Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013 Ferðalög og flakk V ið vildum sigra heiminn strax,“ sagði Guðný Ragnhildur Jónasdóttir sem ákvað þegar hún varð sextug að fljúga á vit æv- intýranna ásamt manni sínum Hin- riki Þorsteinssyni og stofna ABC- skóla fyrir fátæk börn í Bóbó í Búrkína Fasó í Afríku. Nú fimm árum síðar hafa þau komið upp skóla fyrir fátæk börn og stofnað örlánasjóð fyrir fátækar konur á svæðinu og hafa ýmislegt fleira í bígerð. „Allt tekur langan tíma í Búrkína Fasó,“ segir Guðný og hafa þau lært að það er hægara sagt en gert að sigra heiminn. Þegar Guðný var sjö ára sá hún myndir frá Afríku hjá trúboða sem kom og talaði í kirkjunni hennar. Þetta kveikti hjá henni brennandi áhuga á Afríku og var hún stað- ráðin í að gerast hjúkrunakona og fara þangað í hjálparstarf. Svo liðu árin og hún flutti frá heimahög- unum á Akureyri þegar hún var tíu ára til Reykjavíkur, þar fór hún síðar í nám við Kennarahá- skóla Íslands. Hún gifti sig og eignaðist börnin sín fimm og starf- aði sem kennslukona og síðar meir skólastjóri. Hún og maðurinn hennar bjuggu lengst af í Fljóts- hlíðinni, þar störfuðu þau sem for- stöðuhjón hjá Hvítasunnukirkjunni og ásamt því var Guðný skjóla- stjóri í Fljótshlíðarskóla. Öll þessu ár átti hún sér samt þann draum að hjálpa konum og börnum í Afr- íku. Skóli stofnaður á tíu dögum Þegar Guðný varð sextug hætti hún sem kennari og þau hjónin hættu sem forstöðuhjón. Á sama tíma ákvað Atorka að gefa 15 milljónir til stofnunar ABC-skóla í því landi í Afríku sem minnst menntunarstig væri í. Búrkína Fasó varð fyrir valinu þar sem um 70% af þjóðinni voru ólæs. Sonur þeirra Jóhannes var í stjórn ABC á þessum tíma og bar það undir þau hvort þau vildu taka þátt í þessu verkefni. Hinrik hafði oft farið til Búrkína Fasó og þekkti til þar. Hjónin slógu til og höfðu þá tvo mánuði til stefnu til þess að fara út og stofna skólann. Loksins ætlaði langþráður draumur Guðnýjar að verða að veruleika. Hinrik fór á undan til Búrkína Fasó til þess að sækja um leyfi og svo fóru þau saman út ásamt tveimur öðrum úr kirkjunni til þess að stofna skólann. Þau höfðu þrjár vikur til stefnu þegar þau komu út til þess að stofna skólann. Þau komust í samband við hol- lenska konu sem gift var inn- fæddum manni sem hét Elí. Elí átti land ásamt systkinum sínum sem þau höfðu byggt þrjár skóla- stofur á og stóðu þær auðar. Guðný segir ómögulegt að fara út í svona framkvæmdir án þess að hafa mann eins og Elí með í för, sem er innfæddur og þekkir vel inn á kerfið. Elí var allur af vilja gerður og var tilbúinn að lána Guðnýju og Hinriki landið sitt með skólastof- unum þar til þau fengu leyfi til þess að byggja skólann. Fljótlega eftir að þau komu út lést móðir Elí og því gat hann ekki aðstoðað þau fyrr en tíu dögum áður en Guðný og Hinrik áttu pantað flug heim. Á þessum tíu dögum þurftu þau að laga skólann, steypa gólf, setja nýtt þak, mála kennslustofurnar, finna kennara, matráðskonu og skrifstofukonu ásamt því að fara í fátækrahverfin og bjóða börnum skólavist. „Þar sem Elí þekkti svo vel inn á kerfið þá tókst þetta og daginn áður en við flugum heim voru 98 börn skráð og við stofn- uðum skólann,“ segir Guðný. Guðný og Hinrik flugu aftur heim til Íslands og Elí og kenn- ararnir ráku skólann fyrsta árið. En þau hafa dvalið í Bóbó í Búrk- ína Fasó hvern vetur síðastliðin fimm ár og unnið að uppbyggingu skólans. Guðný segir allt taka langan tíma í Búrkína Fasó og tók það þrjú ár að fá leyfi til þess að byggja skóla. Þau byggðu skólann í fátækasta hverfinu í Bóbó og leit- ast við að fá allra fátækustu börn- in í skólann. Á hverju hausti er innritað í skólann og komast 50 börn að hverju sinni. Guðný segir þetta mjög erfiðan dag þar sem oft bíði mörg hundruð foreldrar fyrir utan skólann sem hafa jafnvel sofið á skólalóðinni um nóttina til þess að komast að. Foreldrarnir þurfa að koma með fæðingarvottorð fyrir börnin sem er oft erfitt að útvega og þykir Guðnýju mjög sárt að þurfa að vísa fólki frá, en þau eru ekki með fjármagn til þess að taka fleiri inn. Foreldrarnir koma í við- tal hjá skólanefndinni, kenn- urunum og Guðnýju og eru börnin valin út frá aldri. Börnin eiga að vera í kringum sjö ára og það barn sem er næst þeim aldri í hverri fjölskyldu kemst inn. Skortur á stuðningsaðilum Skólinn hefur getið sér gott orð og er því eftirsóttur. Skólavistin er ókeypis og börnin fá gott atlæti og fría máltíð. Í dag eru skólastof- urnar orðnar sex og búið er að byggja eldhús, búr, matsal, hús fyrir húsvörðinn og átta klósett. Guðný segir að þetta hafi allt tek- ist að gera fyrir Atorkupeninginn en þau hafi endað á að borga 10 milljónir í stað 15 því kreppan skall á hér heima ári eftir að þau fóru út. Nú eru börnin í kringum 300 en stuðningsaðilarnir eru að- eins tæplega 200. Margir stuðn- ingsaðilar hafa hætt að styrkja starfið eftir hrunið. Guðný og Hin- rik ákváðu að fjárfesta í landi fyrir utan Bóbó sem foreldrar barnanna í skólanum rækta, til þess að ná endum saman fyrir skólann. Þau hafa fengið aðstoð frá hjálp- arsamtökum á Englandi sem senda þeim ýmiskonar dót sem nýtist í starfinu og einnig hefur nytja- markaðurinn á Selfossi náð að styrkja einn bekk með framlögum sínum. Guðný og Hinrik hugsa stórt og Hjónin Guðný Ragnhildur og Hinrik ásamt heimamönnum í Bóbó. STOFNUÐU ABC-SKÓLA Í AFRÍKU Ekki þarf mikið til að konur ger- ist frumkvöðlar HJÓNIN GUÐNÝ RAGNHILDUR JÓNASDÓTTIR OG HINRIK ÞORSTEINSSON STOFNUÐU ABC-SKÓLA FYRIR FÁTÆK BÖRN Í BÚRKÍNA FASÓ Í AFRÍKU. Í KJÖLFARIÐ Á ÞVÍ KOMU ÞAU Á FÓT SJÓÐI SEM LÁNAR KONUM VAXTALAUSA FJÁRMUNI TIL AÐ STOFNA REKSTUR OG TRYGGJA SÉR LÍFSVIÐURVÆRI. Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir hgk4@hi.is Guðný hefur dvalist í Búrkína Fasó hvern vetur síðastliðin fimm ár.Lítið þarf til að gleðja börnin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.