Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2013
L
ára Rúnarsdóttir, tón-
listarkona og verðandi
kynjafræðingur, vann í
sumar að rannsókn þar
sem hún kortlagði
stöðu kvenna í tónlist. Þar kemur
fram að konur standa höllum fæti á
öllum sviðum, hvort sem er við að
skapa tónlist,
flytja hana, spila á
útvarpsstöðvum,
stjórna útgáfu-
málum og þar
fram eftir göt-
unum.
Rannsóknin var
styrkt af nýsköp-
unarsjóði náms-
manna og Félagi
íslenskra hljómlistarmanna. Lára
kynnti rannsóknina með erindi á
Þjóðarspeglinum, ráðstefnu í fé-
lagsvísindum, sem haldin var fyrir
stuttu ásamt Gyðu Margréti Pét-
ursdóttur, lektor í kynjafræði.
Rannsókn Láru sýnir fram á það að
karlmenn eru í miklum meirihluta
meðal þeirra sem starfa innan tón-
listargeirans á Íslandi.
Engin gögn til
Tímabilið sem Lára skoðaði í rann-
sókn sinni nær frá september til
desember árin 2010, 2011 og 2012.
Þegar tónlistargagnrýni er skoðuð
kemur í ljós að gagnrýnendur
platnanna voru aðallega karlar.
Eins eru plöturnar sem gagnrýndar
eru með kaörlum í töluverðum
meirihluta. Hins vegar er ekki hægt
að bera mun á umfjöllun og gagn-
rýni tónlistarkarla og tónlistar-
kvenna saman við útgefnar plötur á
árunum þar sem hvergi eru til ná-
kvæmar tölur yfir útgefnar plötur
frá ári til árs.
„Gögnin eru ekki til. Þegar ég
kynnti FÍH rannsóknina var talað
um að það væri kominn nýr gagna-
grunnur og þar ætti að vera skrá
yfir allar nýjar útgáfur. Hins vegar
er það svo nýtt að ekki er hægt að
líta aftur í tímann,“ segir Lára.
„Mér finnst að það eigi að vera
gagnsæi í þessu. STEF skráir að-
eins verk og kynjaskiptingu þar. Ef
kona kemur að verki er hún skráð,
en þær eru einnig í miklum minni-
hluta þar.“
Einungis er hægt að líta til
Plötutíðinda, rits sem kemur út fyr-
ir jólin og er það yfirlit sem kynnir
útgáfu ársins í tónlist. Allir útgef-
endur hafa aðgang en hver kynning
kostar sitt og því ekki gefið að allir
geti kynnt plötu sína þar. „Helst
eru það stóru útgáfufyrirtækin sem
komast að og er þeim aðallega
stjórnað af körlum.“
Karlar ávallt í meirihluta
Tónlistinn inniheldur mest seldu
plötur landsins og er hann unninn
upp úr sölugögnum verslana sem
selja íslenska tónlist. Þar rata konur
sjaldan inn í efstu 10 söluhæstu
sætin. Árið 2010 áttu 13 konur en
83 karlar plötur í efstu 10 sætum
listans frá september til desember,
ári seinna áttu 18 konur en 73 karl-
ar plötu í efstu 10 sætum listans en
árið 2012 áttu aðeins sjö konur
plötu í einhverju af 10 efstu sætum
listans en 52 karlar. Lagalistinn er
á svipuðum nótum en hann er inni-
heldur mest spiluðu lögin á Íslandi
og er unninn upp úr helstu útvarps-
stöðvunum. Farið er yfir sama tíma-
bil og var gert á Tónlistanum. Árið
2010 voru fjórar konur en 56 karlar
með lag á listanum, 10 konur en 47
karlar árið 2011 og þrjár konur en
53 karlar árið 2012.
