Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Bæjarstjórinn á Blönduósi, Arnar Þór Sævarsson, hefur
átt í óformlegum viðræðum við stórfyrirtæki víða um
heim, þar á meðal í Bandaríkjunum og Evrópu, um
byggingu gagnavers á Blönduósi. Í samtali við Morg-
unblaðið segir hann að nokkur fyrirtæki hafi heimsótt
Blönduós og kannað aðstæður en ekkert sé þó fast í
hendi.
Hann segir jafnframt að Finnar og Svíar hafi á sein-
ustu árum laðað til sín stórfyrirtæki á borð við Face-
book, Google og Microsoft sem hafi reist þar gagnaver.
„Forsvarsmenn Facebook skoðuðu það árið 2011 að
reisa gagnaver hér á landi en kusu að lokum að fara til
Svíþjóðar,“ segir hann. Var gagnaverið opnað í Luleå í
norðurhluta Svíþjóðar í sumar sem leið.
Eins og fram kemur hér til hliðar hafði fyrirtækið
Greenstone í hyggju að reisa gagnaver á Blönduósi en
féll frá áformum sínum í fyrra. Arnar Þór segir að sveit-
arfélagið hafi átt í samstarfi við Íslandsstofu um að
markaðssetja Ísland, og þá sér í lagi Blönduós, sem fýsi-
legan kost fyrir gagnaversiðnað. „Við teljum okkur vera
með góða vöru í höndunum – staðsetninguna – og menn
vita af okkur,“ bendir hann á.
Kostirnir margir
„Við erum búin að skipuleggja, í aðalskipulaginu,
rúmlega 270 hektara land undir starfsemi af þessu tagi.
Það er líka stutt í Blönduvirkjun, hér er kalt og gott loft
og góðar raforku- og ljósleiðaratengingar eru fyrir
hendi,“ segir hann um kosti þess að reisa gagnaver á
svæðinu. Sveitarfélagið hafi lagt mikla vinnu í að laða er-
lend fyrirtæki að og láti engan bilbug á sér finna, þrátt
fyrir að Greenstone hafi hætt við áform sín. „Við höld-
um bara okkar striki. Við höfum ekki gefist upp og
munum halda áfram að kynna svæðið sem fjárfest-
ingarkost,“ segir hann.
Það er mat Arnars Þórs að ekki hafi verið nóg
gert til að laða hingað erlenda fjárfesta. Gjald-
eyrishöftin séu til dæmis þrándur í götu nýrra
fjárfestinga og markaðssetningin ekki nægi-
lega markviss. „Finnar og Svíar hafa náð
mjög góðum árangri í markaðssetningu og
hafa laðað til sín fjölmörg fyrirtæki. Við
þurfum að læra af þeim,“ segir hann.
Bæjarstjórinn á Blönduósi hefur átt í óformlegum viðræðum við erlend stórfyrirtæki um byggingu
gagnavers „Við höfum ekki gefist upp“ Facebook íhugaði það árið 2011 að reisa hér gagnaver
Enn bjartsýnn á að gagnaver rísi
„Við erum búnir að selja miða á ell-
efu tónleika,“ sagði Bragi Valdimar
Skúlason, liðsmaður í hljómsveitinni
Baggalúti. Uppselt er á átta tón-
leika í Háskólabíói. Auk þess verða
þrennir tónleikar á Akureyri og þar
ku vera örfáir miðar í boði.
Miðar á ferna jólatónleika Bagga-
lúts í Háskólabíói fóru í sölu í sept-
ember og seldust upp fyrir hádegi
sama dag. Þá var bætt við tvennum
tónleikum sem einnig seldust upp
og voru settir á tvennir tónleikar til
viðbótar og miðar á þá kláruðust
einnig. Tónleikaröðin hófst í gær í
Háskólabíói. Um næstu helgi verða
þrennir tónleikar í Hofi á Akureyri
og svo aftur fernir tónleikar í Há-
skólabíói 20. og 21. desember.
„Það væri mjög gott fyrir okkur
ef það væri hægt að bæta við einni
helgi í aðventuna,“ sagði Bragi
Valdimar. Þetta er áttunda árið sem
Baggalútur heldur jólatónleika og
það fjórða sem þeir eru í Háskóla-
bíói. Þar áður voru þeir í Borgar-
leikhúsinu, tvisvar í Salnum í Kópa-
vogi og einu sinni í Iðnó. Bragi
Valdimar sagði ljóst af vinsældum
tónleikanna að dæma að það væri
spurn eftir jólaálfunum í Baggalúti.
Nýjasta plata Baggalúts, Mamma
þarf að djamma, er nú í efsta sæti
íslenska plötulistans. „Við reynum
að taka eitthvað af henni, svo erum
við með jólalag sem við gerðum í
fyrra,“ sagði Bragi um efnisskrána.
„Svo er alltaf háleynilegur leyni-
gestur. Laddi var með okkur í
fyrra, Megas hefur líka verið með
okkur. Það er spurning hver verður
í ár. Við erum bara kátir með
þetta.“
Auk Braga skipa Baggalút þeir
Guðmundur Kristinn Jónsson, Guð-
mundur Pálsson og Karl Sigurðs-
son. Einnig kemur að tónleikunum
valið lið hljóðfæraleikara, tækni-
manna, sviðshönnuða og ljósameist-
ara. gudni@mbl.is
Nær uppselt á
ellefu jólatónleika
Baggalútur Plata þeirra er í efsta
sæti plötulistans um þessar mundir.
Baggalútur nýtur mikilla vinsælda
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Erlendir ferðamenn í norðurljósaleiðangri þurftu að fá
lánaðar húfur í jarðböðunum við Mývatn í gærkvöldi en
aðstæður til baðferða voru með prýðilegasta móti þrátt
fyrir frostið, sem fór í 31 stig á áttunda tímanum. „Það
er fínt að mæta í þessu veðri,“ sagði Birgir Stein-
grímsson baðvörður í gær. „Helvítis vindurinn er óvinur
okkar. Það var hérna norðvestanskítur og lá við að snjó-
aði ísnálum í gær en þetta er í sjálfu sér besta veðrið,“
sagði hann um froststilluna.
25-30 manns lögðu leið sína í jarðböðin í kuldanum
í gær en Birgir segir að aldrei hafi fleiri erlendir ferða-
menn sótt böðin í desember en í ár. „Það er nú eig-
inlega núna í fyrsta skipti sýnist mér, á þessum tíma, að
erlendu ferðamennirnir eru orðnir fleiri en heimamenn
flesta daga,“ segir hann en það komi til bæði vegna
fjölgunar ferðamanna og leti heimamanna við að sækja
böðin í vindsperringnum. Hann segir að heilt á litið
stefni í metfjölda gesta ár, þeir hafi verið í kringum 92
þúsund í fyrra en verði líklega um 104 þúsund á þessu
ári.
Kristján Stefánsson í Stekkholti tekur í sama
streng og Birgir og segir frostið í lagi á meðan ekki
blæs. „Það er þannig að þegar komið er á milli 20 og 30
stiga frost þá er þurrt og yfirleitt stafalogn og þá er
ekkert svo rosalega kalt,“ segir Kristján. „Einu sinni
fór ég úr Mývatnssveit í tæplega 30 stiga frosti og suð-
ur til Reykjavíkur á námskeið sem var á Granda í
þriggja stiga frosti og ég hélt ég dræpist þegar ég kom
þangað,“ segir hann, svo miklu muni um rokið og rak-
ann. Kristján segir haustið í ár hafa verið mun betra en
haustið í fyrra. „Það er bara gott að hafa frost. Það á að
vera vetur þegar er vetur; það er hundleiðinlegt þegar
það er frost einn daginn og hláka hinn,“ segir hann.
Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði frá því á vef-
svæði sínu í gær að fjöldi lágmarkshitameta hefði fallið
á fimmtudag, þeirra á meðal 112 ára gamalt dægurmet í
Reykjavík. Hann segir metin ekki til marks um ákveðna
þróun en þau sýni þó að um alvörukuldakast sé að
ræða. „Ef maður skoðar þessa lista sér maður að þetta
er kannski mesta kuldakastið í desember í fimm til sex
ár,“ segir hann. „Þetta er alveg heiðarlegt kuldakast,“
bætir hann við.
Trausti segir að síðustu ár hafi þó mun fleiri hita-
met fallið en kuldamet en Íslandsmetin í hita og kulda
standi enn: 30,5 stig sem mældust á Teigarhorni í Beru-
firði 22. júní 1939 og -38 stig sem mældust á Gríms-
stöðum og í Möðrudal 21. janúar 1918.
Ferðamenn í jarðböð-
um í 31 stigs frosti
Frostið í lagi ef veður er stillt „Heiðarlegt kuldakast“
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Frost Gestir jarðbaðanna við Mývatn létu kuldann ekki á sig fá en sumir fengu þó lánaða húfu yfir eyrun.
Krafa KPMG um töku bús Green-
stone, sem hætti í fyrra við áform
sín um byggingu gagnavers á Ís-
landi, til gjaldþrotaskipta verður
tekin fyrir næsta miðvikudag í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Greenstone var stofnað af
fyrirtækjunum TCN í Hollandi,
GEO í Bandaríkjunum og Ami-
cus á Íslandi og vann að
því, frá árinu 2008, að
reisa gagnaver hér á
landi. Eftir að hafa
skoðað álitlega staði
víða um land, og rit-
að undir viljayfirlýsingar með fjöl-
mörgum íslenskum sveit-
arfélögum, varð Blönduós fyrir
valinu.
Félagið hætti hins vegar við
áformin á síðasta ári en í samtali
við Morgunblaðið sagði talsmaður
þess, Sveinn Óskar Sigurðsson, að
síðasta ríkisstjórn hefði verið óvilj-
ug að vinna með félaginu.
Að sögn Arnars Þórs var Green-
stone milliliður fyrir bandaríska
risabankann Morgan Stanley sem
hugðist hýsa sín rafrænu gögn í
gagnaverinu.
Tekið til gjaldþrotaskipta
GREENSTONE HAFÐI HÁLEITAR HUGMYNDIR UM GAGNAVER
Arnar Þór
Sævarsson
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL
HORSE SHOW
OF
IC
E
L
A
N
D
Landsmót hestamanna verður haldið á mótssvæði
hestamannafélagsins Geysis á Hellu dagana 30.6–6.7.2014.
Landsmót auglýsir eftir aðilum/fyrirtækjum sem áhuga
hafa á því leigja sölubása á mótinu.
Búast má við allt að 12.000 gestum ámótið.
Landsmót hestamanna er einn stærsti íþróttaviðburður
á Íslandi og er frábær sölugluggi fyrir stóra sem smáa
markaðsaðila og fjölbreyttar stærðir sölubása verða til
leigu.
Á LM 2014 verður lögð áhersla á fjölbreytni, gæði,
snyrtimennsku og þjónustuhraða.
Frekari upplýsingar verða veittar
í gegnum netfangið anna@landsmot.is
___________________________________________________________________________
Landsmót hestamanna, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, landsmot@landsmot.is / www.landsmot.is