Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2013 Ferðalög og flakk Kvöldið hefur sigið yfir borgina og við kauphöllina í Marseille snýst hringekjan inn í nóttina. Þ vílík kúvending. Fyrir rúmlega tutt- ugu árum ók ég inn í miðborg Mar- seille, höfuðstaðar Suður-Frakk- lands, og þessi víðáttumikla hafnar- borg kom mér nákvæmlega eins fyrir sjónir og mig grunaði fyrirfram. Sú mynd var vissulega undirbyggð af kvikmyndum á borð við The French Connection, sem fjallaði um sannsögulegt fíkniefnasmygl í borginni, þar sem ekkert er dregið úr því ofbeldi og glæp- unum sem eiga sér þar stað, en miðborgin var líka skítug og einhvern veginn úr sér gengin. Bryggja við bryggju, bátar og skip af öllum stærðum og hafið úti fyrir vissulega blátt og fagurt, en uppi á landi voru líka all- ar þesar skemmur og hús í niðurníðslu, um- ferðarhnútar og bílflaut, og hávært fólk á hraðri ferð um götur. Þá stoppaði ég stutt við og langaði ekkert að vera lengur. Í ná- grenninu voru aðrar borgir að skoða, minni og áhugaverðari, og svo hið undursamlega hérað Provence allt um kring, ilmandi af sögu, góðum mat og þeim svalandi vínum sem það er þekkt fyrir. Um daginn átti ég aftur erindi til Mar- seille og komst að því að stórfurðuleg breyt- ing hefur átt sér stað. Miðborgin er beinlínis orðin heillandi; gaman að vafra þar um og margt við að vera. Hvernig má það vera, á ekki lengri tíma en þetta? Meginástæðan, segja heimamenn, er að Marseille er önnur tveggja menningarborga Evrópu í ár. Hin er Kosice í Slóvakíu. Og heimamenn tókust á við verkefnið af fítonskrafti. Ráðist var í að hreinsa eldri og sögufrægar byggingar í miðborginni, og í dag glóa þær í sólskininu í mismunandi blæbrigðum gula kalksteinsins sem kemur úr nálægum námum. Megin- höfnin var lagfærð og er í dag sneisafull af fögrum skemmtibátum af ólíkum stærðum; við þessa höfn blómstra síðan stórir sem smáir veitingastaðir og verslanir. Marseille er byggð á talsvert bröttum hæðum sem síga niður að hafinu og efst á þeim standa forn virki, kastalar og fagrar kirkjur; allar eru þessar byggingar lýstar upp þegar húm- ar og auka við fegurð borgarmyndarinnar. Eftir verslunargötunum milli hæðanna renna nýtískulegir sporvagnar og á morgnana er líflegur fiskmarkaður við aðalhöfnina. Söfn, matarmenning og fótbolti Breskur blaðamaður, sem átti erindi til borgarinnar um leið og ég, dvelur oft í Pro- vence, þar sem fjölskylda hans á sér afdrep, en hann hafði einungis gert sér eina ferð inn til þessa höfuðstaðar. Það var ekki já- kvæð upplifun, sagði hann. En nú horfði hann undrandi í kringum sig og eftir að hafa kynnst nýjum söfnum og menning- arstofnunum, sem opnaðar hafa verið í til- efni menningarársins, tók hann upp símann og hringdi í eiginkonu sína heima í York. „Nú komum við saman hingað til Marseille næsta sumar, það er engin spurning,“ til- kynnti hann henni. Þarna væri margt að skoða og greinilega hægt að gera vel við sig í mat og drykk. Eflaust gerist enn margt misjafnt í skúmaskotum Marseille-borgar; enda er þarna inngangurinn í Frakkland af Miðjarð- arhafinu, gríðarlegur inn- og útflutningur, og mannlífið fjölbreytilegt. Þetta mannlíf við Miðjarðarhafið, og saga þess, er líka hyllt í hinu stórglæsilega nýja safni MuCEM sem stendur við sjóinn og tengist Saint-Jean- virkinu með langri göngubrú. Safnið var opnað í júní og hefur gríðarlegt aðdráttarafl; fjórum mánuðum eftir opnun höfðu milljón gestir skoðað það. Fleiri forvitnileg söfn eru þarna að skoða og þegar knattspyrnu- tímabilið stendur yfir er líka mikil upplifun að fara á leik með heimaliðinu, Olympique de Marseille, í hinni risastóru Stade Vélo- drome; þar hafa gert garðinn frægan leik- menn á borð við Didier Drogba, Jean-Pierre Papin og Didier Deschamps, en sá síðast- nefndi þjálfaði síðar liðið og stýrði því til meistaratitils fyrir þremur árum. Hvar sem áhugi ferðalanga liggur er margt að skoða og upplifa í Marseille, ekki síður en í hinu undursamlega héraði Pro- vence allt um kring. En það er önnur saga. MARSEILLE ER ÖNNUR TVEGGJA MENNINGARBORGA EVRÓPU Hamskiptin NÝ GLÆSILEG SÖFN OG MENNINGARMIÐSTÖÐVAR, FAGRAR FLEYTUR, UPPLÝST VIRKI OG KIRKJUTURNAR, REISULEGAR BYGGINGAR Í GULUM LITATÓNUM. MARSEILLE, ÞESSI BORG Í SUÐUR-FRAKKLANDI, SEM HEFUR VERIÐ ÞEKKT FYRIR SITTHVAÐ MISJAFNT, HEFUR TEKIÐ BREYTINGUM. Texti og myndir: Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is * „Um daginnátti ég afturerindi til Marseille og komst að því að stórfurðuleg breyt- ing hefur átt sér stað. Miðborgin er beinlínis orðin heillandi …“ Tignarleg dómkrikjan, Catédrale de la Major, rís upp ur gamla hverfinu við höfnina. Kaffihús götunnar eru ómissandi í mannlífinu í borgum Frakklands. Þar sýnir fólk sig, og sér aðra. Í Provence hafa listamenn málað; Cézanne og Van Gogh þar á meðal, og er verk sporgöngumanna víða að finna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.