Akureyri


Akureyri - 25.04.2013, Qupperneq 12

Akureyri - 25.04.2013, Qupperneq 12
12 25. apríl 2013 AÐSEND GREIN KOLBRÚN EVA RÍKHARÐSDÓTTIR Dögun vill bætt búsetuskilyrði Bændur eru ekki launþegar né bótaþegar hjá ríkinu, það vitum við í Dögun. Ríkið niður- greiðir afurðaverð beint til bænda í formi beingreiðslna í samræmi við kvóta og fram- leiðsu þeirra og eru þessar greiðslur því niðurgreiðsla á afurðaverði til neytenda. Þetta á ekki einungis við um lambakjöt, heldur einnig mjólk- urvörur, grænmeti, ávexti ofl. en það virðist gæta smá misskilnings hvað þetta varðar hjá sumum. Beingreiðslur hér á landi eru ekk- ert einsdæmi, þær tíðkast út um allan heim og er þetta í rauninni leið rík- isins til þess að lækka matvöruverð. Ef þessar greiðslur hætta, mun matvöruverð að öllum líkindum hækka töluvert og eru greiðslurnar því þjóðhagslega hagkvæmar til að halda verðbólgu og hækkandi mavælaverði í skefjum. Þá þarf einnig að athuga í þessu sambandi að þegar talað er um ríkisútgjöld til landbún- aðar er ekki eingöngu verið að tala um þessar beingreiðslur til bænda, heldur er einnig um að ræða framlög til landgræðslu og skógræktar, framlög til landbúnaðarháskólanna, Landbún- aðarstofnunar, ráðgjafar- og kynbótastarfs og framlög til landbúnaðarráðuneytis o.fl. En það vill oft gleymast í þessum umræðum. Hvað vill Dögun? Dögun leggur áherslu á að búsetuskilyrði verði bætt á landsbyggðinni. Þá er ekki aðeins verið að tala um kvótamál og þau byggðalög sem eiga allt sitt undir sjávarútveginum, heldur vitum við að blómleg byggð og innlend fram- leiðsla landbúnaðarvara er ein af grunnstoðum íslensks samfélags. Dögun vill stuðla að sjálfbærni landsbyggðarinnar og draga úr flutn- ingskostnaði, stuðla að umbótum í landbúnaði með því að efla nýliðun og frelsi bænda til athafna. Dögun vill draga úr miðstýringu, einfalda regluverkið og fækka milli- liðum. Við viljum auka möguleika á smásölumarkaði og efla samkeppni í greininni m.a. með því að efla Beint frá Býli. Þá viljum við efla ylrækt og kornrækt með því að nýta umframorku frá virkjunum og endur- skoða heildsöluverð á raforku til framleiðslu í landbúnaði. Dögun vill stuðla að lægri fjármagnskostn- aði og afnámi verðtryggingar sem auðveldar nýliðun og kynslóðaskipti á bújörðum. Að stefnt verði að því að minnka vægi framleiðslu- tengdra ríkisstyrkja en taka þess í stað upp búsetutengdan stuðning. Slíkar breytingar stuðla að auknu frelsi bænda til sinna starfa. Þetta er meðal þess sem við í Dögun vilj- um ná fram á næstu árum í landbúnaði, hvað vilt þú? Höfundur er í 2. sæti á lista Dögunar í NA-kjördæmi AÐSEND GREIN BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR OG PREBEN JÓN PÉTURSSON Hver kýs ekki bjarta framtíð? Það getur verið freistandi fyrir frambjóðendur að lofa öllu fögru. Sérstaklega þegar peningarnir koma úr sjóðum almennings. Það er hins vegar ekki ábyrgt. Björt framtíð er hins vegar með skýr markmið um það hvernig samfélag við viljum byggja. Meiri stöðugleiki Mikilvægt er að ná efnahagslegum stöðugleika. Verðbólga er viðvarandi og vextir mun hærri en í nágrannalöndunum. Það er okkur dýrt. Björt framtíð vill klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og skoða hvort aðild og upptaka Evru sé vænlegur kostur. Með upptöku á traustum gjald- miðli yrði verðtyggingin úr sögunni og vextir myndu lækka. Gera þarf leigumarkað að raunverulegum valkosti en því miður hafa leigjendur setið á hakanum. Björt framtíð vill gera fólki kleift að búa á traustum leigumarkaði. Það er verkefni sem getur ekki beðið. Meiri fjölbreytni Fjölbreytt og frjálst samfélag er gott samfélag. Björt framtíð leggur áherslu á fjölbreytni á öllum sviðum svo sem í atvinnulífinu, menn- ingu, matvælaframleiðslu, búsetuúrræðum og menntun. Við teljum mikilvægt að bæta skilyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja