Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
VIÐTAL
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Þetta var ótrúlegur tími,“ segir
Ólafur Laufdal, veitingamaður með
meiru, um árin sem hann rak Hótel
Ísland í Ármúla sem síðar varð að
Broadway.
Þegar Hótel Ísland var opnað í
desember 1987 var það stærsti
skemmti- og veitingastaður landsins
og kannski er það ákveðin sárabót –
úr því að búið er að ákveða að loka
Broadway – að lækna- og heilsu-
miðstöðin sem þar á að koma eigi þó
að minnsta kosti að verða ein sú
stærsta á landinu.
Broadway verður rekinn í nokkra
mánuði til viðbótar en það á að opna
læknamiðstöðina 2015.
Framkvæmdir við Hótel Ísland
hófust árið 1985 og skemmtistað-
urinn með sama nafni var formlega
opnaður 17. desember 1987.
„Þetta er langflottasti staður sem
hefur verið gerður á Íslandi,“ sagði
Ólafur Laufdal í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Þetta er ekki ofsagt
því staðurinn rúmaði 2.300 manns á
skemmtanir og hægt var að taka á
móti allt að 1.300 matargestum. Bún-
aður, innréttingar og annað var í
hæsta gæðaflokki.
„Það var smekkfullt þarna árum
saman,“ segir Ólafur. Þegar Hótel
Ísland var opnað hafði Ólafur rekið
skemmtistaðinn Broadway við Álfa-
bakka, þar sem nú er kvikmyndahús,
í um sex ár. Þangað hafði hann fengið
marga heimsþekkta listamenn, m.a.
Ray Charles, og enn fleiri slíkir
komu fram á Hótel Íslandi. Alls telst
Ólafi til að hann hafi fengið 90 er-
lenda listamenn til landsins. Meðal
skærustu stjarnanna voru Tom Jon-
es og Rod Stewart, en of langt mál er
að telja alla þá fjölmörgu aðra, er-
lendu og innlendu listamennina sem
tróðu þar upp. „Fjöldinn allur af
söngvurum og tónlistarmönnum,
sem nú eru landsþekktir, steig sín
fyrstu spor á Hótel Íslandi,“ segir
Ólafur, oft undir styrkri hljóm-
sveitastjórn Gunnars Þórðarsonar.
Hljómsveitin Stjórnin hafi átt þar sitt
blómaskeið, um margra ára skeið
hafi sjónvarpsþættir verið sendir út
beint á Stöð 2 frá Hótel Íslandi, ótal
margar árshátíðir hafi farið þar fram
sem og fegurðarsamkeppnir (kvenna
og karla) að ógleymdum mennta-
skóla- og háskólaböllum.
Sýningar gengu lengi
Sýningar á Hótel Íslandi hafi
margar gengið gríðarlega vel og voru
sýndar í yfir 100 skipti, s.s. sýningar
með Björgvini Halldórssyni, Geir-
mundi Valtýssyni og fleirum.
ABBA-, Begees- og Queen-sýningar
hafi sömuleiðis verið vinsælar enda
mjög vandað til þeirra. Þegar ABBA-
sýningin, sem Gunnar Þórðarson
setti upp, gekk á Hótel Íslandi var
sambærileg sýning á fjölunum í
London og fór Ólafur að sjá þá sýn-
ingu til að bera þær saman. „Við
gerðum þetta miklu betur og flestum
sem sáu þetta bar saman um það. Við
vorum langt á undan öðrum með
svona sýningar. Það sem er verið að
rifja upp núna, í Hörpunni og svona,
við gerðum þetta fyrir 20 árum.“
Eitt af því sem vakti mikla athygli
þegar staðurinn var opnaður var að
undir sviðsgólfinu var lyfta og því var
hægt að láta listamenn „birtast“ á
sviðinu. Ljósabúnaður og hljóðkerfið
var fyrsta flokks. „Það var ekki til
neitt flottara í heiminum á þessum
tíma.“
Ólafur neyddist til að selja Bún-
aðarbankanum Hótel Ísland árið
1991 en hann og börn hans leigðu
reksturinn af bankanum. Árið 1998
var nafni staðarins breytt í Broad-
way en Ólafur Laufdal hefur ekki
komið að rekstri staðarins frá 2001.
„Langflottasta staðnum“ brátt lokað
Tugir heimsfrægra listamanna komu fram á Hótel Íslandi sem síðar fékk nafnið Broadway
Rúmaði 2.300 gesti og hægt var að taka á móti 1.300 matargestum Búnaður á heimsmælikvarða
Morgunblaðið/Golli
Glæsilegt Frá sýningunni Viva Latino. Í baksýn má m.a. sjá Gunnar Þórðarson sem oft spilaði í Broadway.
Ólafur Lauf-
dal segir að
rekstur stað-
ar eins og
Broadway sé
lýjandi og
krefjist mik-
illar nætur-
vinnu. Hrunið,
sem hafi orð-
ið til þess að
stórum
veislum og viðburðum hafi
fækkað og fjöldi nýrra staða í
miðborginni, hafi gert sam-
keppnisstöðu Broadway erfiðari
undanfarin ár.
Ólafur hefur fyrir löngu snúið
sér að öðru og rekur nú, ásamt
Kristínu Ketilsdóttur eiginkonu
sinni, veitingahús og lúxusgist-
ingu í glæsilegum orlofshúsum í
Grímsnesi. Nú er þar gistipláss
fyrir 92 en plássunum fjölgar í
120 í sumar.
Reksturinn gengur vel og
þegar er mikið búið að bóka á
milli jóla og nýárs. Þeir sem áð-
ur komu fram á Hótel Íslandi og
Broadway koma margir til að
skemmta á jólahlaðborðinu hjá
Ólafi og Kristínu. Þeirra á meðal
eru Bjarni Arason, Gunnar Þórð-
arson, Magnús Kjartansson,
Grétar Örvarsson og Eyjólfur
Kristjánsson. „Þetta eru allt
gamlir vinir mínir,“ segir Ólafur.
Þeir sem koma og gista í
Grímsnesinu voru margir áður
viðskiptavinir Ólafs í Broadway
og Hótel Íslandi.
Og líklega hafa margir þeirra
sem sækja sér lækningu í nýju
heilsumiðstöðina áður stigið
trylltan dans í sama húsi.
Gamlir vinir
í Grímsnesið
GISTING OG VEITINGAR
Ólafur
Laufdal
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
BREYSKUR
BRAUTRYÐJANDI
VVVVV
„... þakkarver t og
merk i leg t innlegg
í bókmenntasögu
okkar Íslendinga.“
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR / DV
„Verk Sveins
Einarssonar er
mik ið afrek og
vandaður kaf l i
í sögu íslenskrar
menningar.“
SVAVAR GESTSSON / SVAVAR.IS
www.nortek.is Sími 455 2000
Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú
getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu,
miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki.
Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á
öryggiskerfum.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
FYRIRTÆKJAÖRYGGI
• Aðgangsstýring
• Brunakerfi
• Myndavélakerfi
• Innbrotakerfi
• Slökkvikerfi / Slökkvitæki
• Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur
• Áfengismælar / fíkniefnapróf