Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Innflytjendayfirvöld í Taílandi hafa
selt hundruð Rohingya-múslíma frá
Búrma mansali til smyglara sem
halda þeim við slæman aðbúnað í
fangabúðum í frumskóginum. Rann-
sókn fréttamanna Reuters-
fréttastofunnar í þremur löndum hef-
ur leitt þetta í ljós.
Þúsundir Rohingya hafa flúið trú-
arofsóknir í heimalandinu og hefur
rannsóknin leitt í ljós að yfirvöld í
Taílandi hafa leynilega stefnu um að
sigta þá út í innflytjendabúðum og
færa þá í hendur smyglaranna til að
losna við þá úr landi.
Þeir flytja fólkið svo yfir suður-
hluta landsins í búðir við landamærin
að Malasíu þar sem því er haldið þar
til ættingjar greiða þúsundir dollara í
lausnargjald fyrir það. Reuters held-
ur því fram að þúsundir Rohingya
hafi farið í gegnum slíkar búðir og að
ótalinn fjöldi þeirra hafi látið lífið í
þeim. Sumir hafi verið myrtir af
vörðum en aðrir látist úr sjúkdómum
eða ofþornun að sögn eftirlifenda.
Ekki rannsakað sérstaklega
Taílensk yfirvöld halda því fram að
flutningar Rohingya-fólks í gegnum
landið teljist ekki til mansals. Næst-
ráðandi taílensku lögreglunnar við-
urkennir hins vegar að mögulegt sé
að embættismenn hafi hagnast á
smygli á fólkinu og staðfestir tilvist
ólöglegra fangabúða í suðurhluta
landsins. Talsmaður sérdeildar lög-
reglunnar segir að hún hafi heyrt um
slíkar búðir en ekki sé verið að rann-
saka þær sérstaklega.
Muhammad Ismail er einn af þeim
sem segjst hafa verið seldir af taí-
lenskum yfirvöldum.
„Þetta virkaði svo opinbert í byrj-
un. Þeir tóku myndir af okkur. Þeir
tóku fingraför. Svo þegar við vorum
komin á báta og um 20 mínútur á haf
út var okkur sagt að við hefðum verið
seld,“ segir hann við Reuters.
Ismail var fluttur í búðir í Suður-
Taílandi þar sem hann lýsir reglu-
legum barsmíðum og vosbúð fang-
anna. Ekki er ljóst hvað hefur orðið
um það fólk sem ekki gat fundið
neinn til að borga sig úr prísundinni.
Taíland er eitt af þeim löndum
heims sem hafa staðið sig hvað verst í
því að stemma stigu við mansali,
ásamt t.d. Mið-Afríkulýðveldinu,
Norður-Kóreu og Íran.
Yfirvöld selja flóttamenn
Hulunni svipt af illri meðferð á múslímum sem hafa flúið
ofsóknir í Búrma Leynileg stefna taílenskra yfirvalda
AFP
Fangar Rohingya í fangelsi í Indónesíu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fjöldi einstaklinga sem þjást af Alz-
heimers-sjúkdóminum á eftir að þre-
faldast á næstu fjórum áratugum.
Þessar tölur koma fram í skýrslu
sem gerð hefur verið opinber í að-
draganda fundar G8-ríkjanna um
vitglöp sem fer fram í London í
næstu viku.
Nú er talið að um 44 milljónir
manna þjáist af Alzheimers en búist
er við því að fjöldinn verði 135 millj-
ónir fyrir árið 2050. Ástæðan er sögð
lengri lífslíkur í fátækari löndum,
sérstaklega í Suðaustur-Asíu og Afr-
íku. Um 38% tilvika sjúkdómsins eru
nú í auðugum löndum en gangi þess-
ar spár eftir verður 71% allra þeirra
sem þjást af sjúkdómnum í þeim
löndum sem nú teljast fátæk eða í
meðaltekjuhópi.
Engu að síður kemur fram í
skýrslunni að flest ríki heims séu
engan veginn í stakk búin fyrir þessa
þróun. Í Bretlandi eru framlög til
rannsókna á vitglöpum til að mynda
aðeins einn áttundi af því fjármagni
sem veitt er til krabbameinsrann-
sókna.
„Þetta er heimsfaraldur og hann á
aðeins eftir að ágerast. Ef við lítum
til framtíðar þá á öldruðu fólki eftir
að fjölga verulega,“ segir Marc
Wortmann, framkvæmdastjóri al-
þjóðlegra samtaka gegn Alzheimer.
Tvö af hverjum þremur tilvikum
vitglapa eru af völdum Alzheimers
en engin lækning er til við þeim sjúk-
dómi, né öðrum vitglöpum. Lyf geta
létt á einkennum hans en þau ráðast
ekki að rót sjúkdómsins. Sjúklingur
getur jafnvel gengið með hann í ára-
raðir áður en einkenni koma fram.
AFP
Hrörnun Eldri kona á deild fyrir Alzheimers-sjúklinga í Teheran í Íran.
Fólki með vitglöp á eftir að fjölga mikið í heiminum á næstu áratugum.
Þrefalt fleiri þjáist
af vitglöpum 2050
Heimsfaraldur sem á eftir að ágerast
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn