Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 10
Félag íslenskra náttúrufræðinga Félag íslenskra náttúrufræðinga, skammstafað FÍN, var stofnað af nokkrum náttúrufræðingum árið 1955. FÍN er eitt af stærstu aðildarfélögum Bandalags háskólamanna (BHM) sem eru heildar- samtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði. Alls starfa rúm30% félagsmanna FÍN á almennummarkaði og tæp 70% á opinberum markaði, þ.e. hjá ríkinu, sveitar- félögum, sjálfseignastofnunum og öðrum sem hafa gert kjarasamninga við FÍN sem byggja á ríkissamningum. Hlutverk félagsins er að stuðla að samvinnu og samheldni náttúrufræðinga á Íslandi og að bæta markvisst kjör félagsmanna sinna. Félagið annast gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína sem félags- menn greiða atkvæði um. Aðild að FÍN er háð ákveðnum skilyrðum samkvæmt lögum félagsins. Þeir geta orðið félagsmenn í FÍN sem hafa lokið bachelor-prófi eða sambærilegri menntun í náttúrufræðum, arkitektúr eða öðrum tengdum greinum frá háskóla eða hliðstæðum menntastofnu- num. Nemar í náttúrufræðum, arkitektúr eða öðrum tengdum greinum geta sótt um aukaaðild að félaginu þegar þeir hafa lokið a.m.k. eins árs háskólanámi og ráðnir eru til tímabundinna faglegra starfa. Aukaaðild veitir full félagsréttindi önnur en kjörgengi. Umsókn um aðild að félaginu skal vera skrifleg og hægt er að senda inn umsókn í gegnum heimasíðu félagsins www.fin.is, ásamt afriti af prófskírteinum. Stjórnarmenn og trúnaðarmenn FÍN eru mjög virkir í félaginu, en stjórn félagsins hittist mánaðarlega og trúnaðarmenn og stjórn tvisvar á ári. Félagið er skipað 20 stjórnarmönnum og af þeim skipa 5 stjórnarmenn framkvæmdastjórn félagsins. Formaður FÍN heimsækir árlega alla vinnustaði þar sem 5 eða fleiri félagsmenn starfa, en félagsmenn eru út um allt land. Á vinnustaða- fundnum fer formaður yfir kjaraumhverfi náttúru- fræðinga, launaþróun og ýmis réttindamál. Félagið hefur mótað sér stefnu til ársins 2017 og er hún aðgengileg á heimasíðu félagsins. Í þessari stefnu hefur stjórn dregið upp mynd af félaginu eins og stjórn- endur FÍN vilja sjá stöðu félagsins árið 2017, unnið er markvisst að og samkvæmt þessari framtíðarsýn. FÍN er umhugað að veita persónulega, faglega og góða þjónustu. Félagið veitir margskonar aðstoð og ýmsa þjónustu. Þar má nefna að félagið aðstoðar félags- menn við að ná fram rétti sínum ef ekki er staðið við gerða samninga. Félagið kemur ekki beint að persónu- bundnum ráðningarsamningum, en leiðbeinir félags- mönnum um það sem betur má fara í ráðningarsamningi. Félagið aðstoðar félagsmenn sína við að undirbúa sig undir launaviðtal. Á skrifstofunni eru þrír starfsmenn í fullu starfi, sem aðstoða félagsmenn FÍN og veita þeim persónulega ráðgjöf sé eftir því leitað. Formaður FÍN er Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri FÍN er Maríanna H. Helgadóttir og móttöku- og skjalafulltrúi FÍN er Margrét Rafnsdóttir. Hafið samband við félagið í síma 5955175 eða sendið tölvupóst á netfangið fin@bhm.is ef þú vilt panta viðtal við formann eða framkvæmdastjóra félagsins. Félag íslenskra náttúrufræðinga er stéttarfélag og er fyrsti kostur náttúrufræðinga hvort sem þeir starfa á opinberum eða almennum markaði. Við hvetjum félagsmenn okkar og aðra sem hafa áhuga á félaginu að heimsækja heimasíðu félagsins www.fin.is en þar eru ýmsar upplýsingar um stéttarfélagið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.