Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 19
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Atburðir helgarinnar eru bylmingshögg fyrir Vodafone sem það mun ekki hrista af sér í bráð. Fjárfestar kunna því illa þegar mikil óvissa umlykur fyrirtæki á markaði, segir sér- fræðingur við Morgunblaðið. Bréf félagsins féllu um 12% í gær og nemur markaðsvirðið 8,9 milljörðum króna. Sagt er að lækkunin sé býsna mikil og eigi sér ekki hliðstæðu frá því að hlutabréfamarkaðurinn var endurreistur. Annar bendir á að margir fjárfestar og sér- fræðingar á markaði hafi ekki vitað hvernig þeir ættu að bregðast við tíðindum helgarinn- ar vegna þess að um sé að ræða atburð sem eigi sér ekki fordæmi. Aðfaranótt sl. laugardags var brotist inn á heimasíðu Vodafone, þaðan var gögnum stolið og þau gerð opinber á vefnum. Meðal þeirra voru 79 þúsund SMS-skeyti, notendanöfn og lykilorð að Mínum síðum og upplýsingum um nöfn og kennitölur tiltekinna viðskiptavina. Trúnaðarbrestur Ljóst er að mikill trúnaðarbrestur hefur orðið á milli viðskiptavina og fyrirtækisins vegna lekans. Augu margra munu beinast að hve marga og hve umsvifamikla viðskiptavini fyrirtækið mun missa á næstu misserum. Við- mælendur blaðsins segja að mikil samkeppni ríki á fjarskiptamarkaði og auðvelt sé fyrir viðskiptavini að skipta við annað fyrirtæki. Sérfræðingar fullyrða að samkeppnisstaða Vodafone hafi minnkað verulega til skemmri tíma og að það hafi orðið fyrir miklum álits- hnekki. Trúverðugleiki fyrirtækisins og við- skiptasamband við viðskiptavini hafi skaðast. Gengi félagsins á markaði hefur sveiflast mikið frá því það var skráð í Kauphöllina í desember. Hlutabréfin hafa fallið um 30% miðað við hæsta og lægsta gengið frá skrán- ingu. Frá því í lok maí tók gengi Vodafone að lækka og það náði sér ekki á strik fyrr en á seinni hluta september. En frá þeim tíma og fram að helginni höfðu bréfin hækkað um 20%. Sérfræðingar á markaði rekja það til þess að síðustu tvö uppgjör, og þá sérstaklega nýjasta uppgjörið fyrir þriðja ársfjórðung, þykja góð. IFS greiningar sagði að það nýrra væri „dúndurgott“. Slæmur tími fyrir byltu Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, sagði í tilkynningu með uppgjörinu að fjárhagsstaða Vodafone væri afar sterk. „Eiginfjárhlutfallið hefur aldrei verið hærra, handbært fé hefur aldrei verið meira og skuldsetning félagsins er hófleg,“ sagði hann. Sumum þykir að umrætt bylmingshögg hafi komið á óþægilegum tíma. Fjárfestar séu til- tölulega nýlega farnir að öðlast aftur tiltrú á félaginu og það styttist í að móðurfélag Sím- ans verði skráð í Kauphöllina. Aðspurður hve- nær það yrði sagði Orri Hauksson, nýráðinn forstjóri Skipta móðurfélags Símans, í opnu- viðtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins á fimmtudaginn: „Það er ekki búið að ákveða neitt á þessu stigi – það gæti orðið eftir tólf eða átján mánuði – en ég held að það sé ljóst að það verði að minnsta kosti innan næstu þriggja ára.“ Bylmingshögg fyrir Vodafone Morgunblaðið/Rósa Braga Traust? Vodafone varpar ljósi á að það leggur ríka áherslu á traust í veggskreytingum.  Vodafone mun ekki hrista af sér í byltuna í bráð  Gengið féll um 12% í gær og markaðsvirðið er nú 8,9 milljarðar króna  Samkeppnisstaða fyrirtækisins og samband við viðskiptavini hefur skaðast LV er stærstur » Velta með hlutabréf Vodafone námu 211 milljónum króna í gær. » Lífeyrissjóður verslunarmanna er stærsti hluthafi Vodafone með 13,1%, Gildi kemur næstur á eftir með 9,3% og svo MP banki með 8,7% hlut. » Í apríl mánuði 2013 seldi Framtaks- sjóður Íslands (FSÍ) 20% hlut sinn í fé- laginu. Þegar félagið var skráð í dsem- ber 2012 nam eignarhlutur FSÍ 79,7%. » Gengi Vodafone var að ná sér á strik eftir að hafa lækkað töluvert þeg- ar fregnir helgarinnar felldu gengið aftur. FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Presonus heimastúdíó 39.990 FenderCD60 þjóðlagagítarm. stillitæki DVDo.fl. frá 26.990 Klassískir gítarar frá 18.990 Landsinsmesta úrval af trommusettumYAMAHAHljómborð frá 39.990 Blásturshljóðfæri fráYAMAHAogOdyssey

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.