Morgunblaðið - 26.08.2013, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2013
Smáauglýsingar 569 1100
Garðar
Garðsláttuvélar
Garðverkfæri
Garðtjarnir
Austurrísk gæðavara
Orkuver ehf . sími 534 3435
www.orkuver.is
LH 2800 greinakurlari
tekur 42 mm greinar
50 l safnkassi
Austurrísk gæðavara
Orkuver ehf . sími 534 3435
www.orkuver.is
Gisting
Hótel Sandafell, Þingeyri
auglýsir
Gisting og matur. Erum með 2ja
herb. orlofsíbúð til leigu.
Verið velkomin.
Hótel Sandafell Sími 456 1600.
Snyrting
Spænskar gæðasnyrtivörur, fram-
leiddar úr náttúrulegum hráefnum
og eru fyrir alla daglega umhirðu
húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta
allri fjölskyldunni. Sjá nánar í
netversluninni: www.babaria.is
Geymslur
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499 3070.
E-mail solbakki.311@gmail.com
Sumarhús
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Eignarlóðir
Til sölu í landi Kílhrauns á Skeiðum,
50 mínútna akstur frá Reykjavík.
Landið er einkar hentugt til skógrækt-
ar, falleg fjallasýn.
Uppl. Hlynur í s. 824 3040.
Festu þér þinn sælureit í dag
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
NÝKOMIÐ
Teg. 11007 - vel fylltur í 70-85B, 75-
85C á kr. 5.800, buxur við á
kr. 1.995.
Teg. 370033 - heldur vel, gott snið í
stærðum 75-95C,D á kr. 5.800,
buxur við á kr. 1.995.
Teg. 13010 - mjúkur, haldgóður í
75-95C, 80-100D á kr. 5.800,
buxur við á kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
Lokað á laugardögum í sumar.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinurTeg. 8031: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 13.500.
Teg. 406: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 12.885.
Teg. 407: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 36–42.
Verð: 12.600.
Teg. 6926: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36–42. Verð: 15.685.
Teg. 6930: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 37–42. Verð: 15.685.
Teg. 404: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36–42. Verð: 12.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Lokað laugardaga í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Frú Sigurlaug
Sundbolir Tankini
Bikini Náttföt
Undirföt Sloppar
Inniskór Undirkjólar
Aðhaldsföt
Mjóddin s. 774-7377
Bátar
Rafmagns utanborðs-
mótorar
á góðu verði
Orkuver ehf . sími 534 3435
www.orkuver.is
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
✝ Andri Smára-son fæddist á
Húsavík 21. októ-
ber 1989. Hann
lést á Akureyri 13.
ágúst 2013.
Foreldrar hans
eru Smári Kára-
son, f. 30.9. 1951
og Stefanía Huld
Gylfadóttir, f. 12.3.
1958. Systkini hans
eru: 1) Friðþór, f.
30.9. 1982, í sam-
búð með Þórunni Soffíu Þórð-
ardóttur, f. 17.9. 1985, börn
þeirra eru Guðbjörg Sóley, f.
1.3. 2010 og Stefanía Sveinlaug,
f. 24.6. 2012; 2) Sveinbjörg, f.
13.12. 1985, í sambúð með Val-
garði Óla Ómarssyni, f. 28.10.
1985, börn þeirra eru Emilía
Ólöf, f. 29.10. 2009 og Rósanna
Björg, f. 11.1.
2013; 3) Sóley, f.
12.11. 1988, í sam-
búð með Steinari
Karli Ísleifssyni, f.
2.9. 1988, börn
þeirra eru Snorri
Karl, f. 6.9. 2011
og Ragnheiður
Lilja, f. 8.7. 2013;
4) Valur, f. 16.11.
1991.
Andri ólst upp í
Breiðuvík á Tjör-
nesi og gekk í Hafralækj-
arskóla í Aðaldal og síðar í
Verkmenntaskólann á Akureyri
þaðan sem hann útskrifaðist
með sveinspróf í rafvirkjun.
Útför Andra fer fram frá
Glerárkirkju í dag, 26. ágúst
2013, og hefst athöfnin kl.
13.30.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Mér er þungt um, ég finn til og
finnst ég vanmáttug. Þú ert far-
inn frá okkur og núna líður þér
örugglega betur. Þú varst hluti af
okkur. Þú varst sá sem gafst mér
tattú. Þú varst fallegur. Þú varst
sá sem komst í mat þegar þú
varst svangur. Þú varst dugleg-
ur. Þú varst þú. Þér gleymum við
aldrei.
Farðu í friði, elsku vinur.
Við sendum fjölskyldu þinni
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Stefanía, Jón, Sara Ósk
og Stefán Páll.
Við erum gestir á óræðri strönd um
stund,
staldrið er mislangt og erindið varla
ljóst.
Nú ertu farinn en sporin þín ómáð enn
og efst er í minni hvernig til ferðar þú
bjóst.
Og þó að þú hafir staldrað við alltof
stutt
er styrksins og fleira að minnast af þín-
um ferðum
sem hrintir úr vör svo ungur og ert nú á
brott
en orkaðir meiru en flestir við hinir
gerðum.
Fjölmargt var brallað og brasað við fyrr
og síð,
af byssunum skotið en hugurinn reik-
aði víða.
Bílar og tæki og tónlist heilluðu þig,
tölvur og leikir og svo varstu laginn að
smíða.
Orðagjálfur sem engin merking var léð
var ekki þinn stíll og húmor á lífsgöng-
unni.
Hismið frá kjarnanum gastu svo fljótur
greint
og gullkorn þín birtust vinum á fésbók-
inni.
Hver sem úr fjörunni horfir til hafs eftir
þér
hann á sér mynd sem ekki fellur á
blettur
af dreng – eða manni – sem dögunum
gaf nokkurn lit
og dugði til hlutar sem engum er vilj-
andi réttur.
Ég kvíði því ekki viðtökum þínum hjá
þeim
sem þér munu heilsa í fjöru við land-
töku nýja.
– Handan við grámann, um skýjarof
sólin skín,
því skammt er til hafnar, í loftinu sum-
arhlýja.
(Sig. Kr.)
Það var léttskýjað og sólbjart á
Tjörnesinu morguninn sem þú
kvaddir og andvarinn var eins
mildur og hann gat verið. Í
Breiðuvík þar sem Bakið á aðra
hönd, Brattinn á hina með Torf-
una norðuraf og ásar til suðurs
byrgja fjallasýn heima við bæinn
og ströndin veit til norðurs er
sýnin til hafsins opin með þeim
margbreytileika sem því fylgir,
hvort sem er á kyrri og bjartri
nótt um sumarsólstöður þegar
sólin má ekki vera að því að setj-
ast eða þegar brimið verður til-
komumest og brýtur á skerjunum
úti á víkinni. Þetta umhverfi hef-
ur vafalaust haft sín áhrif á þig.
Spor þeirra sem staldra til-
tölulega stutt við á þessu ferða-
lagi okkar eru þeim sem næst
standa oft jafneftirminnileg og
spor þeirra sem eru manni mun
lengur samferða. Að fá lífshættu-
legan sjúkdóm á unglingsaldri er
óhugsandi að geti verið nokkrum
auðvelt en þegar maður lítur til
baka yfir þessi ár síðan það gerð-
ist, verður manni hugsað til þess
hversu mikinn styrk þú áttir þeg-
ar á reyndi. Ekki má þó gleyma
fjölskyldunni sem var þér ómet-
anlegur styrkur allan þennan
tíma. Þar er að öðrum ólöstuðum
óhætt að nefna móður þína, Stef-
aníu, sem alltaf var til staðar og
fylgdi þér hvert sem var, hvenær
sem var, til Svíþjóðar til bein-
mergsskipta og í óteljandi ferð-
um til Reykjavíkur til fundar við
lækna, svo fátt eitt sé upp talið.
Þú ávannst þér virðingu okk-
ar, ekki hvað síst fyrir að hafa
tekist að lifa með reisn þessi ár
þrátt fyrir veikindi sem enginn
vildi þurfa að kynnast.
Margt fleira mætti nefna en
hér látum við staðar numið og
þökkum þér að lokum fyrir ágæt
kynni og frændsemi í gegnum ár-
in.
Við sendum ykkur, Stefanía,
Smári, Friðþór, Sveinbjörg, Sól-
ey, Valur og öllum öðrum að-
standendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kristján og Anna María
(Mæja), Svava og Sigurður
(Siggi) og fjölskyldur.
Andri
Smárason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar