Morgunblaðið - 07.12.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Þetta eru allt fífl, ég veithvernig þeir eru. Allireins,“ segir GunnlaugurGuðmundsson þegar hann
útskýrir hvernig menn fara að hugsa
þegar þeir verða gamlir í huganum.
„Við förum að merkja alla hluti
og horfum ekki lengur á þá því „við
erum búin að skoða þá“ og förum að
alhæfa um hluti og fólk, eins og við
höfum sett einhverja gamla merki-
miða á þá,“ segir Gunnlaugur. Með
því sé hugurinn að leyfa gömlum
hugmyndum að stjórna lífi okkar á
kostnað nýrra upplifana.
Glötuð tækifæri
Gunnlaugur segir að eitt af því
sem „hjálpar“ fólki verulega að eld-
ast sé þegar það leyfir gömlu hugs-
anamynstri að yfirgnæfa raunveru-
leika dagsins í dag. Þá verði lífið
sífelld endurupplifun fortíðar í stað
þess að það lifi í nútíðinni og njóti
hverrar stundar.
„Ég er orðinn gamall, ég get
ekki gert þetta. Ég get ekki farið í
nám því ég er orðinn of gamall …
Svona hljóma hugmyndir sem loka á
möguleikana og tækifærin. Eftir því
sem maður verður eldri er maður
með fleiri hugmyndir sem loka á
fleiri möguleika og á endanum situr
maður einn í einhverju lokuðu her-
bergi og gerir ekki neitt! Af því að
maður veit þetta allt. Það er ömur-
legt,“ segir Gunnlaugur sem sjálfur
er að verða sextugur en hefur tekist
vel að viðhalda æskuljómanum sem í
hans augum spyr ekki að líf-
fræðilegum aldri. Stóra spurningin
er þó í sjálfu sér hvernig hægt sé að
sporna við þeirri leiðindaþróun að
verða „gamall í huganum“.
Vakandi athygli
Gunnlaugur byrjar bókina sína,
Leiðina til sigurs, á skemmtilegri og
örstuttri sögu sem segir býsna
margt í fáum orðum um viðhorf.
„Tveir meistarar eru á ferðalagi
með lærisveinum sínum. Þeir stoppa
á gististað og sveinarnir hittast í
matsalnum. „Meistari minn getur
gengið á vatni,“ segir annar þeirra.
„Hvað getur meistarinn þinn gert?“
„Þegar meistarinn minn er að borða
þá er hann að borða,“ segir hinn.
Þetta er æðsta stigið því þetta er
vakandi athygli,“ segir hann og út-
skýrir að þetta geti átt við víða, til
dæmis í kynlífi eða íþróttaleik. Þá
ætti hugurinn ekki að vera annars
staðar.
„Þú ert í fótboltaleik og það eru
fimm mínútur eftir af níutíu. Ef þú
ferð að hugsa um að það séu bara
fimm mínútur eftir, leikurinn er
sama sem búinn og þú getur ekki
skorað. En það tekur tíu sekúndur
að skora mark! Markmaðurinn þinn
getur verið með boltann og tíu sek-
úndum síðar er komið mark. Ef þú
ert að hugsa um eitthvað annað og
ferð út úr núinu, út úr vakandi at-
hygli, þá fyllast menn örvæntingu
þannig að síðustu mínúturnar tap-
ast,“ segir hann.
Með vakandi athygli hlýtur
maðurinn að geta notið hverrar
stundar og leyft lífinu stöðugt að
koma sér á óvart. Jafnvel þó að ald-
urinn færist yfir. Til að tileinka sér
vakandi athygli þarf þjálfun og fyrir
vikið notar maður hverja stund eins
vel og hægt er.
Fortíðinni fyrirgefið
Flest viljum við vera í góðu
formi líkamlega og í góðu jafnvægi
andlega. Þetta tvennt þarf að tvinn-
ast saman og styður hvað annað í
raun og veru.
Gunnlaugur segir að til að geta
tekið framförum í lífinu sjálfu og
gengið um hnarreistur sé nauðsyn-
legt að vera sáttur í eigin skinni. Í
því felst að sætta sig við hlutina eins
Að eldast og komast af
grát- og öskurstiginu
Stjörnuspekingurinn
Gunnlaugur Guðmunds-
son er sannfærður um að
viðhorf okkar og afstaða
til ellinnar geti í raun og
veru stýrt því dálítið
hvernig við eldumst.
Þetta skýrir hann í bók-
inni Leiðin til sigurs.
Morgunblaðið/Malín Brand
Sveigjanlegur Gunnlaugur Guðmundsson segir miklu máli skipta að
vera sveigjanlegur og að vökva jákvæðu blómin í kringum sig.
Á vefnum www.spilareglur.is er að
finna reglur ýmissa spila sem mörg
okkar kannast við úr bernsku. Sum
spilanna lærði maður kannski hjá afa
og ömmu en man ekki reglurnar.
Þarna er að finna lýsingar og regl-
ur fjölda spila á borð við Rommí,
Gúrku, Merki, Lönguvitleysu, Kana,
Þjóf, Vist og svo mætti lengi telja.
Það er ekki vitlaust að rifja upp nokk-
ur spil á aðventunni og taka fram
gamla góða spilastokkinn.
Þau Nonni og Sigrún halda þessum
vef úti og hvetja fólk til að senda inn
fleiri spilareglur.
Vefsíðan www.spilareglur.is
Morgunblaðið/Golli
Spilað Á síðunni er hægt að rifja upp ýmis spil og jafnvel læra önnur ný.
Gömlu spilin rifjuð upp
Í dag klukkan 16 stendur
Kvennakór Akureyrar fyrir
fjáröflunartónleikum í Akur-
eyrarkirkju. Allur ágóði tón-
leikanna rennur til Mæðra-
styrksnefndar Akureyrar nú
fyrir jólahátíðina. Inn á tón-
leikana kostar 2.500 krónur
en ókeypis er fyrir 12 ára og
yngri.
Endilega …
… hjálpið bágstöddum
Kórinn Styrkið endilega gott málefni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.