Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2013, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2013
HEIMURINN
BANDARÍKIN
WASHINGTON
Barack Obama tiforse
varði áform sín um úr
bætur í heilbrigðismál
um með kjafti og klóm
vikunni og lofaði að lá
maþau verða að veruleik
í veg fyrir
og stöðugt
skili milljó
mafíuforin
þremur dö
örlög. Bræð
borgarinna
EN AK
ÍNAÍRÓ
Hundruð manna
ðmu saman til a
vægri
u sem þrír
fengu fyrir
ðga og hryggbrjó
u þStjórnvöld fyri
nirtm
ar í
UR
BORG Lö
leikarinnþví hvers vegna niel H
atriði leikritsins Mary Stuart eftirsig á háls í loka
er. Í stað gervihnífs var hann óvæntFriedrich Schill
íf í höndunum, er persóna hans ámeð alvöruhn
lífi, og var klappað lof í lófaað svipta sig
blóðugur af sviðinu. Hoevelstaulaðist al ði „tilræðið” af þar sem
kki inn að slagæðinni.ð náðivopni e
Málefni kynlifenda hafa verið
ofarlega á baugi í Evrópu á
þessu hausti en fyrir skemmstu
komu þeir saman ásamt vel-
unnurum sínum til mótmæla í
Soho-hverfinu í Lundúnum.
Ástæðan var sú að loka átti
híbýlum sem þeir höfðu til
afnota undir starfsemi
sína. Varð mótmælendum
tíðrætt um öryggi sitt.
„Öryggi kynlif-
endum til handa,“
sagði á einu skilta
mótmælenda. „Eng-
ar vondar konur
bara vond lög,“ sagði
á öðru og á því þriðja
var fullyrt: „Frekar sel
ég líkama minn í Soho en
að selja stórfyrirtæki sálu
mína!“
Kynlifendur í Frakklandi, þaðer að segja þeir sem hafaviðurværi sitt af kynlífs-
þjónustu, eru með böggum hildar
þessa dagana en franska þingið
mun senn taka á dagskrá frum-
varp sósíalista þess efnis að refsi-
vert verði að greiða fyrir slíka
þjónustu. Komu kynlifendur sam-
an til fjöldamótmæla í París í vik-
unni, þar sem sjá mátti slagorð
eins og „vændi er líka vinna“ og
„refsið ekki viðskiptavinunum“.
Óvæntur liðsauki
Kynlifendum bættist óvæntur liðs-
auki í vikunni þegar 343 mennta-
menn sendu frá sér yfirlýsingu í
nóvemberhefti tímaritsins Causeur
þess efnis að þeir áskilji sér rétt
til að festa kaup á kynlífsþjónustu
hvar sem og hvenær sem er.
Meðal þeirra sem leggja nafn
sitt við yfirlýsinguna eru nokkrir
blaðamenn og dálkahöfundar, leik-
arar og spéfuglar, rithöfundurinn
og ritstjórinn Frédéric Beigbeder
og lögmaðurinn Richard Malka
sem frægastur er fyrir að hafa
varið Dominique Strauss-Kahn,
fyrrverandi framkvæmdastjóra Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, fyrir dómi.
Í yfirlýsingunni segir meðal
annars: „Sumir okkar hafa farið,
fara eða eiga eftir að fara til
vændiskvenna – og við skömm-
umst okkar ekki einu sinni.“ Þá
eru þeir þeirrar skoðunar að allir
eigi rétt á því að selja blíðu sína
og „jafnvel njóta þess um leið“.
Uppátæki menntamannanna hef-
ur að vonum mælst illa fyrir með-
al femínista í Frakklandi. Ekki
nóg með að þeim þyki málstað-
urinn vondur heldur segja þeir
hópinn hafa stolið hugmyndinni að
yfirlýsingu sinni frá Simone heit-
inni de Beauvoir, rithöfundinum
og hugsuðinum fræga, en árið
1971 fór hún fyrir hópi kvenna,
343 að tölu, sem krafðist þess að
fóstureyðingar yrðu leiddar í lög.
