Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Síða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Síða 27
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 – fyrir lifandi heimili – AVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJAVÍK G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0 VERTU MEÐ OKKUR Á KOMDU Í HÖLLINA EÐA HEIMSÓTTU OKKUR Á HUSGAGNAHOLLIN.IS F yrst og fremst hef ég áhuga á því að svala sköp- unarvitleysunni í mér og langar öllum stundum að vera að búa eitthvað til hvort sem það er mynd- efni, hár, vörur, matur eða teikningar,“ segir Theodóra sem er hárgreiðslusveinka, vöruhönnunarnemi í pásu frá skóla og höfundur bókanna Hárið, Innblástur og Lokkar. Theodóra er mjög geometrísk og segir að allt sem sé formfast og ákveðið höfði til sín en þó sé hún lítið hrifin af sterkum litum. „Ég vil aðallega að form þess sem ég bæði set inn á heimili mitt og þess sem ég klæðist sé hreint og beint en litirnir í hlutlausari kantinum. Þá er ég mun hrifnari af köldum litum en hlýjum.“ Theodóra sem á bæði eins árs son og tvo hunda segir mikilvægt að heim- ilið bjóði upp á liðleika og leikgleði. „Mér finnst nauðsyn- legt að leyfa þeim sem bæði búa hér og þeim sem koma í heimsókn að líða vel. Heimilið á að ýta undir sköp- unargleðina og gefa frá sér jákvæða og hlýlega orku.“ Innblástur sækir Theodóra í reynslubankann, að vafra á netinu, í náttúruna og í geómetríska hugmyndafræði. „Fyrir heimilið reyni ég að vera trú sjálfri mér og hef farið í mikla naflaskoðun um hvað það er sem mér finnst fallegt og hvað ekki. Ég er mjög gjörn á að skipta um skoðun og finnst gott að breyta til.“ Morgunblaðið/Kristinn Lyklaskápur sem felur lykla. Skápinn hannaði Theodóra sjálf. Liðleiki og leikgleði THEODÓRA MJÖLL, HÖFUNDUR BÓKARINNAR LOKKA, BÝR Í ÓSKAPLEGA FALLEGRI ÍBÚÐ Í HLÍÐUNUM ÁSAMT EIGINMANNI SÍNUM EMIL, SYNINUM ÓLÍVER OG TVEIMUR HUNDUM. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Stofan er björt og hlýleg og þar ver fjölskyldan mest- um tíma saman. HEIMILIÐ Á AÐ ÝTA UNDIR SKÖPUNARGLEÐINA Vogin er gamall erfðagripur sem hefur fylgt fjölskyldunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.