Morgunblaðið - 07.12.2013, Side 26
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Lágfargjaldaflugfélagið easyJet
reiknar með því að flytja um 250
þúsund farþega til og frá Íslandi ár-
ið 2014. Langflestir þeirra eða 70%
verða á leið til Íslands, segir Hugh
Aitken, framkvæmdastjóri easyJet í
Bretlandi, í samtali við Morgun-
blaðið.
Til samanburðar fóru 647 þúsund
erlendir ferðamenn um Leifsstöð
árið 2012. Hann leggur ríka áherslu
á að markmið easyJet sé að fjölga
ferðamönnum til Íslands árið um
kring. Til þess þurfi að fjölga þeim
sem sækja landið heim um veturna,
og hann telji að um sé að ræða far-
þega sem hefðu ekki komið til
landsins ef ekki væri fyrir easyJet.
EasyJet hóf að fljúga hingað til
lands fyrir 18 mánuðum. „Það hefur
gengið mjög vel. Meðalsætanýting
er um 90%,“ segir hann og nefnir
að á leið sinni til landsins hafi hann
flogið í 180 sæta flugvél og setið var
í 168 sætum. Flogið er til Íslands
frá Edinborg í Skotlandi, London
og Manchester í Englandi og í
næstu viku hefst flug frá ensku
borginni Bristol og Basel í Sviss
bætist í hópinn í apríl.
„Það hefur hvorki þótt auðvelt né
hagstætt að ferðast til Íslands, en
með tilkomu easyJet er hægt að
ferðast hingað ódýrt og með auð-
veldum hætti,“ segir Aitken.
Ferðaþjónustan hratt vaxandi
EasyJet er stærsta flugfélag
Bretlands og það fjórða stærsta í
Evrópu. Yfir 60 milljónir farþega
flugu með flugfélaginu á tólf mán-
aða tímabili sem lauk í maí. Það
rekur 214 flugvélar og flýgur til 34
landa. Áhöfnin gistir aldrei á
áfangastað og það takmarkar hve
langt er flogið. Í því tilliti er stað-
setning Íslands góð að hans sögn.
Ferðaþjónustan hér á landi er
hratt vaxandi. Fyrir áratug komu
hingað til lands um 300 þúsund er-
lendir gestir um Leifsstöð en eins
og fyrr segir voru þeir um 647 þús-
und í fyrra, samkvæmt úttekt Hag-
fræðideildar Landsbankans. Hann
segir að vöxtur ferðaþjónustunnar
hafi gengið vel. Áskorunin felist í
því að í nógu sé snúast hjá ferða-
þjónustunni, t.d. hótelum og bíla-
leigum, í júní, júlí og ágúst, en svo
sé mun minna að gera aðra mánuði
ársins. Það þurfi því að fjölga ferða-
mönnum sem heimsæki landið allt
árið um kring. „Við viljum líka
draga ferðamenn hingað til lands
þegar nóg er af lausum hótelher-
bergjum,“ segir hann. „Eftir því
Stórtækir í
flutningum
til landsins
Flugfélagið easyJet hyggst flytja
250.000 farþega til og frá Íslandi
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
● Bolli Thorodd-
sen, fram-
kvæmdastjóri ráð-
gjafarfyrirtækisins
Takanawa og dokt-
orsnemi við Wa-
seda-háskólann í
Tókýó, var kjörinn
formaður Versl-
unarráðs Íslands í
Japan á aðalfundi
félagsins í gær.
Verslunarráðið fagnar á árinu 10 ára
afmæli, en það var sett á stofn árið
2003 af Davíð Oddssyni, þáverandi for-
sætisráðherra, og dr. Eyþóri Eyjólfssyni,
þáverandi ræðismanni Íslands í Tókýó, í
samstarfi við fulltrúa japanskra og ís-
lenskra fyrirtækja og sendiráð Íslands í
Tókýó, segir í tilkynningu.
Bolli
Thoroddsen
Nýr formaður Versl-
unarráðs Íslands í Japan
Regluleg laun voru að meðaltali 0,5%
hærri á þriðja ársfjórðungi 2013 en í
ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra
ári hækkuðu laun um 5,9% að með-
altali, hækkunin var 6,1% á almenn-
um vinnumarkaði og 5,3% hjá opin-
berum starfsmönnum. Á sama
tímabili hækkuðu laun ríkisstarfs-
manna um 5,7% en hjá starfsmönnum
sveitarfélaga um 5,0%.
Frá fyrri ársfjórðungi mældist
hækkun reglulegra launa mest í sam-
göngum eða um 1,2%. Þá hækkuðu
laun milli ársfjórðunga um 1,1% í
byggingarstarfsemi, 0,4% í iðnaði og í
fjármálaþjónustu og 0,3% í verslun.
Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í
samgöngum eða um 7,0% en minnst í
iðnaði eða um 5,6%. Frá fyrri árs-
fjórðungi var hækkun reglulegra
launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,2%
til 1,0%. Laun skrifstofufólks hækk-
uðu mest en laun verkafólks hækkuðu
minnst.
Frá fyrra ári hækkuðu laun skrif-
stofufólks mest eða um 7,8% en laun
stjórnenda hækkuðu minnst eða um
4,9%. Á sama tíma hækkuðu regluleg
laun sérfræðinga um 6,9%, þjónustu-,
sölu- og afgreiðslufólks og tækna um
6,4%, verkafólks um 5,7%, samkvæmt
frétt á vef Hagstofu Íslands.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samgöngur Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í
samgöngum eða um 1,2% og laun hækkuðu um 1,1% í byggingarstarfsemi.
Laun hækkuðu um
0,5% á milli fjórðunga
flutningur jókst um 4,2% á sama
tíma og innflutningur dróst saman
um 1,9%.
Landsframleiðsla á 3. ársfjórð-
ungi 2013, án árstíðaleiðréttingar,
jókst um 4,9% frá sama ársfjórð-
ungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt
landsframleiðsla jókst um 6,1% frá
2. ársfjórðungi 2013, segir í frétt á
vef Hagstofu Íslands.
Landsframleiðsla á fyrstu níu
mánuðum ársins 2013 jókst um
3,1% að raungildi borið saman við
fyrstu níu mánuði ársins 2012. Á
sama tíma drógust þjóðarútgjöld,
sem eru samtala neyslu og fjár-
festingar, saman um 0,5%. Einka-
neysla jókst um 1,3% og sam-
neysla um 1,4%. Fjárfesting dróst
hins vegar saman um 7,1%. Út-
Hagvöxtur var 3,1% á fyrstu
níu mánuðum þessa árs
!"# $% " &'( )* '$*
++,-+.
+/0-01
++2-,3
3+-.13
+/-+4.
+,-+3.
+0+-,3
+-+4.4
+,+-.5
+.+-1.
++,-11
+/0-,+
+++-+1
3+-524
+/-3+3
+,-+5/
+03-+/
+-+4//
+,3-3+
+.+-/+
3+1-5,35
++,-53
+/1-3,
+++-1.
3+-5.,
+/-3.,
+,-303
+03-4.
+-+.00
+,3-54
+.3-0.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Munið að slökkva
á kertunum
Gætið þess að kerti séu vel
stöðug og föst í kertastjakanum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins