Morgunblaðið - 04.11.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 04.11.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 H a u ku r 5 .1 3 Finnur Árnason rekstrarhagfræðingur finnur@kontakt.is Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Stórt innflutningsfyrirtæki með góð umboð í tæknivörum fyrir sjávarútveg.• Ársvelta 800 mkr. EBITDA 70 mkr. Auðvelt fyrir góða rekstrarmenn með þekkingu á þessu sviði að gera mun betur. Nýr hótelrekstur með 100 herbergi á Reykjavíkursvæðinu til leigu fyrir• kraftmikinn aðila. Hótelinu verður skilað fullbúnu fyrir sumarvertíðina og viðkomandi leigutaki getur haft áhrif á frágang hótelsins. Rótgróin heildverslun með vinsælar vörur fyrir konur, sem seldar eru í• verslunum um land allt. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 50 mkr. Þekkt glerfyrirtæki sem selur einnig aðrar vörur fyrir nýbyggingar. Stöðug• velta og góð EBITDA frá hruni, en umsvifin eru nú að aukast gífurlega og fyrirliggjandi pantanir nema nú meira en ársveltu síðasta árs. Áratuga gömul og vel þekkt sérverslun, sú stærsta og þekktasta á sínu• sviði. Hentar vel fyrir hjón eða konur. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 25 mkr. Tveir Subway staðir á Benidorm. Velta 100 mkr. og góður hagnaður.• Miklir möguleikar fyrir duglega aðila að opna fleiri staði á svæðinu. Stálsmiðja sem framleiðir staðlaðar vörur fyrir sjávarútveg. Stöðug velta• og vel tækjum búin. Hægt að flytja hvert á land sem er og hentar vel sem viðbót við starfandi vélsmiðju. Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,• en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta síðustu árin um 300 mkr. og góð framlegð. Stórt og rótgróið iðnfyrirtæki sem byggir mest á útflutningi. Ársvelta 700• mkr. EBITDA 70 mkr. Litlar sem engar skuldir. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Maðurinn sem hóf skothríð með hálf- sjálfvirkum riffli á alþjóðaflugvellin- um í Los Angeles (LAX) síðastliðinn föstudag hefur verið ákærður fyrir morð. AFP-fréttaveitan hefur eftir saksóknara að byssumaðurinn, hinn 23 ára gamli Anthony Ciancia, hafi gengið upp að óvopnuðum öryggis- verði sem stóð við öryggishlið í flug- stöð 3, dregið upp riffil og hleypt af nokkrum skotum af mjög stuttu færi. Skotin hæfðu öryggisvörðinn með þeim afleiðingum að hann féll særður í gólfið og mun Ciancia þá hafa gengið upp að manninum og skotið hann aftur. Hinn látni hét Gerardo Hernandez og var hann 39 ára gamall. Því næst ruddi Ciancia sér leið inn í flugstöðvarbygginguna þar sem hann hóf skothríð á nýjan leik og hæfði fjóra til viðbótar, þar af tvo ör- yggisverði. Lögreglu- og öryggis- sveitum tókst að lokum að yfirbuga ódæðismanninn og var Ciancia flutt- ur alvarlega særður á sjúkrahús. Dráp og ótti markmið Við leit í bakpoka sem byssu- maðurinn hafði í fórum sínum fundu lögreglumenn handskrifaðan miða en að sögn bandarísku alríkislög- reglunnar (FBI) var þar m.a. að finna yfirlýsingu um að Ciancia hefði tekið meðvitaða ákvörðun um að drepa eins marga öryggisverði á LAX-flugvellinum og hann mögu- lega gæti. Á einum stað í bréfinu beinir Anthony Ciancia orðum sínum sérstaklega til öryggisvarða flugvall- arins og segist vilja „vekja ótta í svikulum hugum þeirra“. Auk þess að vera vel vopnum búinn klæddist Ciancia svörtum fatnaði og skot- heldu vesti þegar hann ruddi sér leið inn í flugstöðvarbyggingu LAX-flug- vallar en í fórum sínum hafði hann einnig mikið magn skotfæra að sögn AFP-fréttaveitunnar. Vegna skotárásarinnar þurfti að loka alþjóðaflugvellinum í Los Angeles um tíma og hafði sú lokun áhrif á yfir 1.500 flugferðir auk þess sem rýma þurfti flugstöðvarbygg- inguna í tengslum við rannsókn lög- reglu á málinu. AFP LAX Markmið