með hnitmiðuðum aðgerðum. Við leggjum áherslu á fjölbreyttar námsleiðir, viljum jafna búset- uskilyrði og verja mannréttindi. Minni sóun Umhverfismálin eru okkur hugleikin. Ísland er mikið sóunarsamfélag og við þurfum að temja okkur umhverfisvænni lífstíl. En sóunin er víðar. Brottfall úr skólum er allt of mikið á Íslandi. Það er sóun á hæfileikum, tíma og pening og við því þarf að bregðast. Við vilj- um efla heilsugæsluna í stað þess að fólki sé vísað í dýrari úrræði. Við viljum fara ofan í saumana á rekstri ríkisins og nýta peningana betur. Sóun á almannafé er aldrei réttlætanleg. Meiri sátt Lítið traust ríkir á Alþingi og stjórnmálamönnum. Það verður ekki aukið nema vinnubrögðin á Alþingi breytist. Við viljum einblína á lausnir. Sýnum skoðunum annarra virðingu og veitum góðum hugmynd- um brautagengi. Við viljum virða lýðræðislega ákvarðanir og leiða mál til lykta. Dæmi um slík mál eru stjórnarskráin og aðildarviðræður við ESB. Minna vesen Okkur finnst ótrúlegt hvað þessari litlu þjóð tekst að flækja málin. Við viljum einfalda hlutina og liður í því er að gera skattkerfið og almannatryggingakerfið skiljanlegra og rétt- látara. Efla þarf enn frekar aðgengi fólks að upplýsingum og auka gagnsæi í stjórnsýslunni. Björt framtíð er með skýran fókus á fram- tíðina. Við viljum laga grunninn og byggja hér réttlátt og skilvirkt samfélag. Ef þú deilir þessari sýn er X-A góður kostur. Höfundar skipa 1. og 2. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi AÐSEND GREIN ÞORKELL ÁSGEIR JÓHANNSSON Sjálfstæði heimahéraða Mikil rígur hefur þróast milli höfuðborgar- svæðisins og landsbyggðarinnar undan- farin ár og áratugi. Birtingarmyndir hans eru ýmsar, en ein sú alvarlegasta er um- gengni borgarstjórnar um málefni Reykjavíkurflugvallar. Nú blasir við að vegna gerræðis stjórnenda þessa einstaka sveitarfélags munu koma þeir dagar, fáeinir á ári, þar sem ekki einu sinni verður unnt að lenda sjúkraflugvél neins staðar á suðvesturhorninu, hversu mikið sem við liggur. Því borgaryfirvöld hafa nú haft það í gegn að svipta okkur þeirri einu flugbraut sem snýr gegn suðvestri / norðaustri, svo í miklum vindstyrk úr þeim áttum lokast flugvöllurinn. Um leið er þó ætlast til að landsmenn allir taki þátt í að kosta steypuskrímsli utan um LHS, þunga- miðju heilbrigðisþjónustu í landinu, einmitt í borginni. Fleiri nýbyggingar eru fyrirhugaðar, í Reykjavík, fyrir milljarðatugi, á sömu forsendum um kostnaðarþátttöku allra landsmanna, um leið og samgöngubætur á landsbyggðinni, jafnvel niðurgreiddar með notkunargjöldum, eru rakkaðar niður sem kjördæmapot. Ath. að þessi rígur er ekki svo mikill meðal almennings, heldur fyrst og fremst á stjórnsýslustiginu. Enda eru borg- arbúar almennt mjög hlynntir flugvellinum okkar en önnur öfl og hvatir (fjárhagslegar) liggja að baki þessari andúð gegn honum. Vandinn bak þið þennan ríg liggur í miðstýrðu valdi, þ.e. þeirri staðreynd að landsbyggðin öll þarf að glíma við miðstýrt fjárveitingavaldið í borginni, þrátt fyrir að fjármunirnir sem þessi miðstýring sýslar með hafi orðið til að mestu á landsbyggðinni. Það er eðli miðstýr- ingar, í hvaða mynd sem hún er, að sanka til sín völdum og fjármunum af því svæði sem vald hennar nær yfir, og skammta það síðan til baka eftir eigin geðþótta. U.