Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 20

Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 Jólablað –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 18. nóvember. ❆ ❆ ❆ ❆ ❆ ❆ Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt jólablað laugardaginn 23. nóvember Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum fjölda fólks og verðum með fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa SÉRBLAÐ Staksteinar Morg- unblaðsins telja að með andmælum við til- lögur mennta- málaráðherra um að rýmka heimildir RÚV á auglýsingamarkaði sé ég að andmæla eig- in umsögn frá því fyrir ári síðan, þar sem ég hafi ekki talið að skerðing á auglýsinga- mínútum RÚV á hverri klukkustund, úr 12 mínútum í 8, ylli RÚV þeirri tekjuskerðingu sem stofnunin héldi fram. Óttast Staksteinahöfundur að Ragnar Rey- kás sé farinn að hafa of mikil áhrif innan 365 miðla. Hverjar eru tillögurnar? Staksteinahöfundur telur greini- lega alveg skýrt að mennta- málaráðherra muni takmarka breytingar á auglýsingareglum við fjölda mínútna á klukkustund. Sami skilningur kemur fram hjá forstjóra Skjás Eins í viðtali við Morg- unblaðið. Allt annar skilningur kemur hins vegar fram hjá útvarpsstjóra í við- tali við blaðið. Hann sagði um fyr- irhugaða rýmkun, að samkvæmt gildandi lögum skilaði útvarpsgjald 3,9 milljörðum, en þar af færu 500 milljónir ekki til RÚV: „Ef þessi skerðing sem fyrirhuguð er á kost- unar- og auglýsingatekjum Rík- isútvarpsins verður öll tekin til baka, þá vant- ar enn 100 milljónir upp á að bætt sé sú ákvörðun að skila RÚV ekki útvarpsgjaldinu að fullu. Það er þó auð- vitað betra en ekkert.“ Sjálfur hefur menntamálaráðherra ekki verið alveg skýr um þetta. Hann kynnti væntanlega breytingu sem mótvægi við skert ríkisframlag til RÚV og talar um að hann eigi eftir að út- færa breytinguna, en geri sér grein fyrir að samkeppnisaðilar RÚV verði ekki ánægðir með þetta. Hvað þarf að útfæra ef breytingin er eins einföld og Staksteinar og Skjár Einn telja og hvað ættu samkeppn- isaðilar RÚV að verða óánægðir með? Það er ábyrgðarhluti af menntamálaráðherra að skapa óvissu um rekstrarumhverfi fjöl- miðlafyrirtækja í nánustu framtíð og mikilvægt að þeirri óvissu verði eytt sem fyrst. Áralöng barátta Það verður að hafa í huga að ára- löng barátta hefur verið háð fyrir þeim litlu breytingum í jákvæða átt sem fólust í takmörkunum RÚV á auglýsingamarkaði, sem að mestu eiga að koma til framkvæmda um næstu áramót. Erindi Norðurljósa, forvera 365 miðla, var til meðferðar hjá Eftirlitsstofnun EFTA í 11 ár, en á endanum voru það kröfur það- an sem ýttu við íslenskum stjórn- völdum. Breytingarnar tóku til fleiri þátta en auglýsingamínútna. Mik- ilvægastar voru þær breytingar að banna RÚV sölu kostana nema í undantekningartilvikum, og krafa um að RÚV ætti að vinna eftir op- inberri gjaldskrá. Þessar breytingar gefa einhverjar vonir um að hægt verði að stemma stigu við skaðlegri framgöngu RÚV á markaðnum, sem Samkeppniseftirlitið lýsti ágætlega í skýrslu árið 2008. Það er rétt að ég taldi takmörkun á fjölda mínútna ekki valda neinum straumhvörfum í tekjum RÚV og er enn sama sinnis. Ég vona að Stak- steinar hafi rétt fyrir sér um um- fang væntanlegra tillagna mennta- málaráðherra. Þá verðum við Ragnar Reykás örugglega báðir til að óska honum til hamingju með það. Tillögur Illuga um auglýsingar á RÚV Eftir Ara Edwald » Það er ábyrgðarhluti af menntamálaráð- herra að skapa óvissu um rekstrarumhverfi fjölmiðlafyrirtækja í nánustu framtíð og mik- ilvægt að þeirri óvissu verði eytt sem fyrst. Ari Edwald Höfundur er