ódæðismannsins var að myrða sem flesta öryggisverði. Vildi myrða sem flesta öryggisverði  Byssumaðurinn á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles ákærður fyrir morð  Fórnarlambið skotið af stuttu færi Minnst sex eru látnir eftir að ferja, sem flutti erlenda ferðamenn, sökk skammt frá Pettaya-ströndinni í austurhluta Taílands í gær. AFP- fréttaveitan greinir frá því að þrír hinna látnu séu með ríkisfang í Taí- landi en hinir eru sagðir hafa erlent ríkisfang. Fréttamiðlar í Rússlandi greindu frá því í gær að þrír Rússar, þar af einn ungur drengur, hefðu verið flutt- ir undir læknishendur. Litlar upplýs- ingar liggja fyrir um líðan fólksins en samkvæmt AFP-fréttaveittunni er það talið vera alvarlega slasað. Tölur um fjölda farþega eru nokk- uð á reiki en samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í Taílandi voru um eitt hundrað manns í ferj- unni þegar hún sökk. Að svo stöddu er ekki ljóst hvað olli slysinu en vitni segja ferjuna hafa lent í vélavand- ræðum skömmu áður en hún tók að sökkva og grunur leikur á að of marg- ir farþegar hafi verið um borð þegar slysið átti sér stað. Ferja sökk eftir vélavandræði  Minnst sex týndu lífi í ferjuslysinu AFP Slys Fjölmennt lið björgunarmanna var sent á vettvang. Fjölmargir íbúar í ríkjum Afríku, Bandaríkjanna og Evrópu áttu þess kost í gær að bera sólmyrkva augum, en sólmyrkvar verða þegar tunglið gengur milli jarðar og sólar og skyggir á sólina frá jörðu séð, annaðhvort að hluta eða öllu leyti. Til þess að njóta himnasýning- arinnar sem best settu meðlimir Rendille-ættbálksins í Afríku upp traust hlífðargleraugu en sólmyrkvinn er sagður hafa sést best í vesturhluta heimsálfunnar. AFP Jarðarbúar horfa heillaðir til himins John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í gær til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem ráð- herrann sækir landið heim frá því að Mohamed Morsi forseta var steypt af stóli fyrr á þessu ári. Í ávarpi sem Kerry flutti hvatti hann til friðar í landinu og að unnið yrði að aukinni lýðræðislegri þróun. „Sagan hefur sýnt okkur að lýðræð- isríki eru mun stöðugri, lífvænlegri og búa við meiri velmegun en önn- ur,“ sagði Kerry og bætti við að stöðugleiki væri landinu mikilvægur því hann leiðir m.a. til erlendra fjár- festinga og eykur fjölda ferða- manna. Leynileg heimsókn til Kaíró Ekki var opinberlega upplýst um fyrirhugaða heimsókn Kerrys til Egyptalands fyrr en flugvél utanrík- isráðherrans hafði lent á flugvell- inum í Kaíró. Er þetta í fyrsta skipti sem heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Egyptalands er haldið leyndri af öryggisástæðum. Algengara er að bandarískir ráða- menn ferðist með leynd til ríkja á borð við Afganistan og Írak. Leynd- in yfir ferðinni þykir því vera til marks um áhyggjur ráðamanna vestanhafs af þeim óstöðugleika sem ríkir í Egyptalandi. khj@mbl.is „Lýðræðisríki eru mun stöðugri“ AFP Mættur John Kerry utanríkis- ráðherra við komuna til Kaíró.  Hvetur til friðar og lýðræðisþróunar Hillary Clinton, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf sterklega til kynna á fundi í vikunni að hún muni bjóða sig fram til forseta- efnis Demókrata- flokksins fyrir bandarísku forsetakosningarnar ár- ið 2016. „Stærsta verkefnið sem heim- urinn á enn eftir að leysa er að láta konur brjóta glerþakið,“ sagði Clin- ton á fjölmennri ráðstefnu sem hald- in var fyrir konur í Pennsylvaníu. Þá sagði hún enn vera töluvert í land þangað til konur geti tekið þátt á öll- um sviðum samfélagsins. Um 7.000 konur voru á ráðstefnunni og mátti greina miklar væntingar til hugs- anlegs framboðs. Clinton naut mikillar hylli Hillary Clinton Bandaríkin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.