þ.b. helmingur þess fjármagns sem flyst frá landsbyggð til borgar verður þannig eftir í stjórnsýslunni í borginni. Við sem skipum hin nýju stjórn- málasamtök Regnbogann, hér í NA kjördæmi, leggjum því til að spornað verði við þessu með því að landinu okkar verði skipt upp í smærri ein- ingar, t.d. fjórðunga, sem hafa með höndum stýringu á því fjármagni sem til verður í því héraði, eftir að skattar hafa verið greiddir af því til ríkissjóðs. Þessi héruð hafi þannig töluvert sjálfstæði í sínum samgöngubótum sem og rekstri heilbrigðis- og menntakerfis. Hugmyndin gengur út á að framfarir hvers landshluta séu á forsemdum heimahéraðsins fremur en miðstýrðs ríkisvalds. Þetta teljum við t.d. grundvöll þess að efla megi heilsugæslu á landsbyggðinni í raun, líkt og margir flokkar tala nú um, fjálglega mjög. Eða hver er t.a.m. reynslan af flutningi skólanna til sveitar- félaganna? Þá yrði t.d. ekki lengur í valdi þessarar sömu miðstjórnar að fresta í sífellu nauðsynlegum umbótum flugbrautarinnar á Norðfirði, sem þjónar sjúkraflugi til og frá fjórðungssjúkrahúsinu þar. Við teljum einnig að með þessu yrði öll fjársýsla á landsvísu ábyrgari, að höfuðborgin okkar finni betur tilgang sinn með þeim titli og hugsi þannig lengra út fyrir sinn ramma, og að þessi ríg- ur sem skapast af miðstýrðri fjársýslu, milli Reykjavíkur og landsbyggðar hverfi, alla vega að mestu. Frekari kynningu á stefnu okkar má finna á vefsíðunni regnboginn.is. Listabók- stafur Regnbogans er „J“. Við óskum þjóðinni farsældar á komandi kjörtímabili. Höfundur er flugmaður og í 4.sæti Regn- bogans í NA-kjördæmi. AÐSEND GREIN SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR Er lágmarkslýðræði nóg? Lýðræðisvaktin vill breyta mörgu. Þar á meðal mörgu sem snýr að lýðræðinu. Við viljum taka okkur vinnubrögð stjórnlagaráðs til fyrirmyndar. Þar var markmiðið að komast að niður- stöðu, leyfa öllum sjónarmiðum að koma fram og leiða svo mál til lykta. Og ekki bara sjónarmiðum þeirra sem sátu í ráðinu heldur áttu allir þess kost að senda inn hugmyndir og athugasemndir m.a.á netinu. Ólíkt háttum á alþingi. Við viljum líka að almenningur get sett fram hugmyndir að lagabreytingum og nýjum lögum – og einnig farið fram á þjóðar- atkvæðagreiðslu. Við viljum líka lögleiða persónukjör, þar sem kjósendur geta haft mun meiri áhrif á hverjir setjist á þing. Endurraðað listum flokk- anna, ef það vill og helst kosið fólk af fleiri en einum lista. Eins og staðan er nú ákveða flokkarnir hverjir skipa stóran hluta þingliðs. Og er ekki þörf á að breyta því að hægt sé að setja þannig mörk að flokkar sem sannanlega fá fylgi til að eiga fulltrúa á þingi útilokast vegna tilbúinna girðinga. Bjarnarflag Áhrifaleysi fólks milli kosninga sést vel í mál- um sem varða framkvæmdir og náttúruna. Í þessu kjördæmi er virkjun í Bjarnarflagi dæmi um valdleysi. Umhverfismat var gert fyrir 10 árum. Síðan hafa komið fram nýjar upp- lýsingar um áhrif gufuaflsvirkjana og einnig viðvaranir vísindamanna um að virkjun í Bjarnarflagi geti haft skaðleg áhrif á Mývatn. Það eitt og sé ætti að hafa í för með sér að sjálfsagt væri að doka við og gera nýtt mat. En þá er málið komið í hendur Landsvirkjunar, framkvæmdaaðil- ans – og aðeins þeir sjálfir og sveit- arstjórnin geta farið fram á nýtt mat. Hér er áhrifaleysi bæði almennings og umhverfisráðuneytis of mikið. Og náttúran nýtur ekki vafans. ríkisfjármögnuð kosingabarátta Það spyrja margir hvar kosninga- skrifstofa Lýðræðisvaktarinna sé og hvers vegna við auglýsum ekki meira til að vekja athygli á góðum málstað – eins og mörg hin framboðið. Fólk áttar sig ekki á muninum á þeim framboðum sem þegar eiga fulltrúa á þingi og hinum. Kosningabarátta þeirra fyrrnefndu er nefnilega rekin að stórum hluta fyrir ríkis- framlög til flokkanna. Röksemdin fyrir fram- lögum er að það styrki lýðræðið og efli starf þeirra. Réttlætanlegt að vissu marki. En þegar kemur að kosningum er munurinn himin- hrópandi. Við treystum því á að kjósendur kynni sér stefnu, málflutning og frambjóðendur og kjósi eftir því. Stærðin eftir kosningar ræðst á kjör- dag. XL fer mörgum vel. Höfundur skipar 1. sæti á lista Lýð- ræðisvaktarinnar í norðaustur kjördæmi. Sigríður Stefánsdóttir Brynhildur Pétursdóttir Preben Jón Pétursson Þorkell Ásgeir Jóhannsson Kolbrún Eva Ríkharðsdóttir

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.