Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Qupperneq 61
2012/2013
Liverpool 0:0 Everton
Everton 2:2 Liverpool
2011/2012
Liverpool 2:1 Everton *
Liverpool 3:0 Everton
Everton 0:2 Liverpool
2010/2011
Liverpool 2:2 Everton
Everton 2:0 Liverpool
2009/2010
Liverpool 1:0 Everton
Everton 0:2 Liverpool
2008/2009
Everton 1:0 Liverpool *
Liverpool 1:1 Everton *
Liverpool 1:1 Everton
Everton 0:2 Liverpool
2007/2008
Liverpool 1:0 Everton
Everton 1:2 Liverpool
2006/2007
Liverpool 0:0 Everton
Everton 3:0 Liverpool
2005/2006
Liverpool 3:1 Everton
Everton 1:3 Liverpool
2004/2005
Liverpool 2:1 Everton
Everton 1:0 Liverpool
2003/2004
Liverpool 0:0 Everton
Everton 0:3 Liverpool
2002/2003
Everton 1:2 Liverpool
Liverpool 0:0 Everton
* Bikarleikur
VIÐUREIGNIR
SÍÐUSTU TÍU ÁR
LIVERPOOL OG EVERTON HAFA SPILAÐ 199 LEIKI SÍN
Á MILLI. LIVERPOOL HEFUR UNNIÐ 76, EVERTON 60.
tveggja liða hefur orsakað jafn mörg rauð spjöld. Alls hafa dómarar
rifið upp rauða spjaldið 26 sinnum og það töluvert oft undanfarin ár.
Stjórar þessara liða eru reyndar ekkert þekktir fyrir að spila grjót-
harðan gamlan enskan fótbolta. Þeir vilja frekar spila boltanum og
halda honum innan liðs í staðinn fyrir að henda sér í tæklingar. Það
er enginn að fara að sjá gamla góða rifrildið á milli Graeme Souness
og Peters Reid. Lucas er ekkert að fara rífa kjaft við Leon Osman.
Dagar naglanna eru liðnir því miður og inni á vellinum, hvaða velli
sem er, eru 22 leikmenn sem henda sér niður við minnstu snertingu
og heimta gul spjöld á mótherjann.
Misjafnt landsleikjahlé
Þetta verður fyrsti grannaslagur Roberto Martinez, knattspyrnu-
stjóra Everton, en lið hans hefur unnið fimm af fyrstu ellefu leikj-
unum undir hans stjórn. Liðið er þremur stigum frá Liverpool sem
er í öðru sæti deildarinnar en þeir rauðklæddu geta skotist á topp-
inn með sigri, tímabundið þó.
Landsleikjahléið fór ekki vel með
flesta Liverpool-menn. Besti leik-
maður liðsins, Luis Suarez, skaut
Úrúgvæ á HM í vikunni og kom
ekki til baka úr landsliðsverkefninu
fyrr en á föstudagsmorgun. Þá er
Daniel Sturridge tæpur en hann lék
í 90 mínútur gegn Þjóðverjum á
Wembley. Steven Gerrard var sprautaður fyrir leikinn en lék samt í
55 mínútur. Allir eru þeir meira en lykilmenn Liverpool. Þeir eru
hjartað, heilinn og sálin í þessu liði.
Einn maður þó er með sjálfstraustið í botni þessa dagana en það
er varnartröllið Sakho frá Frakklandi. Sá ákvað að skora tvö mörk
og tryggja Frökkum farseðil til Brasilíu á heimsmeistaramótið. Hann
er orðinn þjóðhetja í Frakklandi og fara menn fögrum orðum um
þennan risa. Brendan Rodgers breytir helst ekki sigurliði og Liver-
pool spilaði vel gegn Fulham í síðustu umferð.
Helst hausverkur Rodgers verður að velja mann til að kljást við
Romelou Lukaku. Daniel Agger og Martin Skrtel lenda oft í vand-
ræðum með líkamlega sterka framherja, en Kolo Toure og Sahko
eru sjálfir naut að burðum. Lukaku gerði nánast grín að Agger og
Skrtel á síðustu leiktíð og ekki mál gleyma því, hann er orðinn
betri.
Everton er með gott lið sem gæti gert atlögu að efstu sex sæt-
unum í deildinni. Þeir fengu tvo feikilega öfluga leikmenn, Lukaku
og Gareth Barry, að láni sem hafa reynst þeim vel. Varnarlínan er
öflug þó Seamus Coleman sé þeirra veikasti hlekkur en miðjan er
góð og sóknarleikurinn byggist á Lukaku og Ross Barkley.
Frábær sjónvarpsleikur
Fótboltinn sem spilaður er þessar 90 mínútur er ekki á rómantísku
nótum – langt í frá. Það er enginn að fara að sjá einhvern afburða-
fótbolta með flottu spili og mörgum mörk í þessum leikjum. Inni á
vellinum er það baráttan og harkan sem heltekur alla leikmenn og
úr verður einn allra skemmtilegasti leikur sem hægt er að horfa á.
En hækkandi miðaverð og sú staðreynd að leikurinn fer yfirleitt
fram í kringum hádegið hefur aðeins dregið úr sjarmanum yfir þess-
um leik. Samt, montrétturinn á heilli borg er undir og alveg ljóst að
ekkert verður gefið eftir.
* … leikurinnstundumkallaður vinalegi
borgarslagurinn …
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár