Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 24
* H jónin Linda Mjöll Stefánsdóttir leikmyndahönnuður og Daníel Hjörtur Sigmundsson myndhöggvari hófu samstarf árið 2010, stuttu eftir að þau kynntust. Þau unnu saman að hönnun gisti- húss í Keflavík þar sem mestallur efniviður var endurnýttur. Þar hélt tilhugalífið áfram að vissu leyti og þau léku sér að því að flétta saman hugmyndir. „Bæði útlit og kostnaður bar þess vitni að hér vorum við að uppgötva listræna og umhverfisvæna hugsun sem ætti sér sterkan grunn. Í kjölfar þess að gistiheimilið var opnað og að því streymdu ferða- menn sem voru uppveðraðir af þessari hugsun og þeirri stefnu sem við vorum að rækta, tókum við þá ákvörðun að taka þessa orku áfram.“ Ósvikin og ótamin hönnun Með hugtakinu endurvinnslu sóttust Linda og Daníel eftir því að vekja áhuga á meðvituðum lifnaðarháttum, án þess þó að gagnrýna það sem var eða er, heldur að vekja nýja möguleika. „Stefnunni okkar fylgir einnig sú hvatning að þú takir sjálfur þátt í því að skapa þitt umhverfi, það að vera virkur í þínum veruleika,“ segir Linda Mjöll sem telur það einnig nauð- synlegt að við endurskoðum okkar neyslu á fjölbreyttan máta. Markmið Krukku er að endurheimta sannleika efniviðar eða opna nýtt flæði inn í rými eða landsvæði. Það markmið næst með því að ná að skila heilsteyptri hönnun sem er ósvikin og umfram allt ótamin. Linda og Daní- el segja það jafnframt mikilvægt að geta leitt saman sköpunarleiðir sínar sem hjón og fjölskylda. Vinnan fyrir Hjallastefnuna endalaust ævintýri Krukka hefur unnið að fjöldamörgum verkefnum og hlaut hönnunarteym- ið Nýsköpunarverðlaunin 2012 fyrir kollinn Hnall sem er unninn úr end- urunnu efni og er seldur í versluninni Aurum. Rýmishönnun er einnig stór hluti af verkefnum Krukku og hafa þau meðal annars hannað versl- unarrými, veitingastaði og leikskóla. „Vinnan fyrir Hjallastefnuna er að sjálfsögðu endalaust ævintýri, við sjáum viðbrögð barnanna daglega og þá í líkamlegri tjáningu og gleði sem og orðum. Foreldrar og kennarar tala óspart fallegum orðum um hvaða áhrifum þau verða fyrir í okkar umhverfi. Viðburðir eins og til að mynda Bryggjusprell á sjómannadaginn, endurspegla strax hvort viðkomandi hópur er snertur af öflugri upplifun og sú helgi við höfnina var vissulega vel heppnuð.“ Krukka vinnur nú að hönnun útisvæðis hjá Hjallaskóla Garðabæjar og Hafnarfjarðar. „Við höfum verið að flytja heimili og vinnustofur yfir á Kjalarnesið og í því felst sú ósk að gerast meira sjálfbær, tengjast betur landinu og hlusta á Esjuna. Það mun ýmislegt vaxa út frá þessum flutn- ingum,“ segir Linda að lokum og bætir við að ef unnið er út frá grunn- orku sem er heil, kraftmikil og tengd persónulegu markmiði af einlægni þá eru möguleikarnir óendanlegir. Hjónin segja fátt skemmtilegra en að skapa fyrir börn. Kofi á lóð Hjallastefnuleikskólans Laufásborgar. Fallegur bekkur úr endurunnum við á leikskóla. Verk Krukku til sýnis í Hörpu á Hönnunarmars 2012. ENDURHEIMTA SANNLEIKA EFNIVIÐAR Óendanlegir möguleikar KRUKKA ER ÍSLENSKT HÖNNUNARTEYMI SEM LEGGUR UPPÚR ENDURNÝTINGU EFNIVIÐAR. KRUKKA DÆMIR EFNI SEINT ÚR LEIK, HELDUR FINNUR ÞVÍ ANNAÐ HLUTVERK OG GILDI Í NÚINU. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Linda Mjöll og Davíð segja það hvatningu að taka þátt í því að skapa eigið umhverfi. Linda og Daníel hlutu nýsköpunarverðlaunin 2012 fyrir kollinn Hnall. Theodóra Mjöll, höfundur Lokka, segir að heimilið eigi að gefa frá sér jákvæða og hlýlega orku »26 Heimili og hönnun

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.