forstjóri 365 miðla. Sem betur fer líða að jafnaði 50 til 100 ár á milli alvarlegra fjármálakreppna í heiminum en þegar og þar sem þær skella á dregst þjóð- arframleiðsla saman, eignaverð lækkar og ef myntin er sjálf- stæð, þá veikist gengi gjaldmiðilsins veru- lega. Öll einkennin þekkjum við á Íslandi frá árinu 2008. En það myndast líka botn og síðan við- spyrna því með gengislækkun gjaldmiðilsins bætast samkeppn- isskilyrði útflutningsgreina og næstum óháð aðgerðum stjórnvalda vex framleiðslan aftur og hagur al- mennings batnar. Þetta er allt vel þekkt í fjármála- fræðunum. En hversu hraður bat- inn er ræðst af samkeppnisþáttum og aðgerðum stjórnvalda. Staða út- flutningsgreina er mjög sterk og fyrir land með ónógan gjaldeyri er lykilatriði að stuðla að aukinni verðmætasköpun með fjárfest- ingum í atvinnugreinum sem skapa gjaldeyri eða atvinnugreinum sem draga úr þörf fyrir innflutning. En þetta hefur gengið alltof hægt og mælt á föstu verðlagi er landsframleiðsla ennþá um 6% lægri en hún var fyrir fjár- málahrun og andstætt brýnni þörf er fjárfestingarstigið ennþá mjög lágt á Íslandi. Fyrir auknar fjár- festingar þarf bæði innlent og er- lent fjármagn en ein meginástæðan fyrir skorti á fjárfest- ingum erlendra aðila eru gjaldeyrishöftin og framkvæmd þeirra. Seðlabanki Íslands kynnti í lok árs 2011 fjárfestingarleið sem skref í losun gjaldeyr- ishafta. Meginmark- miðið var að laða að erlenda fjárfesta og auka möguleika aflandskrónueigenda. Þetta hljómar vel fyrir fjárfestingar og aukna verðmætasköpun en reglurnar þjóna varla þeim tilgangi. Þannig er fullkomin óvissa um binditíma þegar fjárfest er í félögum, tíminn er að lágmarki fimm ár, en engin trygging er gefin fyrir því að bindi- tímanum verði ekki breytt. Fyrir flesta erlenda aðila er sú áhætta of mikil í samanburði við væntan ávinning. Regluverkið virkar að einhverju leyti vel fyrir Íslendinga sem eiga fjármagn erlendis og vilja kaupa fasteignir eða ríkisskuldabréf á Ís- landi. Og þótt það sé ánægjulegt þeirra vegna að þeir fái umfram- ávöxtun við að flytja fjármagn til Íslands skekkir það eignaverð á markaði og bætir hag almennings afskaplega lítið. Það er lykilatriði fyrir bættan hag almennings að fjárfestingar og verðmætasköpun aukist á Íslandi. Markviss leið til þess væri að end- urskoða fjárfestingaleiðina þannig að hún virki sem raunverulegur hvati til fjárfestinga í gjaldeyr- isskapandi greinum fremur en fyrir fasteignakaup og fjármögnun rík- isins. Fyrir hverja er fjárfestingaleiðin? Eftir Karl Þorsteins Karl Þorsteins » Þannig er fullkomin óvissa um binditíma þegar fjárfest er í fé- lögum, tíminn er að lág- marki fimm ár Höfundur er stjórnarformaður Quantum og hefur víðtæka reynslu á fjármálamarkaði. Undanfarið hefur heyrst mikið um það hversu íslenskur hús- næðismarkaður sé illa staddur og þá sér- staklega leigumark- aðurinn. Málið er samt að þessi staða á húsnæðismarkaði, hvort sem er á leigu- eða fasteignamarkaði, er ekki nýtilkomin, heldur er þetta vandamál sem hef- ur verið til staðar í áratugi. Í raun hefur aldrei verið farið í það að byggja upp neinn markað hér með langtímamarkmið að leið- arljósi, hvernig tekist hefur verið á við húsnæðismarkaðinn sýnir kannski einna best að íslenskir stjórnmálamenn hafa eytt mestum tíma sínum í að bregðast við að- stæðum í staðinn fyrir að fyr- irbyggja þær. Það er hægt að ganga svo langt að segja að eina lausnin sem kom- ið hefur inn á húsnæðismarkað Ís- lands, sem var ekki byggð á við- brögðum við aðstæðum, heldur ósk um að gera eitthvað raunhæft, var gamla verkamannaíbúðakerfið sem varð til við