Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er mokveiði hérna við ísinn.
Það var ufsi hérna framan af, svo
hefur þetta verið blandað, þorskur,
ufsi og karfi,“ sagði Erling Arnar
Óskarsson, skipstjóri á frystitog-
aranum Baldvini Njálssyni GK-400.
Þeir voru í gær á Halamiðum, um 40
sjómílur norðvestur af mynni Ísa-
fjarðardjúps. Ellefu togarar voru
þar að veiðum í gær.
„Við erum við ísinn og það eru
alltaf einhverjar spýjur að koma. Við
höfum verið í hálfgerðum vandræð-
um út af ísnum. Þetta er búið að vera
erfitt,“ sagði Erling Arnar. Hann
sagði að það sé stöðug hreyfing á
ísnum. Vestlægar áttir voru ríkjandi
í marga daga. Þá var allt lokað á
þessum miðum út af hafís. Í fyrra-
dag skipti um og kom austanátt og
þá opnaðist svæðið um tíma.
„Við erum búnir að vera í darrað-
ardansi hérna,“ sagði Erling Arnar
um slaginn við hafísinn. Hann segir
að þeir séu með góða ískastara til að
nota á nóttinni og eins sjái þeir ísinn
í ratsjá, en ísdreifin er erfið. Hann
vonaðist til að það myndaðist ísrönd
sem hægt væri að treysta.
„Það hefur verið ótrúlega góð
veiði hér á Vestfjarðamiðum þetta
árið,“ sagði Erling Arnar. Hann seg-
ir að þeir fiski ekki meira en vinnsl-
an annar.
„Við reynum að skammta okkur í
vinnsluna til að vera með sem best
hráefni. Það er ekkert í boði að vera
með lélega vöru. Sem betur fer hef-
ur orðið þróun í því og menn ganga
vel um þetta.“ Fiskurinn er flakaður,
roðflettur og frystur í neytenda-
pakkningar sem eru tilbúnar á
markað. Baldvin Njálsson GK er nú
í síðasta túr ársins og er stefnt að því
að hann komi í land 22. desember.
Erling Arnar segir að það sé kom-
in aðventustemning um borð. Búið
er að skreyta borðsalinn og kokk-
urinn fer að bjóða upp á konfekt og
enn betri mat en þær kræsingar sem
venjulega eru þar á borðum.
Mikil hafísmyndun
„Þetta er óvenjulega mikill hafís á
þessum árstíma,“ sagði Ingibjörg
Jónsdóttir, dósent við Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands. Ísinn var í
gær um 20 sjómílur (37 km) frá landi
þar sem næst var. Meðfylgjandi
mynd var tekin úr gervihnetti í
fyrradag, myndir í gær voru ógreini-
legri vegna skýja og myrkurs.
Ingibjörg sagði að afar mikil ís-
myndun hefði átt sér stað á Græn-
landssundi og norðar undanfarnar
vikur. „Innan hafísbreiðunnar eru
borgarísjakar úr Grænlandsjökli og
einnig stórir hafísflekar frá fjörðum
Austur-Grænlands. Næstu daga
ætti ísinn að færast heldur frá landi
en fylgjast verður vel með ísnum á
næstunni vegna sjófarenda.“
Ljósmynd/Guðni Jónsson
Fiskað í hafís Guðni Jónsson, yfirvélstjóri á Baldvini Njálssyni GK, tók mynd af Þerney RE að toga innan um ísinn í
fyrradag. Í baksýn er tignarlegur borgarísjaki sem lónar innan um lagnaðarísinn.
Darraðardans við hafís á Halanum
Hafísinn var um 20 sjómílur frá landi í gær Nú er kominn óvenju mikill hafís miðað við árstíma
Mynd MODIS/NASA greind á Jarðvísindastofnun, lögsögumörk Landmælingar Íslands
Hafísinn Ísinn er um 20 mílur frá landi og kominn inn fyrir lögsögumörkin
sem sýnd eru á myndinni. Mörk hafíssins er teiknuð með hvítri línu.
Samninganefnd Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) ákvað í gær að vísa
kjarasamningsviðræðum til ríkis-
sáttasemjara. SGS hefur ákveðið að
kalla saman aðgerðahóp, en Björn
Snæbjörnsson, formaður SGS, segir
menn þurfa að huga að aðgerðum ef
viðræður dragist framyfir áramót.
Samninganefnd SGS átti fund í
gær með Samtökum atvinnulífsins.
Lítill árangur varð af fundinum.
„Samtök atvinnulífsins vilja ekki
ræða við okkur um krónutöluhækk-
un. Það varð til þess að það slitnaði
upp úr sameiginlegum viðræðum í
gær. Við leggjum áherslu á blandaða
leið, að laun hækki bæði um krónutölu
og um prósentur.
