Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Heimsbyggðin öll hefur grátið
frelsishetjuna Nelson Mandela,
fyrrverandi forseta Suður-Afríku,
frá því að fréttin af andláti hans
breiddist út eins og eldur í sinu á
fimmtudag. Mandela var einn virt-
asti þjóðarleiðtogi sem uppi hefur
verið og fyrirmynd fólks um allan
heim vegna baráttu sinnar gegn
aðskilnaðarstefnunni í heimalandi
sínu.
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir
utan heimili Mandela eftir að til-
kynnt var um andlát hans til að
votta honum virðingu sína, syngja
og dansa.
Jacob Zuma, forseti Suður-
Afríku, segir að opinber minning-
arathöfn verði haldin um Mandela í
Soweto á þriðjudag. Lík hans mun
svo liggja á viðhafnarbörum í höf-
uðborginni Pretoríu í þrjá daga áð-
ur en það verður flutt til þorpsins
Qunu þar sem Mandela ólst upp.
Þar fær hann opinbera jarðarför
hinn 15. desember.
Persónulegur innblástur
Desmond Tútú, fyrrverandi erki-
biskup Suður-Afríku, minntist vinar
síns Mandela í gær. Klökkur lýsti
hann Mandela sem „ótrúlegri gjöf“
til suðurafrísku þjóðarinnar sem
reis ofar kynþætti og stétt. Hann
hafi verið sameiningartákn frá
augnablikinu þegar hann yfirgaf
fangelsið eftir 27 ára vist.
„Hann kenndi okkur ótrúlega
lexíu um fyrirgefningu, samúð og
sættir,“ sagði Tútú.
F.W. de Klerk, síðasti forseti
Suður-Afríku á meðan aðskilnaðar-
stefnan var enn við lýði, sagðist
trúa því að fordæmi Mandela muni
lifa og halda áfram að hvetja
Suður-Afríkumenn til þess að gera
hugsjón hans um einingu kynþátta,
réttlæti, mannlega reisn og jafn-
rétti fyrir alla að veruleika.
Leiðtogar heims hafa sömuleiðis
hlaðið lofi á Mandela sem var 95
ára gamall þegar hann lést.
Barack Obama, fyrsti þeldökki
forseti Bandaríkjanna, lýsti því
hvernig Mandela hefði veitt sér
persónulegan innblástur. Hans
fyrsti pólitíski gjörningur um ævina
hafi verið að mótmæla aðskiln-
aðarstefnunni í Suður-Afríku.
„Ég nam orð hans og skrif. Dag-
urinn sem honum var sleppt úr
fangelsinu gaf mér innsýn í hvað
manneskjur geta áorkað þegar von-
in er leiðarljós þeirra en ekki ótt-
inn,“ sagði Obama.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, baðst árið 2006 af-
sökunar á þeim mistökum sem
Íhaldsflokkur hans hafði gert í við-
brögðum sínum við aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku. Hann líkti
dauða Mandela við bjart ljós sem
hefði slökknað í heiminum. „Nelson
Mandela var mikilmenni á okkar
dögum, goðsögn í lífi og nú í dauða,
sönn alþjóðleg hetja,“ sagði hann.
„Ljós sem hefur slökknað“
Nelsons Mandela minnst um allan heim í kjölfar andláts hans Var gjöf til
þjóðarinnar Opinber minningarathöfn á þriðjudag og útför annan sunnudag
EPA
Virðing Syrgjendur söfnuðust margir saman fyrir framan hús Mandela í Jóhannesarborg þar sem þeir vottuðu leið-
toganum sem nú er liðinn virðingu sína með söng og dansi. Mandela verður borinn til grafar 15. desember nk.
AFP
Fyrirmynd Mandela var dáður og virtur um allan heim. Pakistönsk skóla-
börn kveiktu á kertum á minningarstund um suðurafrísku frelsishetjuna.
Stormurinn Xa-
ver sem gekk yf-
ir norðanverða
Evrópu frá
fimmtudegi olli
miklum usla. Að
minnsta kosti níu
eru látnir auk
þess sem hundr-
uð þúsunda
manna voru án
rafmagns eða
sátu fastir vegna samgönguraskana
af völdum óveðursins.
Flugsamgöngur voru í lamasessi
víða og sjór flæddi upp á land af
völdum veðurofsans og stór-
streymis sem fór saman. Kepptust
björgunarsveitarmenn við að rýma
hafnarsvæði, koma fyrir sand-
pokum við síki og gera við mann-
virki sem skemmdust í óveðrinu.
Flóðin voru þau mestu sem orðið
hafa á Bretlandi frá árinu 1953 en
þá létust um 2.000 manns í miklum
flóðum í löndunum við Norðursjó.
EVRÓPA
Mannskætt óveður
olli miklum usla
Á Bretlandi flæddi
sjór víða á land.
Tunglfarið Yutu
sem Kínverjar
skutu á loft á
mánudag komst
á braut um
tunglið í gær.
Búist er við því
að farinu verði
lent á tunglinu
um miðjan þenn-
an mánuð til
þess að rann-
saka yfirborðið og leita að nátt-
úruauðlindum.
Takist Kínverjum ætlunarverk
sitt verða þeir aðeins þriðja þjóð
heims til þess að lenda könnunar-
fari á tunglinu á eftir Bandaríkja-
mönnum og Sovétmönnum.
Kínverjar líta á geimferð-
aráætlun sína sem tákn um vax-
andi áhrif þeirra á alþjóðavett-
vangi og tækniþróun. Markmið
þeirra er að koma á fót varanlegri
geimstöð fyrir árið 2020 og senda
að lokum mannað geimfar til
tunglsins.
KÍNA
Yutu komið á spor-
braut um tunglið
Farinu skotið á
loft á mánudag.
Franskir hermenn hófu eftirlitsferð-
ir í Bangui, höfuðborg Mið-Afríku-
lýðveldisins í gær. Frönsk stjórnvöld
sendu meiri herstyrk til landsins á
fimmtudag í kjölfar blóðugra átaka
sem kostuðu 120 manns lífið í borg-
inni eftir að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hafði gefið grænt ljós á
hernaðaríhlutun í landinu.
Afrískt friðargæslulið hefur verið
að störfum í Mið-Afríkulýðveldinu
með umboði SÞ en óttast er að koma
muni til fjöldamorða á milli kristinna
manna og múslíma.
Uppreisnarlið sem styður Franco-
is Bozize, fyrrverandi forseta lands-
ins, er sagt hafa staðið að baki árás-
inni á fimmtudag. Bozize var steypt
af stóli í fyrra og við tók Michel Djo-
todia, leiðtogi uppreisnarhóps músl-
íma. Stjórn hans er sökuð um að hafa
framið voðaverk gegn kristnum
mönnum en þeir eru í meirihluta í
landinu. Í kjölfarið hafa kristnir sett
upp hersveitir á borð við þá sem lét
til skarar skríða í fyrradag.
AFP
Íhlutun Franskir hermenn í Kamerún reiðubúnir að halda inn í Mið-
Afríkulýðveldið. Fyrir voru 1.200 franskir hermenn í landinu.
Frakkar byrjaðir
að gæta Bangui
Óttast átök í Mið-Afríkulýðveldinu
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Opið: mán.-fös. 8:30-18:00, helgar 11:00-16:00
Jólagjafirnar
fást í Krumma
Kíktu í
vefverslunina
Frí heimsending
á jólagjöfum