Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Orkustofnun hefur veitt Landsneti
leyfi til að leggja og reka Suðurnesja-
línu 2, línu sem liggur að mestu sam-
hliða núverandi línu á milli Hafnar-
fjarðar, Reykjanesbæjar og
Grindavíkur. Forstjóri Landsnets
reiknar með að undirbúningur fram-
kvæmda hefjist um leið og heimild til
eignarnáms fæst.
Suðurnesjalína 2 er 220 kV loftlína
sem mun fyrst um sinn verða rekin á
132 kV spennu. Hún mun í framtíð-
inni leysa af gömlu Suðurnesjalínu.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að
auka afhendingaröryggi raforku til
notenda á Reykjanesi. Hún mun
einnig tengja núverandi og væntan-
legar virkjanir á Reykjanesskagan-
um við raforkukerfi landsins.
Orkustofnun setur það skilyrði fyr-
ir leyfi sínu að Landsnet setji fram
áætlun um vöktun á áflugshættu
fugla á raflínur á þremur stöðum,
meðal annars við Fóelluvötn og Snor-
rastaðatjarnir. Línurnar verði merkt-
ar í þeim tilgangi.
Jarðstrengir óhagkvæmari
Í athugasemdum sem bárust í um-
sóknarferlinu komu fram kröfur um
að lagður yrði jarðstrengur á hluta
leiðarinnar. Orkustofnun tekur undir
rök Landsnets um
að jarðstrengur
sé óhagkvæmari
en loftlína, miðað
við 220 kV línu, og
telur hvorki að
umhverfissjónar-
mið né annað í
forsendum fram-
kvæmdarinnar
réttlæti þann
kostnaðarauka.
Landsneti tókst ekki að semja við
alla landeigendur á Vatnsleysuströnd
um heimildir til að leggja línuna. Í
febrúar óskaði fyrirtækið eftir heim-
ild atvinnuvegaráðherra til að taka
eignarnámi það land sem ekki samd-
ist um, meðal annars land Vatnsleysu
og Landakots. Sú beiðni liggur óaf-
greidd í ráðuneytinu og mun hafa
verið beðið eftir niðurstöðu Orku-
stofnunar um leyfi til að leggja lín-
una.
Þórður Guðmundsson, forstjóri
Landsnets, reiknar með að undirbún-
ingur framkvæmda hefjist um leið og
heimild til eignarnáms fæst. Vonast
hann til að útboð geti farið fram í vet-
ur og framkvæmdir hafist næsta
sumar. Þeim myndi þá lokið á árinu
2015. helgi@mbl.is
Beðið eftir heimild
til eignarnáms
Veitt leyfi til að leggja Suðurnesjalínu
Þórður
Guðmundsson
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
SIEMENS
Þvottavél
WM 12B261DN
Jólaverð:
104.900 kr. stgr.
SIEMENS
Þurrkari
WT 44B5E0DN
Jólaverð:
129.900 kr. stgr.
BOSCH
Matvinnsluvél
MCM 2054
Jólaverð:
10.900kr. stgr.
BOSCH
Töfrasproti
MSM 67PE
Jólaverð:
14.700kr. stgr.
Gigaset
símtæki
A120
Jólaverð:
5.310 kr. stgr.
Stavanger
Gólflampi
Jólaverð:
14.900 kr. stgr.
Stavanger
Vegglampi
Jólaverð:
6.900 kr. stgr.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Starfshópur á vegum forsætisráðu-
neytisins hefur lagt fram tillögu um
að opinberum gjöldum á aðfluttar
vörur í póstþjónustu undir 2.000
krónum verði aflétt. Ef farið væri
eftir tillögu hópsins myndi Ísland
verða síðasta landið á EES-svæðinu
til þess að samþykkja sambærilegar
reglur.
Tillöguna er að finna í skýrslu sem
hópurinn lét frá sér í vikunni.
„Kjarninn í þessum tillögum hópsins
er að ríkið aflétti opinberum gjöldum
af lágverðmætasendingum, til þess
að Íslandspóstur verði ekki fyrir um-
sýslukostnaði og þurfi ekki að rukka
neytendur um hann. Þar með spar-
ast neytendum bæði tími og pening-
ar,“ segir Gísli Tryggvason, fráfar-
andi talsmaður neytenda.