Það kemur okkar
fólki best. Þeir
vilja bara tala um
prósentur og við
erum ekki að tala
um það háar pró-
sentur að hækkun-
in verður lítil þeg-
ar hún leggst við
lægstu launin. Það
ber því of mikið á milli og við viljum fá
einhvern til að stjórna viðræðum,“
sagði Björn í samtali við mbl.is
Björn segir að SGS sé búið að skipa
aðgerðahóp. Hann sé að fara yfir
stöðuna og hvar helstu sóknarfæri
séu í sambandi við aðgerðir ef viðræð-
ur dragist framyfir áramót.
Í tilkynningu frá SGS segir að lögð
hafi verið til blönduð leið og að lægstu
laun myndu hækka um 20.000 krónur.
Því hafi SA hafnað. Í kjölfarið ákvað
samninganefnd Starfsgreinasam-
bandsins að freista þess að fara í við-
ræður við SA í samfloti við önnur
landssambönd undir hatti samninga-
nefndar ASÍ. „Nú er komið í ljós að
SA leggst ennþá eindregið gegn til-
raunum til að hækka lægst launaða
fólkið á vinnumarkaði með krónutölu-
hækkunum og við það getur hvorki
samninganefnd ASÍ né samninga-
nefnd SGS unað,“ segir í tilkynningu.
Viðræður til sáttasemjara
Starfsgreinasambandið vill blandaða leið krónu- og
prósentuhækkunar Lítill árangur af fundi með SA
Björn
Snæbjörnsson
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær að vísa til Alþingis
frumvarpi Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkisráðherra um
breytingu á lögum um nauðung-
arsölu. Frumvarpið er liður í þeim
aðgerðum sem ríkisstjórnin kynnti
um nýliðna helgi vegna skulda-
vanda heimilanna.
Gert er ráð fyrir að tillögurnar
verði komnar til framkvæmda um
mitt árið 2014. Því hefur innanrík-
isráðherra lagt fram frumvarp
sem felur í sér að nauðungarsölum
verður frestað fram yfir mitt
næsta ár. Þannig gefst almenningi
kostur á að meta þau áhrif sem
aðgerðirnar hafa á skuldastöðu
viðkomandi og eftir þörfum óska
eftir því að nauðungarsölu-
aðgerðum verði
frestað fram yfir
1. júlí 2014.
Í tilkynningu
frá innanríkis-
ráðuneytinu er
tekið fram að
frumvarpið feli
ekki í sér sjálf-
virka frestun á
nauðungarsölu,
heldur þurfi
gerðarþoli að óska eftir slíkri
frestun. Stefnt er að því að leggja
frumvarpið fram á Alþingi á
næstu dögum.
Hagsmunasamtök heimilanna
sendu frá sér tilkynningu í gær
þar sem framtaki innanrík-
isráðherra var fagnað.
Nýtt frumvarp frestar
nauðungarsölum í hálft ár
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sakfellt lögreglumann sem var
ákærður fyrir líkamsárás vegna
handtöku á Laugavegi í júlí sl.
Lögreglumaðurinn var dæmdur
til greiðslu 300.000 króna sektar
fyrir að hafa farið offari við hand-
tökuna og beitt meira valdi en
nauðsyn bar til. Hann var jafn-
framt sakfelldur fyrir líkamsárás í
opinberu starfi.
Ríkissaksóknari gaf út ákæru á
hendur lögreglumanninum fyrir
líkamsárás og brot í opinberu
starfi í ágúst sl.
Myndband af lögreglumanninum
handtaka konu í miðborg Reykja-
víkur í júlí fór sem eldur í sinu um
samfélagsmiðla. Í kjölfarið var
hann leystur frá störfum.
Við aðalmeðferð málsins sagði
lögreglumaðurinn að um fumlausa
handtöku hefði verið að ræða.
Í október var konan dæmd í 30
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
að hrækja á lögreglumanninn sem
handtók hana. Konan játaði ský-
laust brot sitt.
Samkvæmt niðurstöðu dómsins
mátti lögreglumanninum vera ljóst
að konan væri svo ölvuð að hún
myndi ekki veita mikla mótspyrnu.
Því hefði ekki verið nauðsynlegt að
snúa hana niður. „Þetta er þess
eðlis að það er nauðsynlegt að fá
endurmat. Dómurinn er þannig og
röksemdafærsla dómarans er afar
hæpin,“ segir Grímur Hergeirsson,
lögmaður lögreglumannsins.
Hann segir að tekið sé fram í
dómnum að lögreglumaðurinn hafi
beitt réttmætum aðferðum. Hins
vegar segi að honum hafi mátt
vera ljóst að konan var svo ölvuð
að hún myndi ekki veita mikla
mótspyrnu. Grímur telur að þetta
hljóti að þýða breytt vinnubrögð
hjá lögreglu þegar glímt er við ölv-
að fólk. Lögreglumenn megi ekki
búast við því að mjög ölvað fólk,
hvort sem það er karl eða kona,
veiti mótspyrnu.
Lögreglumaður sakfelldur
Þótti hafa farið
offari við handtöku
síðastliðið sumar
Handtaka Myndband náðist af
handtöku konunnar í miðbænum.