Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Munið að
slökkva á
kertunum
Kerti úr sama
pakka geta
brunnið mis-
munandi hratt
og á ólíkan hátt
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
„Þetta leit út eins og atriði í bíó-
mynd,“ segir Einar Símonarson, íbúi
við Hraunbæ, í samtali við mbl sjón-
varp. Nágrannar byssumannsins í
Árbæ vöknuðu á mismunandi tímum
við hvelli og sumir sváfu lítið um
nóttina. Margir tengdu hljóðin við
það að verið væri að sprengja kín-
verja eða skjóta flugeldum úti á bíla-
stæði.
Sigurður Stefánsson segir að sér
hafi brugðið þegar hann sá sérsveit-
ina ryðjast inn í íbúð mannsins og
áttað sig á því að hann hefði verið að
skjóta út úr íbúðinni. „Ég var ekki
mikið við gluggann eftir að ég fattaði
að verið væri að skjóta út af svöl-
unum,“ sagði Sigurður við mbl sjón-
varp.
Forðaði sér frá glugganum
Einn nágranni sem vildi ekki láta
nafns síns getið sagði við mbl.is í
gærmorgun að maðurinn hefði kom-
ið heim með miklum látum um
klukkan ellefu á sunnudagskvöldið,
greinilega ölvaður. „Hundurinn
vakti mig klukkan hálfeitt þegar ég
var alveg að sofna, hann gelti við
fyrsta skothvellinn. Ég hélt fyrst að
þetta hefði verið árekstur,“ sagði ná-
granninn en honum kom ekki dúr á
auga alla nóttina.
Hann sagði að skotið hefði verið
út á bílaplan. Lögreglan hefði haft
mikinn viðbúnað. Nágranninn segist
hafa verið afar hræddur. „Ég viður-
kenni alveg að ég grét þegar ég
heyrði fyrstu hvellina.“
Þór Hauksson, sóknarprestur í
Árbæ, sagði í gærmorgun að margir
íbúar í næsta nágrenni við atburði
næturinnar væru í áfalli. Hann kom
því á framfæri að íbúar hverfisins
gætu komið til kirkjunnar og fengið
áfallahjálp. Einhverjir hefðu kosið
að hringja og aðrir lagt leið sína í
kirkjuna.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hleypti af haglabyssu Rúður voru brotnar í íbúð mannsins í gærmorgun eftir umsátur lögreglunnar við Hraunbæ.
Eins og atriði úr bíómynd
Nágrannar vöknuðu upp við hvelli Brá þegar þeir sáu
viðbúnað lögreglu og áttuðu sig á því að skotið var úr byssu
Forstofa
Stofa
Bað
Svefnherbergi
Eldhús
Svalir
Stigapallur
Stigi
ATH. Staðsetning húsgagna á teikningunni er ekki endilega rétt.
Hraunbær 20
Sérsveit ríkislögreglustjóra sem
stofnuð var fyrir rúmum þrjátíu ár-
um hefur aldrei áður þurft að grípa
til þess neyðarráðs að beita skot-
vopnum á vettvangi, þó svo hún
hafi margoft verið kölluð til í þeim
tilgangi að yfirbuga menn, ýmist
vopnaða skot- eða eggvopnum.
Hins vegar kom fram í máli Jóns
Bjartmarz, yfirmanns sérsveit-
arinnar, á blaðamannafundi vegna
lögregluaðgerðarinnar í Árbæj-
arhverfi, að sérsveitin hafi áður
skotið gasi í aðgerðum sínum.
Sérsveitin hefur alloft verið köll-
uð sérstaklega til á síðustu árum.
Rifjuð eru upp nokkur tilvik í frétt
á mbl.is í gær. Sérsveitin fór með
þyrlu á Barðaströnd á árinu 2009
þegar maður gekk berserksgang,
vopnaður skotvopni. Í nóvember
var hún kölluð til þegar maður með
lambhúshettu, vopnaður hagla-
byssu, bankaði upp á í húsi í Selja-
hverfi í Reykjavík aðfaranótt
sunnudags. Talið er að húsráðandi
hafi lokað dyrunum þegar hann sá
byssumanninn en hann skaut þá
fjórum til fimm skotum í útidyra-
hurðina og í glugga við hlið hennar.
Á aðfangadag 2010 var sérsveitin
kölluð til eftir að skotið hafði verið
úr haglabyssu á hurð við Ásgarð í
Bústaðahverfi. Árásin var talin
tengd átökum í undirheimum borg-
arinnar. Sama ástæða var talin fyr-
ir skotárás í Bryggjuhverfinu í nóv-
ember 2011.
Sérsveit oft kölluð til aðstoðar
Morgunblaðið/Rósa Braga
Vakt Lögreglumenn að störfum við blokkina við Hraunbæ í gærmorgun.