Af öðrum konum í hópnum má
nefna leikkonurnar Catherine De-
neuve og Jeanne Moreau, sem við-
urkenndu af þessu tilefni það þær
hefðu gengist undir fóstureyðingu
sem á þeim tíma var refsivert í
Frakklandi. Gjörningurinn mæltist
í fyrstu illa fyrir og voru konurnar
úthrópaðar í fjölmiðlum og víðar.
Hann er þó almennt talinn hafa
átt stóran þátt í því að
fóstureyðingar voru leyfð-
ar í landinu fjórum árum
síðar.
Dræsur og delar
De Beauvoir og
stöllur hennar
urðu síðar þekkt-
ar sem „dræs-
urnar 343“ og
menn eru þegar
farnir að kalla
Beigbeder og fé-
laga „delana 343“.
Svona til að bíta höf-
uðið af skömminni.
En það eru ekki
bara femínistar sem hafa risið upp
á afturlappirnar til að mótmæla
uppátæki „delanna“, nokkrir
stjórnmálamenn hafa gert það
líka.
Eigin líkami eða annarra?
Þannig segir Najat Vallaud-
Belkacem, ráðherra kvenréttinda-
mála, að fráleitt sé að bera þetta
tvennt saman. „Dræsurnar 343
báðu um að fá að nota eigin lík-
ama að vild. Delarnir 343 krefjast
þess að fá að nota líkama annarra
að vild,“ segir hún.
Vallaud-Belkacem hefur áður
lýst yfir því að hún vilji banna
vændi, ekki bara í Frakklandi
heldur í gjörvallri Evrópu.
Ætli delarnir hafi þar af leið-
andi gert kynlifendum
bjarnargreiða?
Franski sósíalistaflokkurinn hef-
ur um nokkurra ára skeið haft
það á stefnuskrá sinni að láta
vændiskaup varða við lög. Það
hefur þó verið meira í orði en á
borði – þar til nú að frumvarp
þessa efnis var lagt fram á
þinginu.
Gott eða slæmt að
lögleiða pútnahúsin?
Hægri stjórn Nicolas Sarkozys var
umburðarlyndari í þessum efnum
og árið 2010 hvatti þingmaður
UMP-flokksins, Chantal Brunel, til
þess að rekstur pútnahúsa í land-
inu yrði lögleiddur. Það myndi
stuðla að auknu gagnsæi og ör-
yggi í faginu. Ritaði hún meira að
segja heila bók um málið, „Bind-
um enda á ofbeldi í garð kvenna“.
Leiddi bókin til snarprar umræðu
í Frakklandi, þar sem vændis-
konur lögðust óvænt gegn hug-
myndum Brunel á þeim forsendum
að þær hefðu frelsisskerðingu
fyrir þær í för með sér.
Það er ýmist í ökkla eða eyra.
„Vændi er
líka vinna“
FRAKKAR ÍHUGA NÚ AÐ GERA VÆNDISKAUP REFSIVERÐ
KYNLIFENDUM OG NOTENDUM ÞJÓNUSTUNNAR TIL MIK-
ILLAR ARMÆÐU. AÐKOMA „DELANNA 343“, SEM SVO ERU
NEFNDIR, AÐ MÁLINU ÞYKIR MEÐ FÁDÆMUM ÓSMEKKLEG.
Mótmælt
í Soho.
SELJA FREKAR LÍKAM-
ANN EN SÁLINA
Kynlifendur mótmæla í París. „Skækjur án kúnna sækja um störf í stjórnsýslunni,“ stendur á rauðu skiltunum.
AFP
* Ég er þeirrar skoðunar að kynlíf sé ein fallegasta, eðli-legasta og mest gefandi athöfn sem hægt er að kaupa.Bandaríski kvikmyndaleikarinn Steve Martin. AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is