Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2013 HEIMURINN SÍLE SANTIA 47% atkvæ Síle. Þar se meirihluta sem andst Matthei, frambjóða miðstjórnar landsins frá 2006 til 2010.Vins Bachelet fékk meirihl að knýja fram stjórn LÍBANON BEIRÚT murfit 23 létu líMinn ráð Íransengjuárásumsjálfsmorðsspr a, sem tengjastítpó ur súnnBeirút. Líbansku aeda, lýstimtökunum al-Qhryðjuverkasa kari tilræð-eábyrgð á hendu r burt fráum kölluðu Íran ý d forseta í borgarastríðS rlandi. Íranar LA er að 4 ar hrundi í Riga, höþak stórmarkað ngin er ný og eru grunsemd-Lettlands. Byggi hafi verið á svig við bygging-ir um að farið Hafin er rannsókn á málinu.arreglugerðir. nskæðasta slysið í landinu fÞetta er man ékk sjálfstæði 1991, að sögnþví að það f lstu fréttastofu landsins. M AIÐ- BA GU bá brigð dstjórnval a u umAfríkulýðveldin m viðværu í viðræðu Jos rsprakka utins, sem var st nda fyrir rúmum r þekktur fyrir a fram íþræum, gera þau að milljónumfa hkja að gefate Viswanathan Anand varð fyrst heimsmeistari árið 2000 þegar skákheimurinn var klofinn og meistararnir voru tveir. Hann varð aftur heims- meistari 2007, þá óumdeildur, og hefur haldið titlinum þar til nú. Anand nýtur mikillar virð- ingar á Indlandi og þykir einn fremsti íþróttamaður þjóð- arinnar. Hann varð heims- meistari unglinga 17 ára og stórmeistari 18 ára. Anand er 43 ára og munar 21 ári á honum og Carlsen. Anand þykir hafa dalað og er nú í áttunda sæti ELO- stigalistans. Þegar úr- slitin voru ljós baðst Anand afsökunar á frammistöðu sinni. Norksi skákmaðurinn SvenMagnus Øen Carlsen varkrýndur heimsmeistari í skák í gær, föstudag, eftir að hann hafði gert jafntefli í tíundu einvíg- isskákinni við Indverjann Visw- anathan Anand. Norðmenn hafa verið límdir við skákirnar, sem tefldar voru í Chennai á Indlandi, heimabæ Anands, og norskir vef- miðlar slógu fréttinni upp. „Magnus konungur,“ sagði í fyrirsögn á vef- síðu norska blaðsins VG. Var þegar farið að tala um að þetta væri eitt mesta íþróttaafrek í norskri sögu. Norska undrabarnið Ferill Carlsens er einstakur. Hann er aðeins 22 ára gamall og næst- yngsti heimsmeistari sögunnar. Að- eins Rússinn Garrí Kasparov var yngri þegar hann varð heimsmeist- ari 1985 og munaði bara nokkrum vikum. Carlsen varð heimsmeistari í hraðskák fyrir fjórum árum og hef- ur undanfarin þrjú ár verið efstur á stigalista Alþjóðaskáksambandsins. Hann var 19 ára þegar hann náði efsta sæti listans 2010 og sá yngsti, sem það hefur gert. Í fyrrahaust náði hann því að vera með fleiri ELO-skákstig, en nokkur skákmeistari hafði áður náð og er nú með 2.870 stig. Á undan honum hafði Kasparov verið með flest ELO-stig, 2.851. Kasparov náði því hins vegar ekki fyrr en 1999 þegar hann hafði teflt fimm heims- meistaraeinvígi. Carlsen er fyrsti Vesturlandabú- inn, sem nær heimsmeistaratitl- inum, frá því að Bobby Fischer sigraði Borís Spasskí í Reykjavík 1972. „Magnus skaust upp á topp stiga- listans nánast án hlés og hefur sam- kvæmni og seigla, sem er fágæt hjá ungum skákmönnum, farið saman við takmarkalausa hæfileika hans,“ skrifaði Kasparov, sem þjálfaði Carlsen árið 2009, í blaðið Business Insider fyrr í þessum mánuði. „Ég er ekki skeggjaður Dumbledore, en það var útilokað annað en að sjá í Magnusi nokkurs konar Harry Pot- ter, dreng með ofurhæfileika, sem fyrir ætti að liggja að verða einn af þeim bestu og skilja eftir rækilegt mark (eldingu?) á hinum forna leik.