KÍTÓN hefur áhrif
„Konur eru ekki víða þegar kemur
að stjórnum og félögum í íslenskri
tónlist. Til að mynda er engin kona í
stjórn STEF og ÚTÓN sem bæði
eru lykilfélög í íslenskri tónlist-
arsenu. En með tilkomu KÍTÓN
finnst mér að FÍH og fleiri séu að
átta sig á þessu og vera tilbúnir að
berjast með okkur.“ Lára er ein af
fjórum konum sem stofnuðu Félag
kvenna í tónlist eða KÍTÓN á þessu
ári og situr hún í stjórn ásamt átta
öðrum konum. „Í félaginu sitja um
200 konur í dag og er það sífellt að
vaxa,“ segir Lára.
Hún segir næsta skref hjá félaginu
vera að opna augu fólks fyrir þessari
miklu kynjaskekkju innan greinar-
innar. „Okkur fannst vanta einhver
gögn til að vísa í þar sem við fundum
fyrir miklum mun á kynjum í tónlist-
ariðnaðinum og er rannsóknin til-
komin vegna þessa. KÍTÓN hefur
líka skapað mikla vitund meðal
kvenna um að koma frekar inn í ým-
is ráð og félög á vegum tónlistar. Ég
held að það verði breyting á næstu
árum og að þetta nái að leiðréttast
aðeins með tilkomu þessarar vitund-
arvakningar.“
Lára segist nokkuð viss um að
kynjaskekkjan liggi í grunninum, í
uppeldinu. „Mér finnst mikilvægt að
kennslu í kynjafræði verði komið fyr-
ir á öllum skólastigum og þar verði
fræðsla um staðalímyndir og kyn-
ímyndir, sérstaklega til þess að fólk
sé meðvitaðara um þetta og hvaða
afleiðingar þetta hefur. Það er
grundvöllur að jafnrétti,“ segir Lára.
Til að uppræta kynjaskekkjuna sé
mikilvægt að viðurkenna þau áhrif
sem menningarlegur mismunur og
úreltar staðalímyndir og kynímyndir
hafi á stöðu kvenna í íslenskri tónlist.
Hljómsveitin Mammút er
m.a. skipuð flottum stelpum
sem spila á ýmis hljóðfæri.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hallar verulega á konur
í íslenskri tónlistarsenu
LÁRA RÚNARSDÓTTIR
VANN AÐ RANNSÓKN UM
STÖÐU KVENNA Í TÓNLIST
EN ÞAR ER KYNBUNDINN
MUNUR GRÍÐARLEGUR.
HÚN SEGIR MIKILVÆGT AÐ
ALLIR TAKI HÖNDUM
SAMAN TIL AÐ UPPRÆTA
ÚRELTAR STAÐALÍMYNDIR.
Gagnrýnendur á Morgunblaðinu
Tónlistargagnrýni september-desember 2010-2012
Gagnrýnendur á Fréttablaðinu
16 karlar
4 konur
8 karlar
0 konur
48
plötur eftir tónlistarkarla
21
plata með
hljómsveit með
a.m.k. einni konu
innanborðs
39
plötur með
hljómsveitum
eingöngu
skipuð
karlmönnum
Fréttablaðið
123 umfjallanir
Morgunblaðið
159 umfjallanir
15 plötur eftir
tónlistarkonur
26
plötur með
hljómsveit
með a.m.k.
einni konu
innanborðs
15 plötur eftir
tónlistarkonur
62
plötur eftir
tónlistarkarla
56
plötur með hljóm-
sveitum eingöngu
skipuð karlmönnum
Plötur í
Plötutíðindum:
26 plötur eftir konur
95 plötur eftir karla
Lára
Rúnarsdóttir
Engin gögn eru til um útgefnar plötur. Ekki var því hægt að bera saman umfjöllun við útgefnar plötur
undanfarin ár. Plötutíðindi eru eina viðmiðið en þar er öllum frjálst að tilkynna útgáfu sem kostar þó sitt.
* Ég held að það verði breyting á næstu árum og að þettanái að leiðréttast aðeins með tilkomu þessarar vitund-arvakningar. Lára RúnarsdóttirÞjóðmálGUNNÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR
gunnthorunn@mbl.is