Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Síða 9
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
H
andboltakappinn og
rithöfundurinn
Bjarni Fritzson og
Kristín Tómasdóttir
rithöfundur gáfu
nýlega út bókina Strákar. Bókin er
hugsuð sem leiðarvísir og uppfletti-
rit fyrir stráka um allt mögulegt.
„Fyrir rúmu ári hafði Kristín sam-
band við mig og sagði mér frá þess-
ari hugmynd. Hún spurði hvort ég
væri til í samstarf með henni því
hún var að leita að einhverjum til að
skrifa strákabók. Þetta kom alveg
flatt upp á mig þar sem ég er ekki
þekktur fyrir skrif en ákvað að kýla
á þetta. Ég sagði nú samt við hana
að ef ég væri hræðilegur í þessu
mætti hún bara finna einhvern ann-
an,“ segir Bjarni og hlær. „Þetta er
hagnýt strákabók með upplýsingum
sem snertir stráka um mjög margt.
Þetta er líka hvatningarbók og ein-
blíndum við á að hafa hana létta og
skemmtilega en á sama tíma fræð-
andi og áhugaverða. Það eru til að
mynda svör við spurningum þarna
sem strákar eru ekki vanir að
spjalla um en skipta engu að síður
miklu máli. Bókin er ætluð til að
leita að lausnum og leiðum varðandi
ýmislegt sem strákum finnst óþægi-
legt að spyrja foreldra sína að eða
sem er óþægilegt að ræða um í
vinahópnum.“
Fáir sem spjalla
við strákana
Í bókinni koma fyrir ýmsir þjóð-
þekktir einstaklingar og afreksmenn
sem gefa góð ráð eða innsýn í
hvernig hlutirnir hafi verið þegar
þeir voru unglingar sjálfir og fleira.
Má þar nefna Ólaf Stefánsson hand-
boltastjörnu, Alfreð Finnbogason
landsliðsfótboltamann, Loga Berg-
mann fréttamann, Jón Gnarr borg-
arstjóra, Pál Óskar söngvara og
Guðmund Jörundsson fatahönnuð.
„Við eigum svo mikið af flottum
karlkyns fyrirmyndum á fjöl-
breyttum sviðum sem ungir strákar
geta litið upp til.“
Bjarni segir að það hafi verið þörf
á bók sem þessari. Mikið sé rætt við
stelpur um alls kyns mál sem tengj-
ast þessu mikilvæga tímabili en
strákarnir hafi aðeins verið settir til
hliðar. „Það vantar algjörlega að
vinna með strákum og leggja meiri
áherslu á það sem þeir þurfi að
læra og gera. Mér finnst þessi þjóð-
félagshópur hafa verið skilinn eftir.
Það er mikið talað um stráka og oft
um hvað þeim gangi illa í skóla og
hvað þeir séu nú ofvirkir og slíkt en
svo eru hrikalega fáir sem tala eitt-
hvað við þá. Það þarf að vinna með
þeim að einhverjum lausnum og
leiðbeina þeim,“ segir Bjarni en
hugmyndin að bókinni snerti hann
persónulega. Hann hefur lengi haft
áhuga á stöðu stráka bæði í sam-
félaginu og í skólum. „Ég ætlaði að
skrifa lokaverkefnið í sálfræði um
stráka í skólum, þannig að þetta var
mjög skemmtileg tilviljun þar sem
ég hafði svo mikinn áhuga á þessu
persónulega. Þetta hitti því vel á,“
segir Bjarni en hann er með BSc
gráðu í sálfræði og lýkur meistara-
gráðu í félags- og vinnusálfræði í
sumar.
Mæta í skóla og
spjalla við krakka
Bjarni og Kristín hafa tekið upp á
því að mæta í skóla og spjalla við
krakkana, Kristín við stelpurnar og
Bjarni við strákana. Viðbrögðin hafa
verið mjög góð. „Síðastliðna tvo
mánuði höfum við verið að fara í
skóla til að halda fyrirlestra og
spjalla við krakkana. Kennararnir
koma og tala um það að það vanti
einhvern til að tala um stráka og
hefur því verið tekið vel í þetta. Það
er meira framboð á því að spjalla
við stelpur en mikilvægt að opna
umræðuna fyrir strákum.“
Bjarni Fritzson býr á Akureyri þar sem
hann þjálfar unga handboltakappa. Hér
er hann með strákunum sínum tveimur,
Baldri Fritz 6 ára og Bjarti Fritz 3 ára.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
MARGAR FLOTTAR KARLKYNS FYRIRMYNDIR
Strákar
sitja oft á
hakanum
MIKIÐ ER TALAÐ UM STRÁKA SEM ERU AÐ VAXA
ÚR GRASI OG KOMAST Á UNGLINGSÁR EN OF LÍTIÐ
ER TALAÐ VIÐ ÞÁ. BJARNI FRITZSSON VILL LEGGJA
FRAM LEIÐBEININGAR OG LAUSNIR TIL STRÁKA SVO
ÞEIR VERÐI EKKI ÚTUNDAN Í SAMFÉLAGINU.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Kristín Tómasdóttir rithöfundur hefur áður skrifað bækur fyrir stelpur.
Morgunblaðið/Eggert
Haustfundur Jarðhitafélags Íslands í samstarfi við Íslenska orkuháskólann
í Háskólanum í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 26. nóvember kl. 14.
EINFÖLDUN REGLUVERKS
JARÐHITANÝTINGAR
DAGSKRÁ
14:00 Setning fundarins
Bjarni Pálsson, formaður Jarðhitafélags Íslands,
deildarstjóri virkjanadeildar Landsvirkjunar
14:10 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
14:30 Inngangsorð fundarstjóra
Halla Hrund Logadóttir, framkvæmdastjóri Íslenska orkuháskólans
14:40 Regluverk jarðhitanýtingar
Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR
15:00 Kynning á starfi starfsskilyrðahóps Jarðvarmaklasans
Auður Andrésdóttir, sviðsstjóri, umhverfi og öryggi, Mannviti
15:30 Lokaorð fundarstjóra og fundarslit
15:40 Kaffiveitingar
Staður: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1, stofa M101.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis