Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013 Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Yamaha píanó og flyglar með og án “silent” búnaðar. Áratuga góð reynsla gerir Yamaha að augljósum kosti þegar vanda skal valið. Veldu gæði, veldu með tilliti til sauðfjárræktar. Rann- sóknirnar voru fjölbreyttar og með- al annars var unnið við mælingar á túnum, kannað hvaða fræ væri best að nota og hvaða útbreiðsluaðferðir og áburður hentuðu best. Það var Jonathan Motzfeldt sem átti hug- myndina að þessum rannsóknum. Eins og svo margir vissi ég lítið sem ekkert um Grænland áður en ég kom þangað. Stundum er sagt að þeir sem koma til Grænlands fái Grænlandsveikina. Það átti við um mig. Jonathan sagði að ég hefði verið bitin af vitlausum Grænlend- ingi. Í þessari fimm ára sumarvinnu eignaðist ég vini og bönd mín við Grænland styrktust. Árið 1990 var mér boðið í vikuferð til Grænlands á 75 ára afmælishátíð Búnaðarsam- taka Suður-Grænlands. Þar var Jo- nathan sem ég hafði reyndar hitt áður en þá var hann giftur danskri konu með tvö börn. Nú var hann laus og liðugur og jú, ég var liðug. Þarna gerðist eitthvað.“ Annað hvort eða ... Var þetta mikil ást? ,,Heldur betur! Ég var 39 ára, í góðri vinnu og átti fjölskyldu og vini hér á landi sem ég tengdist sterkum böndum. Ég hefði sjálfsagt stokkið samstundis út í hjónaband ef ég hefði verið rúmlega tvítug, en ég tók mér langan umhugs- unarfrest. Jonathan kom oft í heim- sókn hingað til lands og í apríl 1992 fórum við út á Laugarnestanga sem hefur alltaf verið einn af mínum uppáhaldsstöðum því þar er allt annar heimur en annars staðar í Reykjavík. Jonathan sagði við mig: Nú er það annað hvort eða ... Ég sagði já og þegar ég segi já þá meina ég það. Við giftum okkur sama ár og þegar kom að undirbún- K ristjana Motzfeldt fluttist til Grænlands árið 1992 þegar hún giftist Jonathan Motz- feldt. Hann hefur ver- ið kallaður landsfaðir Grænlands, barðist ötullega fyrir réttindum Grænlendinga og var formaður grænlensku landstjórnarinnar. Hann lést árið 2010. Kristjana býr enn á Grænlandi en hyggst setjast að á Íslandi í náinni framtíð. Kristjana er spurð um fyrstu kynni sín af Grænlandi og segir: ,,Ég kom fyrst til Grænlands árið 1973 í stutta skemmtiferð ásamt vinnufélögum frá Hótel Sögu þar sem ég vann í gestamóttökunni. Þegar ég vann síðan á Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins fór ég ásamt fleirum til Suður-Grænlands sumarið 1977 og vann þar í fimm sumur við að kortleggja gróður á Suður-Grænlandi, meðal annars ingi brúðkaupsins sagði Jonathan: Det skal være folkefest. Við giftum okkur í Hvalseyjarkirkju við Ein- arsfjörð á Suður-Grænlandi og bjuggum í Nuuk.“ Hvernig maður var Jonathan? ,,Í bók sem var skrifuð um hann þar sem rætt var við hann sjálfan, fjölskyldu hans og samferðarmenn hans sagði ég að Jonathan væri sameiginleg eign. Höfundur bók- arinnar gerði mikið úr þeim orðum mínum. Jonathan var á stöðugum ferðum út um allt og fyrri eiginkona hans sagði að ferðadagarnir væru 200 á ári. Hann kynntist óhemju mörgum á þessum miklu ferðalög- um. Grænlendingar hafa hann í miklum metum og mér finnst dálæti þeirra á honum bara hafa aukist eftir dauða hans. Hann var lengi á toppnum í pólitíkinni og það er kalt á toppnum. Ég upplifði aldrei að hann stundaði klæki eins og svo margir stjórnmálamenn. Maður vissi alltaf hvar maður hafði hann. Þegar ég játaðist honum á sínum tíma var það vegna þess að ég sá fyrir framan mig heiðarlegan mann. Hann var mikil manneskja og óskaplega hlýr en hafði skap og gaus. Eina skiptið sem ég sá hann óöruggan var þegar hann kom í fyrsta sinn heim til móður minnar. Mamma fór að spá í bolla fyrir tveimur vinkonum mínum sem voru í heimsókn og svo kom að bolla Jo- nathans og hún sagði: Ég get eig- inlega ekkert sagt nema eitt, Jonat- han: þú ert eins og eldfjall, þú gýst og svo er það búið. Nákvæmlega þannig var hann. Hann var frægur fyrir að reka starfsfólk ef það fauk í hann þegar hann var í gleðskap eða boðum. Sumir voru reknir mörgum sinnum. Svo var allt gleymt daginn eftir og enginn missti vinnuna.“ Stökk út í djúpu laugina KRISTJANA MOTZFELDT HYGGST FLYTJA HEIM TIL ÍSLANDS EFTIR LANGA BÚSETU Á GRÆNLANDI. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN UM GRÆNLAND OG HJÓNABANDIÐ MEÐ JONATHAN MOTZ- FELDT, EN HANN LÉST ÁRIÐ 2010. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Svipmynd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.