“ Carlsen lærði að tefla af föður sínum og stóð vart út úr hnefa þegar hann var far- inn að sýna snilli sína. Tveggja ára hafði hann lagt allar bíltegundir á minnið og lært utan að nöfnin á öllum sveitarfélögum Nor- egs, fána þeirra og stjórnarsetri. Samkeppni við eina af eldri systrum hans kveikti áhugann á skák fyrir alvöru og átta ára tók hann þátt í fyrsta skákmótinu. Árið 2004 urðu tímamót. Þá sigr- aði hann Anatolí Karpov, fyrrver- andi heimsmeistara, knúði fram jafntefli við Kasparov og tryggði sér stórmeistaratitil. Það ár tefldi Carl- sen á Íslandi og aftur 2006. Eru nú vonir bundnar við að hann tefli með sveit Noregs á Íslandi 2015 þegar Evrópumót landsliða verður haldið og jafnvel á 50 ára afmæli Reykja- víkurmótsins á næsta ári. Bágt með að tapa og vinna Dagblaðið Washington Post sagði eitt sinn að Carlsen væri „Mozart skákarinnar“. Hann hefur verið fyr- irsæta og komst á lista tímaritsins Time yfir 100 áhrifamestu ein- staklinga heims 2013. Carlsen kveðst hafa tvo veikleika. Hann eigi bágt með tap og sigra. „Þú getur ekki verið númer eitt í heiminum og átt gott með að tapa,“ sagði hann við blaðamenn í Ósló í október. „Ég á ekki heldur gott með að sigra. Ég reyni að velta andstæðingum mínum ekki upp úr því. Nema þeir eigi það skilið, vita- skuld.“ Carlsen var kominn með sex vinninga á móti þremur vinningum Anands þegar þeir settust að tafli í gær og þurfti því aðeins jafntefli. Anand reyndi hvað hann gat, en niðurstaða var á endanum jafntefli. „Vishy hefur verið heimsmeistari mjög lengi og er einn af þeim bestu,“ sagði Carlsen brosandi eftir sigurinn á hinum fimmfalda heims- meistara. „Það var mér heiður að tefla heimsmeistaraeinvígið við hann. Og ég er mjög, mjög glaður yfir því að hafa sigrað hann.“ Carlsen og Anand skipta með sér 2,24 milljóna dollara (273 milljónum króna) verðlaunafé. Carlsen fær 60% fjárins og Anand 40%. Magnus Carlsen er kóngurinn MAGNUS CARLSEN GERÐI SÉR LÍTIÐ FYRIR OG SIGRAÐI Í HEIMSMEISTARAEINVÍGINU VIÐ VISHY ANAND, FIMM- FALDAN HEIMSMEISTARA. YFIRBURÐIR CARLSENS HAFA VERIÐ MIKLIR UNDANFARIN ÁR. Vishy Anand FARSÆLL FERILL Magnus Carlsen brosir á blaðamannafundi í Chennai á Indlandi eftir að hafa sigrað Viswanathan Anand í einvíginu um heimsmeistaratitilinn í skák. Carlsen sigraði í þremur skákum, gerði jafntefli í sjö og þurfti aldrei að játa sig sigraðan. AFP *Magnus skaust upp á topp stigalistans nánast án hlés og hefursamkvæmni og seigla, sem er fágæt hjá ungum skákmönnum,farið saman við takmarkalausa hæfileika hans. Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák. Alþjóðamál KARL BLÖNDAL kbl@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.