Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Síða 39
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Þ að er alltaf dálítið djöf- ullegt þegar martraðir lífs manns verða að raun- veruleika … Svona áður en ég fer lengra vil ég taka það fram sérstaklega að þessi martröð er ekki ein af „stóru áföllunum“ í lífinu en getur engu að síður sett allt úr skorðum hjá einhleypum konum á fertugsaldri. Að týna snyrtibuddunni svona rétt fyrir mesta kokkteilboðamánuð ársins er ávísun á vesen svo ekki sé minnst á hvað það er kostn- aðarsamt. Þetta hefði alls ekki verið svona mikið vesen fyrir áratug. En eftir að vinnan og móðurhlutverkið fóru að ryksuga upp allan frítíma, stressið jókst og áhyggjurnar urðu meiri þarf konan oft á öllum leyni- trixunum að halda til þess að geta hreinlega mætt sjálfri sér í spegl- inum. Ég veit ekki alveg hvað þetta er með mig og martraðir lífs míns en þeim rignir dálítið yfir mig þessa dagana. Það er ekki langt síðan hin martröð lífs míns helltist yfir mig í bókstaflegri merkingu. Ég hef lengi óttast það að kveikt yrði á Vitamix-blandaranum án þess að lokið væri á. Á dögunum var ég að útbúa desert fyrir litlu mons- urnar (syni mína) sem samanstóð af AB mjólk, döðlu og frosnu mangói. Eitthvað varð yngri mons- an óþolinmóð og fannst þetta ekki ganga nógu hratt fyrir sig og kveikti á græjunni með þeim af- leiðingum að allt innihald bland- arans endaði uppi á eldhúsveggj- unum hjá okkur … og svo fór þetta að leka niður á gólf. Ég gleymi seint skeifunni sem kom á litlu monsuna þegar hann áttaði sig á því hvað hann hefði gert … en af því hann á svo þroskaða og vel inn- réttaða móður þá setti hún upp sparibros, tróð sér í bleika gúmmí- hanska og byrjaði að þrífa (og svo má ekki gleyma því að hún er mjög heppin að hafa ekki runnið til í AB mjólkinni og handleggsbrotnað). En hvað gera konur þegar þær týna snyrtibuddunni sinni? Jú, þær fara inn í bað- skápana og reyna að finna eitthvað sem þær geta notað í staðinn? Jú, jú, ég fann litað dag- krem, serum og alls konar augn- skugga og því var ekkert annað í stöðunni en að klína þessu framan í sig. Þegar ég var búin að setja þetta á mig fannst mér ég alveg vera í toppmálum. Á leiðinni í vinn- una fór mér að hitna verulega í kinnunum en ég lét það ekki á mig fá og keyrði beinustu leið upp í Há- degismóa. Þegar ég var komin í vinnuna þurfti ég að fara á snyrt- inguna eins og gengur og gerist hjá fólki og álpaðist til að líta í spegil. Það var einmitt á því augnabliki sem sjokkið kom. Serumið hafði líklega ekki passað við litaða dag- kremið og svo hafði ég bókstaflega klínt þessu framan í mig (sem er ekki vandað). Augnskugginn sem ég bar á mig með gömlum augn- skuggapensli hafði séð til þess að augnskugginn var eiginlega allur hruninn niður á kinnar. Ég var því svolítið eins og sebrahestur með glóðarauga. Við tóku miklar æfingar við að reyna að ná þessu af með vatni og bréfþurrku – sem ég mæli ekkert sérstaklega með. Þetta versnaði eiginlega um helming með þeim gjörningi. Eftir vinnu fór ég beinustu leið og keypti Primer, til að fylla upp í hrukkurnar og léttan frúarfarða, ferskjulitaðan kinnalit og brún- brons vatnsheldan blýant sem þol- ir allt … táraflóð, sundferðir og allt þar á milli. Það veitir víst ekki af því ef martröð- unum heldur áfram að rigna yfir mig. Amen. martamaria@mbl.is Ég keypti mér dásamlegt meik frá By Terry sem fæst í Madison ilm- húsi til þess að komast út úr húsi. Martraðir á færibandi Maskari frá Make Up Store. Eitt af því fyrsta sem ég keypti var ferskju- litaður kinnalitur frá Make Up Store. Olivia Newton John var alltaf svo vel máluð á áttunda áratugnum. Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land. Háralitir fyrir konur sem velja náttúrulegan háralit og hárið glansar af heilbrigði • Inniheldur ekki Paraben, algengasta innihaldsefni sem veldur ofnæmisáhrifum í háralitun • Hylur grá hár 100% • 24 náttúrulegir háralitir • Hárlýsingarlitur (strípuefni) plasthetta og hárpinni innifalin • Náttúrulegar jurtir sem gefa hárinu gljáa og mýkt • Varanlegur háralitir sem helst fallegur í 3 mánuði • Ofnæmisprófaður • Íslenskar leiðbeiningar Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Heimahornið, Stykkishólmi Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum | Palóma, Grindavík | Skóbúðin, Keflavík

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.