Til þessa hafa neytendur mátt
greiða aðflutningsgjöld af öllum upp-
hæðum. Í ofanálag hefur Íslands-
póstur rukkað
umsýslugjald að
upphæð 550 krón-
ur fyrir einstak-
linga og 3.500
krónur ef viðtak-
andi er lögaðili.
Fram kemur í
skýrslu hópsins
að Íslandspóstur
hafi afgreitt
27.732 sendingar
með tollverð upp að 2.000 krónum
árið 2012. Tæpar 12 milljónir króna
innheimtust í aðflutningsgjöld fyrir
svo lágar upphæðir en rúmar 15
milljónir króna í umsýslugjald.
Kostnaðarsamt samfélaginu
Ýmis rök eru tiltekin til stuðnings
niðurfellingu á gjöldunum undir
2.000 krónum. Er þar meðal annars
tekið fram að hefð sé fyrir slíkri nið-
urfellingu í öðrum löndum. Þá séu
ekki tekin aðflutningsgjöld ef um er
að ræða hraðsendingu til virðisauka-
skattsskyldra aðila undir 2.000 krón-
um. Eins eru færð rök fyrir því að
innheimta svo lágra gjalda sé kostn-
aðarsöm fyrir samfélagið auk þess
sem það tefur fyrir móttöku vara hjá
neytendum. Þá er það nefnt að ekki
séu innheimt aðflutningsgjöld á þá
sem kaupa sambærilega vöru er-
lendis og því þurfi að skapa jafnræði
á milli þeirra sem kaupa vöru í póst-
verslun hérlendis annars vegar og á
erlendum vettvangi hins vegar. Seg-
ir í skýrslunni að áhrif á innlenda
verslun séu óveruleg. Kemur þar
fram að fulltrúar Neytendasamtak-
anna og talsmanns neytenda hafi
mælst til þess að þröskuldurinn yrði
hærri. Þannig mætti veita íslenskum
verslunum mikilvæga samkeppni.
Er meðal annars bent á það að í Nor-
egi er ekki tekið gjald ef verðmætið
er undir um 4.000 kr.
Kom fyrst upp árið 2008
Að sögn Gísla Tryggvasonar á
málið rætur að rekja til ársins 2007
en það kom á borð fjármálaráðu-
neytisins í ágúst 2008. Ekkert varð
úr áformum í kjölfar efnahagshruns.
Málið var svo tekið upp að nýju í
október í fyrra en samráðshópur
kom saman í apríl.
„Ég sé fyrir mér að þetta eigi við
um allan löglegan innflutning nema
áfengi, tóbak og lyf. Meðal annars
bækur, tónlist, föt og kvikmyndir,
svo dæmi sé nefnt,“ segir Gísli sem
lætur af embætti Umboðsmanns
neytenda öðrum hvorum megin við
helgi. Verða verkefni sem voru á
herðum embættisins hjá Neytenda-
stofu hér eftir.
Gjöldum á póstsendingar verði aflétt
Morgunblaðið/Kristinn
Aflétt Lögð er til aflétting á aðflutningsgjöldum á vörur undir 2.000 kr.
Starfshópur leggur til að aðflutningsgjöldum á póstsendingar undir 2000 kr. verði aflétt Ísland yrði
síðasta landið á EES-svæðinu til að samþykkja afléttingu gjalda Myndi ná yfir bækur, föt og tónlist
Gísli
Tryggvason
Morgunblaðið/Golli
Stígamót afhentu í gær viðurkenningar til sjö aðila
vegna framlags þeirra í baráttunni gegn kynferðisof-
beldi. Þeir sem voru heiðraðir voru Erna Agnarsdóttir
og María Haraldsdóttir, fréttaskýringaþátturinn Kast-
ljós, Hildur Fjóla Antonsdóttir og Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdóttir, Stefán Ingi Stefánsson hjá Unicef,
vefmiðillinn Knúzið, Theodóra Þórarinsdóttir og Bryn-
hildur Björnsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir fyrir forvarnarátakið Fáðu já. Þá
var í gær formlega stofnaður Sannleikssjóður Stíga-
móta en stofnfé sjóðsins, 100 þúsund krónur, var gjöf
ónefndrar konu sem sagði m.a. þetta í bréfi til samtak-
ana: „Ég er fulltrúi þeirra sem er bæði ljúft og skylt að
láta fé af hendi rakna til þess að standa vörð um kyn-
frelsi kvenna, frelsið til að greina frá reynslu sinni og
afleiðingum ofbeldis.“
Stígamót heiðra baráttufólk