Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.iswww.facebook.com/solohusgogn
Eldhúsborð og stólar
Íslensk hönnun í gæðaflokki
Hönnuður:
Sturla Már Jónsson
Hönnunarverðlaun 2013 (húsgagn kki)
Aria
Nýja Aría borðalínan fékk
Hönnunarverðlaun FHI 2013 í
húsgagnaflokki. Borðin eru fáanleg
í mismunandi stærðum og útfærslum.
Verð frá kr. 91.000
Almar stóll, verð frá 34.000
Máni
Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum
stálkanti og harðplastlagðri plötu.
Stærð og litur að eigin vali.
Verð frá kr. 85.000
E60 stóll, verð frá 24.300
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Við ákvörðun á aflamarki í Austur-
Atlantshafs-bláuggatúnfiski koma í
hlut Íslands rúmlega 30 tonn á
næsta ári, en í ár veiddist túnfiskur
hvorki á línu né stöng hér við land.
Hins vegar fengust tæplega fjögur
tonn af túnfiski sem meðafli á mak-
rílveiðum í ár.
Austur-Atlantshafsstofn bláugga-
túnfisks er heldur talinn hafa rétt úr
kútnum og er ákvörðun um 13.400
tonna heildaraflamark á næsta ári í
samræmi við álit vísindamanna, að
sögn Brynhildar Benediktsdóttur,
sérfræðings í auðlindanýtingu í at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt-
inu. Túnfiskur er víða eftirsóttur og
hátt verð fæst fyrir bestu vöruna á
mörkuðum, einkum í Japan.
Fjölmennasta fiskveiðinefndin
Atlantshafstúnfiskveiðráðið, IC-
CAT, fjallar um veiðar á túnfiski allt
frá suðurodda Afríku norður fyrir
Ísland, en einnig í innhöfum eins og
Miðjarðarhafi og Svartahafi. 47
þjóðir eiga aðild að ráðinu og er það
sennilega fjölmennasta fisk-
veiðinefnd sem starfar í heiminum
og hagsmunir þjóðanna mjög mis-
munandi.
Ráðið fjallar ekki aðeins um
bláuggatúnfisk, heldur einnig um
aðrar túnfisktegundir og stofna sem
falla undir tegundir langförulla og
stórra uppsjávarfiska, sem fara yfir
margar lögsögur. Einnig er verk-
efnið að fjalla um veiðar á ýmsum
meðaflategundum, s.s. hákörlum og
háfum, en þrýstingur hefur verið á
að banna veiðar á nokkrum þeirra,
vegna þess að stofnarnir eiga undir
högg að sækja.
Víða tíðkast að veiða hákarl, skera
og hirða af honum uggana til súpu-
gerðar, en henda fiskinum sjálfum
aftur í sjóinn. Bann við slíkum veið-
um var ekki samþykkt, m.a. vegna
þess að það var talið tæknilega erfitt
í framkvæmd. Hér við land er
óheimilt samkvæmt lagaákvæðum
um brottkast að henda veiddum fiski
aftur í sjóinn.
Vildu banna sölu á hámeri
Hvorki hefur verið rætt um að
banna veiðar á háfi né Græn-
landshákarli á vettvangi ráðsins, að
sögn Brynhildar. Hins vegar var
rætt um bann við að hafa um borð,
landa eða selja hámeri, en tillaga
þess efnis náði ekki fram að ganga.
Íslendingar hefðu ekki getað fram-
fylgt slíku banni þar sem hámeri
kemur sem meðafli í veiðum við
landið og bannað er að henda afla
eins og áður segir. Samkvæmt tillög-
unni hefðu þær þjóðir sem banna
brottkast því þurft að banna beinar
veiðar á hámeri, sem og sölu hámer-
arafla.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Fiskistofu hafa verið veidd 5,8 tonn
af háfi í ár, 619 kíló af hámeri og rúm
6 tonn af hákarli, en lítið er um að
stundaðar séu beinar veiðar á há-
karli hér við land.
Bláuggatúnfiskur
að rétta úr kútnum
Rúm 30 tonn í hlut Íslands á næsta ári Þrýstingur
á að banna veiðar á nokkrum tegundum hákarla
Morgunblaðið/Golli
Stórfiskur Bláuggatúnfiskur verkaður í Norðurfiski á Akranesi. Fiskurinn
vó hvorki meira né minna en 200 kíló. Hátt verð fæst fyrir túnfisk.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
leitar ökumanns sem ók utan í níu
ára gamla stúlku á Eiríksgötu í
Reykjavík á þriðja tímanum í gær-
dag. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bíl
sinn til að kanna líðan stúlkunnar
heldur hraðaði sér af vettvangi.
Stúlkan slasaðist á handlegg í
ákeyrslunni.
Hún var flutt á slysadeild Land-
spítalans og var haft samband við
forráðamenn hennar.
Ók á barn og stakk af
Níu ára stúlka slasaðist á handlegg
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Menn eru að þreifa fyrir sér varð-
andi framkvæmd kjarasamnings.
Menn hafa unnið að textagerð og
hvernig skuli vinna að næsta kjara-
samningi á samningstíma þessa
samnings,“ segir Björn Snæbjörns-
son, formaður Starfsgreinasam-
bandsins, um stöðu kjaraviðræðna.
Samninganefnd Starfsgreinasam-
bandsins kemur saman í dag og segir
Björn að rætt verði um framhaldið.
„Það er verið að
skoða málin.
Maður veit það
eftir fundinn
hverju fólk er að
velta fyrir sér.
Þetta verður
stuttur samning-
ur. Menn hafa
verið að greina
stöðuna. Menn
eru ekki komnir í
neina launaumræðu.“
Fram kemur á vef Alþýðusam-
bands Íslands að samninganefndir
landssambanda og félaga innan ASÍ
fari nú yfir þær hugmyndir sem hafa
verið ræddar innan samninganefnd-
ar ASÍ og í samskiptum við Samtök
atvinnulífsins um nýjan samning.
„Ef baklandið gefur grænt ljós á
áframhaldandi vinnu á þeim grunni
má búast við að viðræður við SA fari
á fulla ferð seinni hluta vikunnar og
að þá hefjist jafnframt viðræður um
launaliði,“ segir á vef ASÍ.
Spurður um líkur á því að grænt
ljós fáist á framhald viðræðna segir
Björn það munu skýrast í dag.
En skyldu boðaðar aðgerðir í
skuldamálum hafa áhrif í þessu efni?
„Því hef ég ekki trú á. Þetta er já-
kvætt en það eru margir sem fá ekk-
ert út úr þessu og svo eru menn ekki
að tala um neinar stórkostlegar upp-
hæðir í komandi samningum. Útspil-
ið í skuldamálum þýðir ekki að menn
fari að gefa afslátt í kjarasamnings-
gerðinni. Þetta er jákvætt innlegg en
breytir engu varðandi viðræðurnar.“
Aðildarfélög
ASÍ funda um
kjaraviðræður
Björn
Snæbjörnsson
Framhaldið ræðst í dag