staðaferðirnar þar sem við smíð-
uðum fullt af bátum, veiddum
fisk, gerðum minkagildrur og
fórum saman upp á fjall.
Takk elsku afi fyrir að hafa
komið á nánast alla handbolta-
leiki hjá mér, það var alltaf jafn
gott að kíkja upp í stúku og sjá
þar hvíta kollinn þinn þar sem
þú sast með fjölskyldunni.
Þegar ég lít til baka á tímann
sem við áttum saman þá var
hann fullkominn, þú varst mér
mikil fyrirmynd og orð fá því
ekki lýst hversu mikið ég mun
sakna þín, hluti af þér mun alltaf
búa í mér.
Bless elsku afi og takk fyrir
öll árin sem við áttum saman.
Arnór Freyr Stefánsson.
Elsku afi.
Það er ekki nokkur spurning
að þegar ég eyddi tíma með þér
þá voru það alltaf gleðistundir og
mikið hlegið.
Takk fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman í bílskúrn-
um í Kópavoginum þar sem þú
varst alltaf tilbúinn að vera með
mér sama hvað ég var að gera,
saga spýtu eða pissa í niðurfallið.
Takk fyrir allar sumarbú-
staðaferðirnar, ég mun aldrei
gleyma þeirri ferð þegar ég datt
ofan í pollinn fyrir framan bú-
staðinn og þú hoppaðir á eftir
mér til þess að ná mér upp úr,
svo hlógum við að þessu í mörg
ár á eftir.
Bless elsku afi og takk fyrir
allar þær minningar sem við
bjuggum til saman.
Jakob Ingi Stefánsson.
Elsku Valur.
Mig langar að minnast þín
með innilegu þakklæti og þökk
fyrir öll árin.
Þú varst svo indæll, glettinn
og gamansamur og höfum við
hlegið mikið saman. Það er svo
gott að rifja upp allar gleðistund-
irnar núna og yljar manni um
hjartarætur á þessum sorgar-
stundum.
Mikið hefur verið brallað í
gegnum tíðina, farnar margar
veiðiferðir, tjaldferðir, bústaða-
ferðir og utanlandsferðir.
Þér fannst ekkert mál að hafa
mig sem oftar inni á ykkar heim-
ili og þakka ég þér fyrir það.
Efst í mínum huga er stórt þakk-
læti.
Þín verður sárt saknað.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug Þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Ingibjörg (Inga) mágkona.
Jón Valur
Samúelsson
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu stuðning og vináttu vegna andláts
ástkærs sambýlismanns, föður, sonar,
bróður og tengdasonar,
PÁLS STEINDÓRS STEINDÓRSSONAR
flugstjóra, Pílutúni 2, Akureyri.
Sérstakar þakkir fá ættingjar, vinir,
samstarfsmenn, Bílaklúbbur Akureyrar,
vélhjólamenn og slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn fyrir þá virðingu sem
þeir sýndu honum við útför hans.
Sigríður María Hammer og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS HLÍF FRIÐGEIRSDÓTTIR,
Húnabraut 14, Blönduósi,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 6. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jónas Bjarnason,
Páll Kristberg Pálsson, Ása Sóley Karlsdóttir,
Bjarni Jónasson, Guðný Elín Ólafsdóttir,
Friðgeir Jónasson, Andrea Mueller,
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda
inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka
og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar