Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013 HEIMURINN BRETLAND LONDON Frá 2011 til 2012 fæddust fleiri börn í Bretlandi en síðan árið 1972. Menn þar í landi tala um barnabombu. 813.200 bresk börn fæddust þetta árið sem er langmest í allri Evrópu. Fjöldi landsmanna óx um 419.900 og eru Bretar núna 63,7 milljónir manna. Þeir eru þriðja fjölmenn- asta þjóð Evrópu á eftir Frökkum og Þjóðverjum. En Frakkar eru 65,4 milljónir og Þjóðverjar eru 80,4 milljónir. JEMEN SANAA Bandaríkin lokuðu sendiráðum sínum í Jemen um síðustu helgi og margar Evrópuþjóðir hvöttu landa sína til að yfirgefa landið í vikunni vegna yfirvofandi hryðjuverkaárásar. Á miðvikudag sagði stjórn landsins frá því að sér hefði tekist að koma í veg fyrir stóra og vel skipulagða árás hryðjuverkamanna á nokkrar borgir í landinu. Það eykur líkur á því að Bandaríkin opni aftur sendiráð sitt í landinu á næstu dögum. TYRKLAND ANKARA Í vikunni var fyrrverandi æðsti herfor- ingi landsins dæmdur í fangelsi fyrir að hafa ætlað að steypa stjórn landsins. Ríkisstjórn Erdogans þykir hafa hert tökin á borgaralegum öflum í landinu og nýtur flokkur hans mikils stuðnings, sérstaklega í aust- urhluta landsins. En borgaralega og verald- lega sinnaðir Tyrkir herðast í andstöðunni við flokk hans. TANZANÍA ZANZIBAR Tvær 18 ára breskar stúlkur sem unnu sem sjálfboðalið- ar á Zanzibar urðu fyrir sýruárás ókunnugra manna á fimmtudag. Zanzibar er sögufræg eyja, hálf- fullvalda ríki innan Tanzaníu, og mjög vinsæl á meðal Vesturlanda- búa. 99% heimamanna eru múslimar sem hafa tekið áhuga Vesturlandabúanna fagnandi. Alvarlegir menningarárekstrar eru mjög sjaldgæfir á eyjunni. Gjarnan er talað um að hver ekinn kílómetri kosti samfélagið 17 krónur en hver hjólaður kílómetri spari samfélaginu 30 krónur. Því er kannski ekki furða að norðlægar þjóðir sem sam- kvæmt mýtunni eru spar- samar og séðar, eins og Hollendingar og Danir, séu fremstar í hjól- reiðamálum. Í stór- borgum einsog New York og London er mikil vakning hvað hjólreiðar varð- ar og hjólastígar lagðir eins hratt og mögulegt er og átak í framboði á leiguhjólum er í gangi í báðum þess- um borgum. Það eru fleiri hjól en fólk íHollandi. Í umfjöllun BBCum málið var bent á að fram að seinni heimsstyrjöldinni var hjólið algjörlega ráðandi í Hollandi en á sjötta og sjöunda áratugnum varð sprenging þar, eins og annars staðar í Evrópu, í bílaeign lands- manna. En hjólið og bíllinn áttu nokkur erfið ár í sambýli. Þannig olli sókn bílsins til landsins því að það varð gríðarleg aukning umferð- arslysa í Hollandi. Árið 1971 dóu yfir 3.000 manns á götunum og þar af 450 börn. Þetta varð til þess að mikil her- ferð var sett í gang undir merkjum slagorðsins: Stop de Kindermoord! eða Hættið barnamorðum! Aðgengi hjólreiðamanna varð mun betra í framhaldinu og fólk fór að hætta sér meir út á göturnar á ný, þrátt fyrir að hafa aðeins fótknúinn fararskjóta. Það gaf síð- an hjólinu nokkurn vind í seglin þegar olíukrísan varð árið 1973. Menn sem annars vildu ekki hjólið urðu að velja það. Í framhaldinu fjárfesti ríkisstjórnin verulega mik- ið í góðum stígum fyrir hjólreiða- fólk. Hjólreiðastígar eru víðast hvar ekki við bílagötur og menn geta hjólað þær nokkuð öruggir um líf sitt. Þessar góður aðstæður í Hollandi spila stærstu rulluna í því að í Hollandi eru 31,2% allra ferða farnar á hjólum en næstu þjóðir á eftir þeim eru Ungverjar og Danir, en um 19% allra ferða þeirra eru farnar á hjóli. Kerfið hjálpar til Ríkisstjórn Hollands hefur alltaf hvatt til hjólreiða enda landið flatt og heppilegt til þess. Í öllum skól- um landsins eru skyldukúrsar fyrir krakka um viðhald á hjólum. Ekki ósvipað og þegar íslenska ríkisstjórnin gerði sund- kennslu að skyldu í skólum landsins. Allir hollensku skól- arnir hafa stæði fyrir hjól og í sumum skólunum hjóla allt að 90% nemendanna í skólann. Borgir Hollands eru misjafn- lega vel undir þetta búnar en Gröningen ku vera drauma- borg hjólreiðamannsins en á aðallestarstöðinni þar eru stæði fyrir 10.000 hjól. Enda trónir Gröningen á toppnum yfir mestu hjólaborgir heims en 37% allra ferða eru farnar á hjóli þar á bæ. Af átta mestu hjólaborgum heims eru fimm þeirra hollenskar. Það eru auk Gröningen Zwolle (36%), Veenen- daal (32%), Enschede (31%) og Amsterdam (28%). Auk þessara borga eru á topp átta listanum þýska borgin Münster (36%) og svo tvær danskar borgir, Kaupmanna- höfn (32%) og Óðinsvé (26%). En Ísland? Á Íslandi hefur verið mikil aukning í hjólreiðum. Hjólreiðar í Reykjavík jukust um 1.000% á milli áranna 2001 og 2011. Samkvæmt tölum frá því í október 2011 fara Reykvík- ingar í 4,6% tilvika í ferðir sínar á hjóli en árið 2001 var það talið vera í 0,004% tilvika. Í Kaupmannahöfn er hlutfallið 32%. Í samtali við borgarfulltrúann Gísla Martein Baldursson segir hann að það ótrú- lega sé að 4,6% hlutfall ferða Reyk- víkinga í dag á hjóli sé svipað og var í Kaupmannahöfn árið 1972. En hann telur að það myndi auka mjög hjólreiðanotkun Reykvíkinga ef líf hjólreiðamanna yrði gert auð- veldara eins og er í Hollandi og Danmörku. Gísli Marteinn lagði fram í febrúar 2010 hjólaáætlun Reykjavíkur fyrir borgarstjórn sem var samþykkt einróma. Samkvæmt áætluninni á að tífalda lengd hjóla- stíga fram að 2020. Hann bendir einnig á að 21% Vesturbæinga og 19% þeirra sem búa í Hlíðunum segjast hjóla allan ársins hring í dag. Reynsla Hollendinga Það áhugaverða er að það eru fá slys á hjólreiðamönnum í Hollandi þrátt fyrir hinn mikla fjölda manns sem hjólar. Samt er ekki algengt að sjá Hollendinga hjóla með hjálma. Eða eins og segir í grein BBC að ef hjólreiðamenn sjást með hjálma í Hollandi er mjög líklegt að um túrista sé að ræða. Það er hugað að öryggi hjólreiðamanna strax í skipulagningu hverfa og umferðarmála og það er mikilvægast. Hjólreiðar vinsælastar í Hollandi MÝTAN ER SÚ AÐ HJÓLREIÐAR SÉU VINSÆLLI Í HLÝRRI LÖNDUM Á MEÐAN STAÐREYNDIN ER SÚ AÐ MESTU HJÓLABORGIR HEIMS ERU Á NORÐURSLÓÐUM. BBC VELTI ÞVÍ FYRIR SÉR Í VIKUNNI HVERS VEGNA Í ÓSKÖPUNUM HJÓLIÐ VARÐ SVONA VINSÆLT Í HOLLANDI. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is HVERS VEGNA HJÓL? Í tilefni af því að um helgina fagna hommar, lesbíur sem og aðrir landsmenn Hinsegin dögum í Reykjavík er hér mynd af hjólreiðamönnum að fagna Hinsegin dögum í Víetnam. AFP *Mig langar að hjóla!Freddie Mercury söngvari rokksveitarinnar Queen í laginu Bicycle Race.AlþjóðamálBÖRKUR GUNNARSSON borkur@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.