Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013 Einhverju sinni kom ég í Reykholt með nor-rænan hóp að vitja fornrar söguslóðar.Séra Geir Waage tók á móti hópnum og tal- aði hann til okkar í nokkurn tíma. Aðkomumenn hlustuðu dolfallnir. Það var að vísu ekki svo að spurt væri hvort þetta væri sonur Snorra, sem þarna mæltist svo vel, en hitt veit ég að hinum norrænu aðkomumönnum þóttu þeir vera komnir harla nærri Söguöldinni við að hlýða á séra Geir virkja menningararfinn. Einhver hafði á orði að hann væri á borð við Geysi og Gullfoss. Á und- anförnum árum hefur víða tekist vel til við að koma menningararfleifðinni á framfæri. Ég nefni sem dæmi Hávamálin á heimstungunum í snjallri framsetningu og síðan fjölmörg söfn víða um land sem opna okkur og heimsækjendum okkar sýn inn í menningu þjóðarinnar. Hið frábæra Vest- urfarasafn á Hofsósi er dæmi um menningarlegt orkubú. Og nú er komin tillaga um nýtt safn, sem hlýtur að vera íhugunar virði: Safn um gerð fornritanna með þungamiðju í okkar merkasta handriti, Flat- eyjarbók. Þessi hugmynd var sett fram í grein sem birtist í Morgunblaðinu nýlega eftir þau Karl Guðmund Friðriksson og Sigríði P. Friðriksdóttur. Grein- arhöfundar vilja að bókin verði kennd við Víði- dalstungu í Húnavatnssýslu og nefnd Víðidals- tungubók enda rituð undir handarjaðri Jóns Hákonarsonar, bónda í Víðidalstungu og síðan lengi varðveitt þar. Í Flatey hafi bókin hins vegar stoppað stutt við áður en hún var flutt til Kaup- mannahafnar. Ekki er nóg með að þau Karl Guðmundur og Sigríður telji rétt að kenna Flateyjarbók við Víði- dalstungu í stað Flateyjar. Þau leggja til að fyrr- nefnt safn verði reist á tungunni á milli Víðidalsár og Fitjár og að þar verði sögu Víðidalstungu/ Flateyjar-bókar gerð skil en sérstök áhersla yrði lögð á að sýna verkun skinna og bókband. Um þennan verklega þátt handritsgerðar fjallar Sigurður Nordal m.a. í formálsorðum sín- um að útgáfu Flateyjarbókar árið 1944. Hann seg- ir að í bókina hafi farið 113 kálfskinn og hafi það verið vandasamt og seinlegt „að verka skinnin með nauðsynlegri varúð, skera þau til og fága, svo að þau yrðu hæf til bókfells“. Allt hafi þetta verið „íslensk heimilisvinna, og úr innlendum efnum var líka blekið og jurtalitir til skreytingar“. Þá hafi „verið tímafrekt að lýsa bókina, þ.e. prýða hana með hinum mislitu upphafsstöfum, hugsa til- breytnina í gerð þeirra og draga þá“. Safnið stendur lifandi fyrir hugskotssjónum! Mér þykir þetta vera góð hugmynd. Ég skal játa að ekki er ég laus við hlutdrægni í afstöðu til staðarvalsins því fyrir rúmlega hálfri öld var ég sumarstrákur í Víðudalstungu og á þaðan góðar minningar. En hvað sem líður hlutdrægni sveita- drengs úr Tungu þá tala röksemdirnar sínu máli og myndin sem Sigurður Nordal dregur upp í fyrrgreindum formála sínum, bæði af bókagerð- inni og sögu handritsins, gerir það að verkum að ég get varla beðið að komast í safnið í Víðidalnum til að fræðast um Víðidalstungubók í því héraði sem hún varð til fyrir rúmum sex hundruð árum. Víðidalstungubók *Ég skal játa að ekki er églaus við hlutdrægni í af-stöðu til staðarvalsins. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Það er löngu landsþekkt hve upptekinn Páll Óskar Hjálm- týsson er. Popparinn síkáti til- kynnti í vikunni á Fésbók að hann væri loksins kominn með sér- lega aðstoðar- manneskju í anda ráðherranna, en Ingibjörg Örlygs- dóttir, gjarnan nefnd Inga á Nasa, kemur til með að halda utan bókunarmál kappans héðan í frá. Raunar var í nógu að snúast á Fésbókarsíðu Palla þessa vikuna. Hann birti mynd sem sýndi slá- andi andstæður Gay Pride í Reykjavík og Moskvu, en 3.594 Fésbókaraðdáendur hans deildu henni áfram og í ofanálag eign- aðist hann sinn 29.000 Fésbók- araðdáanda – geri aðrir betur. Í vikunni var tilkynnt um komu trúboðans Franklins Graham til landsins, en hann er meðal ann- ars er þekktur fyrir afar vafasöm ummæli í garð samkynhneigðra. Graham er ætlað að ávarpa Ís- lendinga í Laugardalshöllinni á viðburði sem kallaður er Hátíð vonar. Líkt og gefur að skilja stuðaði tilkynningin landann, ekki síst vegna tímasetningar hennar, en Hinsegin dagar í Reykjavík voru settir á fimmtudaginn var. Í kjölfar tilkynningarinnar fór af stað herferð gegn viðburðinum á Fésbók og hvöttu ýmsir Fésbók- arnotendur fólk til að tryggja sér miða á viðburðinn en skrópa til að tryggja tóman sal. Á meðal þeirra sem breiddu út boð- skap þeirrar her- ferðar var rit- stýran Þóra Tómasdóttir. Einnig voru léttvægari málefni á dagskrá á Fésbók í vikunni, en leikkonan Saga Garðarsdóttir sá ástæðu til að senda frá sér eft- irfarandi tilkynn- ingu á sinni síðu: „Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég var ekki lítill grís í fyrra lífi.“ Hvergi er þó greint frá forsögu tilkynn- ingarinnar. AF NETINU Unnur Bisgaard (áður Mark- úsdóttir) hefur undanfarin fjögur ár leitað að málverki eftir Jóhannes Kjarval sem áður var í eigu föður hennar. Málverkið fékk faðir henn- ar að gjöf árið 1963 fyrir störf sín sem skipstjóri, en hann seldi Gall- eríi Borg málverkið árið 1999. Mál- verkið hefur mikið tilfinningagildi fyrir Unni en hún vonast eftir því að geta keypt málverkið ef núver- andi eigandi finnst. „Pabbi minn dó árið 2009 og ég hef frá þeim tíma leitað að málverkinu. Ég hef spurst fyrir um verkið á mörgum gall- eríum og fylgst með uppboðum en það hefur engan árangur borið. Ég ákvað því að leita til fjölmiðla og vonandi finnst verkið,“ segir Unnur en faðir hennar var mjög hrifinn af málverkinu og sá sífellt nýja hluti í því. „Þetta málverk horfði ég á í mörg ár og pabbi var mjög ánægð- ur með það. Hann fann oft eitthvað nýtt í myndinni eins og tröllkonur og annað því um líkt en verkið sýn- ir m.a. íslenskt hraun eins og marg- ar af myndum Kjarvals,“ segir hún. Þrátt fyrir að hafa verið búsett í Danmörku frá árinu 1964 hefur Unnur sterkar taugar til Íslands, en hún telur málverkið mikilvægan hlekk í því að viðhalda tengslum barna- og barnabarna við Ísland. „Þetta er nokkuð sem ég vona að börnin mín geti erft eftir mig og svo áfram niður ættina. Ég hef mikinn áhuga á listaverkum og á mikið af verkum bæði frá Íslandi og Færeyjum. Þetta er hins vegar einstakt verk og mér finnst mik- ilvægt að málverkið haldist innan fjölskyldunnar þar sem ég vil að Ís- land verði mikilvægur hluti af arfi mínum. Þetta verk hefur mikið minjagildi fyrir mig,“ segir Unnur, en aðspurð hvort hún sé vongóð um að verkið finnist segir hún: „Ég gefst allavega ekki upp. Ég hefði getað sett auglýsingu á netið eða eitthvað slíkt en ég taldi rétt að leita til fjölmiðla fyrst. Vonandi les einhver þetta í Morgunblaðinu sem annaðhvort er eigandi verksins eða þekkir einhvern sem veit hvar verkið er að finna,“ segir Unnur en hún biður þá sem vita um afdrif verksins að senda sér tölvupóst á netfangið: unnurbisgaard@hotmail.com. Málverkið sýnir m.a. íslenskt hraun. Unnur segist vongóð um að verkið finnist. Vill kaupa málverk eftir Kjarval sem faðir hennar átti Vettvangur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.