Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 21

Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is Bílalakk Blöndum alla bílaliti og setjum á spreybrúsa Bjóðum uppá heildarlausnir í bílamálun frá DuPont og getum blandað liti fyrir allar gerðir farartækja Á Spáni er tíma- skekkja. Henni var komið á fyrir þremur aldarfjórðungum, þegar Spánverjar voru orðnir banda- menn Þjóðverja. Spánverjar flýttu klukkunni um eina stund og klukkan varð eins í Madrid og Berlín. Nú kemur til greina að hafa klukkuna á Spáni betur í samræmi við sólargang. SÍBS-blaðið í febrúar á þessu ári var allt helgað því,að klukkan hér á landi yrði höfð í samræmi við sólargang að vetrinum. Á for- síðu blaðsins stendur Skammdeg- isþunglyndi með mynd af þung- búnum manni. Blaðið hefst svo á grein framkvæmdastjóra SÍBS, Guðmundar Löve. Hann heldur því fram að með því að slaka á togstreitu líkamsklukkunnar og ís- lensku klukkunnar að vetrinum mundi líðan þjóðarinnar batna og útgjöld sparast til heilbrigðismála. Þegar þessi heimatilbúna áþján sækir enn að nú í vetrarbyrjun leyfi ég mér að rifja upp úr mál- flutningi blaðsins. Þórgunnur Ársælsdóttir geð- læknir segir frá rannsókn hér á landi sem leiddi í ljós að 11,3% þjóðarinnar ættu við skammdegisþunglyndi eða skammdeg- isdrunga að búa með öðrum orðum tugir þúsunda landsmanna. Björg Þorleifsdóttir, lífeðlisfræðingur á Landspítalanum, seg- ir frá lífsklukkunni, innri móðurklukku líkamans, sem er af- markaður klasi af taugafrumum í und- irstúku heilans. Ef gangur lífsklukkunnar hliðrast, þegar misræmi verður milli henn- ar og ytri klukku (staðartíma), seinkar eða flýtir það líkams- ferlum, sem eru háðir lífsklukk- unni og meginvirknin lendir á röngum tíma sólarhringsins. Hún nefnir seinkaðar dægursveiflur, fólk fer seinna að sofa, og það leiðir af sér svefnskort, sem leiðir til dagsyfju með skertum afköst- um, lengri viðbragðstíma og minni einbeitingu, árvekni og athygli. Erla Björnsdóttir sálfræðingur bendir á að með því að stilla klukkuna eins og nú er sé raun- verulegt hádegi klukkan hálftvö og því fara flestir í raun og veru á fætur um miðja nótt til þess að mæta í vinnu eða skóla. Þannig þröngvi ytri aðstæður innri lík- amsklukkunni í rangan takt, og það sé ekki gott. Andrés Magn- ússon geðlæknir segir það töluvert álag á líkamsklukkuna að hafa klukku sem er einni og hálfri stund of fljót eins og er hér við Faxaflóa. Þá er viðtal við manninn á for- síðunni, Sigurð Ragnarsson veð- urfræðing, um skammdegisþung- lyndi hans. Þar lýsir hann því hvernig slíkt þunglyndi bitnar á öðrum, „þegar maður byrjar að pirrast út í allt og alla. Það byrjar vægt og bitnar fyrst á heimilinu, maður fer að sussa óþarflega mik- ið á krakkana og tuða við konuna. Á vinnustaðnum er maður svo að láta smávægilega hluti fara í taug- arnar á sér sem gerðu það ekki áður. Þarna er skammdeg- isþunglyndið ekki aðeins farið að hafa áhrif á mann sjálfan heldur manns nánasta umhverfi, fólkið sem manni þykir vænst um“. Lýsing Sigurðar bendir til þess að fjöldi þeirra, sem búa við þetta skammdegisböl, sé nokkrum sinn- um áðurnefndir tugir þúsunda. Það er merkilegt að rækilegur málflutningur, eins og birtist í SÍBS-blaðinu í fyrravetur, skuli ekki hafa hreyft við mönnum til að lina böl þessa fjölda, sem þar að auki hvílir fjárhagslega á heil- brigðiskerfinu, með þeirri einföldu aðgerð að færa staðartíma nær sólargangi. Spánverjar komust í takt við Þjóðverja með því að skekkja tíma sinn. Íslenskt at- vinnulíf þarf að vera í takt við at- vinnulíf í öðrum löndum, vestan hafs og austan. Guðmundur Löve tekur það upp í lok forystugreinar sinnar í SÍBS-blaðinu, að tölvu- póstur hafi „tekið yfir bróðurpart- inn af öllum viðskiptasamböndum við útlönd og óþarfi að hafa áhyggjur af slíkum sjónarmiðum, sem eitt sinn voru uppi“. Eftir Björn S. Stefánsson »Rækilegur málflutn- ingur SÍBS-blaðsins í fyrravetur hefur ekki hreyft við mönnum. Björn S. Stefánsson Höfundur er dr. scient. Tímaskekkja Engin ástæða er til að taka einhverjar skyndiákvarðanir um gjaldtöku af ferða- mönnum til að fjár- magna viðhald vin- sælla áfangastaða. Orðið náttúrupassi, eins fallegt og það nú hljómar, má ekki blinda sýn á viðfangs- efnið. Til að byrja með liggur ekkert fyrir um hversu mikla fjármuni þarf til að vernda vinsæla ferða- mannastaði. Í skýrslu Umhverf- isstofnunar um ástand friðlýstra svæða, sem kom út á þessu ári, seg- ir að sex svæði séu í verulegri hættu að tapa verndargildi sínu eða hafi tapað því að hluta til. Umhverf- isstofnun telur mikilvægt að hafa landverði á þessum svæðum eða fjölga þeim. Stofnunin leggur einn- ig til að verndaráætlun sé gerð, merkingar og aðstæður bættar og hugað að takmörkun á fjölda ferðamanna. Hvað kostar einn landvörður? Áður en öll ferðaþjónustan verð- ur sett í uppnám vegna fyrirætlana um að mjólka ferðamenn til að ráð- ast í þessar umbætur væri ágætt að fá kostnaðinn á hreint. Hvað kostar að hafa landverði að störfum á eftirsóttustu svæðunum yfir sum- artímann? Hvað kostar að bæta merkingar og aðstöðu? Eru þetta slíkar upphæðir að setja þurfi á sérstakan skatt til að bera kostn- aðinn? Ferðaþjónustan skilar nú þegar miklu En umfram allt þarf að svara því hvort yfirleitt sé ástæða til að setja upp dýrt innheimtu- og eftirlitskerfi fyrir náttúrupassa í þessum til- gangi. Efnahagsleg áhrif ferðaþjón- ustunnar voru 324 milljarðar króna á síðasta ári samkvæmt skýrslu Gekon um virðisauka greinarinnar. Gjaldeyristekjur námu 178 millj- örðum króna og beinar tekjur rík- isins af ferðaþjónustunni voru 30 milljarðar króna. Er ofrausn að lít- ill hluti af þessum tekjum fari til viðhalds og verndar á þeim náttúru- perlum sem helst draga ferðamenn til landsins? Varnaðarorð Alta Ekki er minni ástæða til að benda á varnaðar- orð í afar vandaðri skýrslu sem ráðgjafa- fyrirtækið Alta setti saman fyrir Ferða- málastofu um fjár- mögnun uppbyggingar og viðhalds ferða- mannastaða. Alta bend- ir á að miðað við önnur lönd ráðstafi tiltölulega margir er- lendir ferðamenn, sem hingað koma, fé í einu lagi fyrir allt þrennt: langt flug, gistingu til frem- ur langs tíma og fyrir önnur útgjöld meðan á ferðinni stendur. Af því leiðir meiri víxláhrif verðteygni milli ólíkra þjónustuþátta. Hækkun á verði á einum stað hafi áhrif á eft- irspurn eftir þáttunum öllum, jafn- vel álíka mikil. Tekjurnar gætu lækkað Með öðrum orðum, það skiptir ekki máli hvar eða hvernig hækkun á útgjöldum ferðamannsins verður, með greiðslu fyrir náttúrupassa eða eitthvað annað, hún hefur alltaf áhrif á ákvörðun hans um að koma hingað til lands. Innheimta nátt- úruskatts gæti því leitt til fækk- unar ferðamanna. Tekjur ríkissjóðs lækka um 600 milljónir króna ef ferðamönnum fækkar um 2% frá því sem nú er. Bitnar á landsbyggðinni En ef yfirleitt á að taka upp nýj- an skatt á ferðamenn, þá verður hann að gilda fyrir alla ferðamenn, ekki bara þá sem ætla út fyrir höf- uðborgina til að skoða nátt- úruperlur. Annars er hætta á að landsbyggðin verði af heimsóknum ferðamanna sem vilja spara sér þessa skattgreiðslu. Eftir Þóri Garðarsson Þórir Garðarsson »Eru þetta slíkar upp- hæðir að setja þurfi á sérstakan skatt til að bera kostnaðinn? Höfundur er sölu- og markaðsstjóri Iceland Excursions Allrahanda ehf. Rólegan æsing

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.