Morgunblaðið - 07.12.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Dýrfiskur er að undirbúa umhverfis-
mat fyrir stórfellt eldi regnbogasil-
ungs í Arnarfirði, Tálknafirði og Pat-
reksfirði. Stefnt er að 10 þúsund
tonna framleiðslu á ári. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins segir að
eldið verði samstillt laxeldi þeirra
fyrirtækja sem fyrir eru.
Fyrirtækið hefur kynnt drög að til-
lögu að matsáætlun vegna 4.000
tonna framleiðslu í Borgarfirði og
annarri eins í Trostansfirði. Báðir
þessir firðir eru í Arnarfirði. Sömu-
leiðis hefur fyrirtækið kynnt fyrirætl-
anir um 4.000 t framleiðslu í Patreks-
firði og Tálknafirði.
Sigurður Pétursson framkvæmda-
stjóri segir að til að reka arðbært
fiskeldi þurfi einingarnar að vera til-
tölulega stórar. Stefna þurfi að því að
vera með 10 þúsund tonna fram-
leiðslu í hverri starfsstöð. Vilji sé til
þess að koma slíkri stöð upp á suður-
fjörðum Vestfjarða. Sigurður getur
þess að erfiðlega hafi gengið að fá
leyfi til að auka framleiðsluna á
norðurfjörðunum, í Dýrafirði,
Önundarfirði og Ísafjarðardjúpi.
„Margvíslegar ástæður liggja að baki
þessum erfiðleikum en þar má nefna
flókið og óskilvirkt umsóknarferli auk
þess sem skortur er á nauðsynlegum
tækjabúnaði hjá rannsóknarstofn-
unum hér á landi til að meta um-
hverfisaðstæður.“
Hann getur þess að fyrirtækið sé
með fimmtíu manns í vinnu í seiða-
eldisstöð, við sjóeldi og vinnslu á
Flateyri. „Umhverfið er erfitt þar
sem við fáum ekki að fylgja eftir þeim
möguleikum sem hér eru með því að
stækka eldið.“
Önnur ástæða þess að sótt er um
leyfi til eldis í þessum þremur fjörð-
um er stefna fiskeldismanna á Íslandi
og stjórnvalda um að vera með kyn-
slóðaskipt eldi. Eina stóra eldið sem
Dýrfiskur er með er í Dýrafirði og því
er það hluti af aðlögun fyrirtækisins
að þessum vinnuaðferðum að koma
sér upp aðstöðu á fleiri svæðum.
Sigurður getur þess að Dýrfiskur
hafi fyrst íslenskra eldisfyrirtækja
fengið vottun fyrir lífrænt eldi. Til
þess að það gangi til langframa þurfi
fiskurinn að hafa mikið rými í eldinu.
Samráð við hin fyrirtækin
Í þeim fjörðum sem Dýrfiskur
hyggur á starfsemi eru önnur fisk-
eldisfyrirtæki með sjókvíaeldi og
áform um eldi, ekki síst Fjarðalax,
sem er í öllum fjörðunum, og Arnar-
lax í Arnarfirði. Sigurður segir að
áform Dýrfisks hafi verið kynnt fyrir
hinum fyrirtækjunum.
Spurður um hugsanlegan ágrein-
ing um staðsetningar segir hann að
firðirnir séu stórir og geti vel borið
mikið eldi. Verið sé að byggja upp
iðnað sem geti orðið mikilvægur liður
í framtíðaruppbyggingu Vestfjarða.
Ef ekki sé hægt að leysa ágreining
um eldissvæði sé það til marks um að
fiskeldismenn sem heild séu ekki með
rétt hugarfar.
Leggur Sigurður áherslu á að leit-
að verði eftir samkomulagi við önnur
eldisfyrirtæki um samstillingu eldis-
ins til þess að tryggja sjálfbærni og
ekki síður til að minnka hættu á sjúk-
dómum.
Tíu þúsund tonn af regnbogasilungi
Dýrfiskur undirbýr umhverfismat fyrir stórfellt eldi regnbogasilungs í sjókvíum í Arnarfirði,
Tálknafirði og Patreksfirði Tillaga að matsáætlun kynnt almenningi og Skipulagsstofnun
Dýrfiskur sækir um nýja staði
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Einherji ehf
Ósafjörður
Fjarðalax ehf
Hlaðseyri
Fjarðalax ehf
Sandoddi
Dýrfiskur hf
Hlíðardalur
Dýrfiskur hf
Sellátrar
Fjarðalax ehf
Laugardalur
BA337 ehf
Smælingjadal
Nýskel ehf
Hópið
Fjarðalax ehf
Sveinseyri
Fyrirhuguð eldissvæði Dýrfisks hf og Fjarðalax ehf í Patreksfirði
og Tálknafirði. Á myndinni er einnig sýnd staðsetning núverandi
leyfa til þorskeldis í Patreksfirði og Tálknafirði og kræklinga-
ræktar í Tálknafirði.
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Fjarðalax ehf
Suðureyri
Fjarðalax ehf
Þúfneyri
Fossfjörður
Lundhlíð
Haganes
Tjaldanes Hlaðseyri
Fyrirhugað eldissvæði Dýrfisks við Hlaðseyri í Borgarfirði og við
Lundhlíð í Trostansfirði ásamt eldisleyfum Fjarðalax og Arnarlax,
sem hafa fullgild starfs- og rekstrarleyfi til laxeldis.
Arnarlax
3.000 tonn Dýrfiskur
Fjarðalax
1.500 tonn
Arnarfjörður
Borgarfjörður
Suðurfirðir
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Dýrfiskur hefur verið með regn-
bogasilungseldi í Dýrafirði frá
2007 og rekur seiðaeldisstöð í
Tálknafirði. Afurðirnar eru unn-
ar til útflutnings hjá systurfyrir-
tæki þess, Arctic Odda á Flat-
eyri.
Dýrfiskur hefur flutt til lands-
ins hrogn regnbogasilungs frá
Danmörku til eldis í sjókvíaeld-
isstöð fyrirtækisins í Dýrafirði.
Hrognin þurfa að samræmast
stöðlum um lífræna fram-
leiðslu.
Hrognin eru klakin út í seiða-
eldisstöð Dýrfisks í Norður-
Botni í Tálknafirði og fiskurinn
alinn í 100 gramma stærð áður
en hann er fluttur í sjókvíar.
Regnbogasilungur var fluttur
hingað til lands um 1950. Skúli
Pálsson hóf eldi á Laxalóni við
Reykjavík. Stofninum var síðar
slátrað vegna nýrnaveiki en
fluttur inn aftur. Fiskinum hefur
verið sleppt í vötn til veiða.
Regnbogasilungur fjölgar sér
ekki í íslenskri náttúru. Seiðin
lifa veturinn ekki af vegna
kulda.
Fjölgar sér
ekki hér
HROGN FRÁ DANMÖRKU
www.birkiaska.is
Birkilauf-Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
102985
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Nú er vetur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
S805-2Y 110cm
ál snjóskófla
1.890
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.495
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
1.990
Rúðuskafa
190
Hálkusalt 5 kg
490
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
690
Aukablað alla
þriðjudaga