Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 27
sem ferðamönnum fjölgar þarf að
efla innviðina, tryggja t.d. að nóg sé
af hótelherbergjum og bílaleigubíl-
um,“ segir hann.
Fjárfesta til að styðja við vöxt
– Margir hafa áhyggjur af því að
fjárfest sé um of í hótelum hér á
landi. Er rétt að hafa áhyggjur af
því?
„Það er áhugaverð spurning. Það
þarf að þróa innviðina svo þeir geti
mætt eftirspurn. Annars þurfa Ís-
lendingar að segja, við ráðum ekki
við fleiri ferðamenn, og hætta að
vaxa á þessu sviði. Það mun hafa í
för með sér að verð hækki og að Ís-
land verði ekki jafn aðlaðandi
áfangastaður. Það þýðir að erlendir
ferðamenn komi ekki hingað í jafn-
miklum mæli og fari hvorki á veit-
ingastaði né versli í búðum og þar
fram eftir götunum, sem mun leiða
til að þið verðið af skatttekjum. Það
þarf að halda áfram að fjárfesta í
innviðum. Vörumerkið Ísland er
gott og fólk vill koma til Íslands.
Landið er stórfenglegt.“
Druslur
– Er mikilvægt þegar fjárfest er í
innviðum að fjárfest sé í gæðum?
Ég nefni þetta meðal annars vegna
bílaleigna sem leigja ferðamönnum
druslur. Er það slæm stefna?
„Almennt séð, já. Orðspor og
ímynd Íslands lýtur að gæðum.
Þeir sem sækja landið heim vita að
það er eitthvað sérstakt. Innviðir
eiga að endurspegla það. Það er
ekki litið á Ísland sem ódýran
áfangastað.“
– Hve stóran þátt átti fall krón-
unnar í því að easyJet hóf að fljúga
til Íslands?
„Það réð ekki miklu en geng-
isfallið þýðir að verð er skaplegra, “
segir Aitken og hrósar stjórnvöld-
um fyrir það hvernig brugðist var
við eldgosinu í Eyjafjallajökli sem
kyrrsetti fjölda flugvéla í Evrópu.
– Er mikilvægt að fjárfesta í nýj-
um viðburðum til þess að draga að
ferðamenn á veturna?
„Viðburðir veita easyJet t.d.
tækifæri til þess að tala við við-
skiptavini sína og segja: Vissir þú
af því að þetta eða hitt er gerast á
Íslandi?
Það er mikill áhugi á að upplifa
Ísland, sjá norðurljósin og lands-
lagið. Og margir koma aftur t.d.
vegna viðburðar eða annars sem
vekur áhuga. Aðrir kjósa að koma
næst til landsins í heila viku ef þeir
stoppuðu síðast yfir helgi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Flestir erlendir ferðamenn
koma frá Bretlandi og Banda-
ríkjunum, eða um 95 þúsund
frá hvoru landi. Bandaríkja-
menn voru fjölmennastir annað
árið í röð, en fram að því höfðu
Bretar verið fjölmennastir allt
frá árinu 2003 þegar talningar
hófust. Þetta kemur fram í rit-
inu Ferðaþjónusta á Íslandi
sem Hagfræðideild Landsbank-
ans vann. EasyJet er breskt
flugfélag, líkt og fram kemur í
viðtali við framkvæmdastjóra
þess hér til hliðar.
Sveifla
EasyJet hefur áhuga á að
fjölga ferðamönnum árið um
kring en árstíðasveifla í ferða-
mennsku er umtalsvert meiri
hér á landi en annars staðar,
segir í ritinu. Mun fleiri ferða-
menn koma á sumrin en á vet-
urna.
Næstflestir
frá Bretlandi
KANAR FJÖLMENNASTIR
● Icelandair flutti í nóvember um
144 þúsund farþega í millilandaflugi
og voru þeir 10% fleiri en í nóvember
á síðasta ári. Framboðsaukning á
milli ára nam 15% og sætanýting var
73,8% samanborið við 75,8% á sama
tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest
á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um
20,9%.
Farþegar í innanlandsflugi og
Grænlandsflugi voru 21 þúsund í nóv-
ember og fækkaði um 17% á milli
ára, samkvæmt fréttatilkynningu frá
Icelandair.
10% fjölgun í millilandaflugi Icelandair í nóvember
Brunagaddur Ljósmyndari
Morgunblaðsins dró Hugh
Aitken, framkvæmdastjóra
easyJet, út í frosthörkuna.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
GÆÐAMÁLNING
Mako pensill 50mm
225
Deka Gólfmálning grá
3 lítrar
4.295
Deka Spartl LH. 3lítrar
1.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Deka Pro 10
Innimálning. 10 lítrar
6.690
LF Veggspartl
0,5 litrar
795
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
5.995
Deka Pro 4. Veggja- og
loftamálning. 10 lítrar
5.795
GÓÐ Þ
VOTTA
HELDN
I
Deka
Meistaralakk 70
Akrýllakk. hvítt.
1 líter
1.895
Bakki, 25 cm rúlla,
grind og pensill.
- Sett
1.595