Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Page 64
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2013 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Fáðu Vodafone Guardian Ókeypis snjallsímaforrit fyrir alla foreldra í Google Play Vodafone Guardian Fáðu einfalt og ókeypis snjallsímaforrit sem hjálpar foreldrum að tryggja að börn noti snjallsíma á skynsamlegan hátt. Fæst fyrir Android síma á Google Play. Vodafone Góð samskipti bæta lífið Samsung Galaxy Young 19.990 kr. 1.890 kr. á mánuði Greiðsludreifing í 12 mánuði Samsung Galaxy Fame 24.990 kr. 2.790 kr. á mánuði Greiðsludreifing í 12 mánuði Samsung Galaxy Ace 2 34.990 kr. 3.290 kr. á mánuði Greiðsludreifing í 12 mánuði Elísabet Englandsdrottning og Filippus prins heimsóttu í vik- unni Southwark-dómkirkjuna í Lundúnum til þess að skoða steindan glugga sem íslenski glerlistarmaðurinn Leifur Breið- fjörð gerði í tilefni af sextíu ára valdaafmæli Elísabetar. Leifur sigraði í samkeppni sem efnt var til um gerð gluggans til heiðurs Elísabetu í kringum valdaafmæli hennar. Glugginn var vígður formlega sunnudaginn 3. júní en þá helgi voru mikil hátíðahöld í Bretlandi til heiðurs drottningunni. El- ísabet hafði ekki séð gluggann með eigin augum og þótti mikið til koma. Leifur lagði áherslu á að glugginn tengdist kirkjunni og not- aði því sama handverk og á miðöldum en elsti hluti kirkjunnar er frá þrettándu öld. Leifur er brautryðjandi í íslenskri glerlist og er þekktur hérlendis sem og erlendis. Elísabet Englandsdrottning heimsótti Southwark-dómkirkjuna í Lundúnum til þess að skoða glugga eftir Leif Breiðfjörð. AFP ELÍSABET ENGLANDSDROTTNING Hreifst af verki Leifs Elísabet og Filippus prins virða fyrir sér glugga Leifs sem sést í bakrunni. AFP Stórleikarinn Tom Hanks veitti öðrum stórleikara, Steve Martin, sérstök heiðursverðlaun á Gover- nors Awards-hátíðinni í vikunni. Hanks stóðst ekki mátið og reif upp símann og smellti af svokall- aðri bolamynd af þeim félögum. Björgvin Halldórsson söng lagið eftirminnilega Bolur inn við bein en orðið bolur þýðir samkvæmt slangurorðabók Snöru: „Upp- haflega notað um fólk sem gengur í bolum sem það fær gefins frá fyr- irtækjum.“ Eftir að snjallsímar komu á markaðinn hefur orðið bolamynd komið inn í íslenska tungu þegar fólk smellir af mynd af sér með frægum einstaklingi. Hanks er töluvert virkur á sam- félagsmiðlunum Twitter og In- stagram og rataði myndin af þeim félögum einmitt þarna inn og fékk góðar viðtökur. Eftir myndina afhenti Hanks verðlaunin og sagði af því tilefni að myndir Martins væru tímalausar og hægt að horfa á þær aftur og aftur og aftur. Martin þakkaði pent fyrir sig; „Ég get ekki lýst því hvað ég er stoltur og glaður – aðallega vegna þess að nýjasta bótox ígræðslan hefur ekki gróið.“ FURÐUR VERALDAR Bolur inn við bein Tom Hanks og Steve Martin brosa í snjallsíma Hanks á verðlaunahátíð í Hollywood í vikunni þar sem Martin fékk sérstök heiðursverðlaun. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Birgir Ísleifur tónlistarmaðurIvan Blasi sýningarstjóriFriðrik Dór söngvari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.