byggingu 70 íbúða við Hringbraut árið 1931. Þetta kerfi gerði fólki með lágar og millitekjur mögulegt að kaupa húsnæði. Þetta kerfi var ekki full- komið, enda eru fá kerfi fullkomin frá byrjun, en virkaði samt á þann máta að stór hluti fólks sem hafði áður búið inni á foreldrum eða leigt á vægast sagt óstöðugum leigumarkaði, gat komið sér upp þaki yfir höfuðið. Það sem gerðist við það að verkamannaíbúðakerfið fæddist var að það svæfði hvatann til að halda áfram að þróa húsnæð- ismarkaðinn, nema þá ef vera skyldi innan félagslega kerfisins. Flestir gátu keypt þarna og það var hægt að skipta upp í stærri íbúðir innan kerfisins ef fólk þurfti á því að halda. Annar fylgifiskur þessa kerfis var svo að þarna fæddist lág- launastefnan að nokkru leyti. Ódýrt húsnæði gerði það að verkum að ekki þurfti að ýta eins harkalega á kjarabætur og ann- ars hefði þurft. Það má því segja að þegar verkamannaíbúðirnar, sem áður mátti bara selja innan kerfis og voru um 2/3 af íbúðum á markaði, flutu út á fasteignamarkaðinn árið 2002 hafi fyrsta fasteignabólan á Íslandi fæðst. Það versta er að stjórnmálamenn voru ekki með neitt plan B um það hvernig ætti að byggja upp leigumarkað og raunhæfan fasteignamarkað eftir að þessar íbúðir fóru út á frjálsan markað, enga markmiðasetningu sem hefði meiri fjölbreytileika í för með sér fyrir íslenskan al- menning á húsnæðismarkaði. Þeg- ar lánabóla bankanna bættist svo við 2004 var ekki við góðu að bú- ast í framhaldinu. Það sem við sitjum uppi með í dag í samfélaginu eru tætlur af hinum og þessum plástrum á hús- næðismarkaði. Við eigum Búseta sem eina kostinn við leigukerfi, það ríkir nánast óeirðaástand á leigumarkaðinum sjálfum þar sem fólk slæst um íbúðir og yfirbýður hvert annað í leigu. Tryggingafé er orðið himinhátt og óraunhæft með öllu. Eigendur íbúða, sem hafa orðið fyrir forsendubresti á lánum sínum geta ekki lækkað leiguna nema fara að borga með eign sinni. Þeir sem eru að reyna að kaupa komast varla í gegnum greiðslumat vegna hárra fram- færsluviðmiða bankanna og þeir sem hafa verið svo óheppnir að missa húsnæði sitt eftir hrun og eru gjaldþrota fá ekki fyr- irgreiðslu í bönkum vegna trygg- ingafjár. Að endingu sitja bankar og ÍLS uppi með íbúðir og hús sem standa tóm í stað þess að fara í leigu. Málið hér er samt það að hús- næðismarkaður og stefna í þeim málum á Íslandi hefur oft verið „gæluverkefni“ félagsmálaráð- herra hverju sinni. Það hefur ver- ið undir ráðherra komið hve mikil orka fer í þetta málefni og hvernig þeirri vinnu er háttað. Eftir að verkamannaíbúðirnar hurfu af sjónarsviðinu er eins og enginn hafi haft rænu á því að setjast nið- ur og draga upp nokkra möguleika á húsnæðiskerfum, það þarf meira að segja ekki að finna upp hjólið þeim málun, heldur má líta á hús- næðismarkaði í löndunum í kring- um okkur og hvernig þeir eru byggðir upp og nýta sér reynslu annarra í þeim málum. Með samtilltu átaki á að vera hægt að byggja upp viðunandi húsnæðismarkað á landinu með framtíðina í huga. Markað sem gerir fólki kleift að velja sér bú- setuform þar sem það neyðist ekki til að leigja ef það vill það ekki eða kaupa ef það vill það ekki. Smæð samfélagsins okkar gerir það að verkum að breytingar á kerfum þurfa ekki að taka langan tíma og það getur verið mikill kostur. Förum að nýta kostina, til þess eru þeir. Húsnæðismarkaður til framtíðar Eftir Ástu Hafberg S. » Í raun hefur aldrei verið farið í það að byggja upp neinn mark- að hér með langtíma- markmið að leiðarljósi Ásta Hafberg S Höfundur er viðskiptafræðingur. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.