Morgunblaðið - 07.12.2013, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Umræðan
Haft er eftir aðal-
hagfræðingi Danske
bank á þá leið að Ís-
lendingar velji alltaf
annað hvort smálausn-
ir eða skamm-
tímaúrræði í öllum sín-
um málum. Nú hefur
stærsti hluti leiðrétt-
ingaráforma rík-
isstjórnarinnar í
skuldamálum heim-
ilanna verið kynntur
og þótt það sé auðvitað fagnaðarefni
að slíkar aðgerðir standi til þá get ég
ekki leynt því að ég hef orðið fyrir
vonbrigðum. Tillögurnar voru lengi í
meðgöngu fyrir það sem þær svo
reynast vera, eða eins og fíllinn sem
tók jóðsótt og kastaði mús.
Smámæltar aðgerðir
Aðgerðirnar eiga í stuttu máli að
felast í því að veita smá tekjuskatts-
afslátt næstu fjögur árin af séreign-
arsparnaði ef hann er nýttur til þess
að greiða inn á húsnæðinslán annars
vegar og svo með almennri leiðrétt-
ingu á höfuðstól lánanna að hámarki
4 milljónir króna hins vegar. Það er
nú allt og sumt. Ekki er minnst einu
orði á stöðvun útburðar, það fólk sem
er nú þegar á götunni, þá sem eru
stórskuldugir, eða námsskuldir.
Skemmdarvargurinn mikli, verð-
tryggingin, er afgreiddur með því að
það eigi að athuga málið síðar og
hann megi tikka óáreittur á meðan.
Skattaleiðin er ófær
Það mætti setja upp spurninguna:
Ef ein og hálf hæna verptu einu og
hálfu eggi á einni og hálfri mínútu,
hvað tæki það mann með staurfót
langan tíma að sparka út fræunum úr
súrsaðri agúrku? Þetta er jafn mikið
út í hött og að ætla það vegna bóta-
þegans og láglaunamannsins sem
eiga lítinn eða engan séreign-
arsparnað að skattaafsláttur af
sparnaðinum í fáein ár geri eitthvað
að gagni. Vonandi nýtist það þó sum-
um þótt líklega séu margir þegar
búnir að eyða því sem þeir áttu til
vara. Auk þess lendir þessi aðferð á
ríkissjóði sem er ekki of digur fyrir
þessi misserin.
Fjármögnunin –
Fugl í skógi
Til stendur að fjár-
magna þann hluta að-
gerðanna sem fjallar um
almenna skuldaleiðrétt-
ingu með aukinni skatt-
lagningu á fjármálafyr-
irtæki, sem ég held að
fáir séu mótfallnir eins
og sakir standa, en þó
þarf að ákveða þann
partinn á Alþingi ár
hvert ef hann á ekki að
lenda á ríkissjóði. Næst
á svo með óskilgreindum aðferðum
að semja við þrotabú föllnu bankanna
til að ná fé þaðan og eiga þrotabúin
sjálf að hafa frumkvæðið, en auðvitað
veit enginn hve langan tíma slíkt tek-
ur né um árangur. Auðvitað þarf að
ná til ofsagróða þrotabúanna en
spurningin er hvort fé það, sem
þannig næðist, væri ekki betur nýtt
til þess að greiða niður skuldir rík-
isins og til annarra þjóðþrifamála?
Leiðin, sem ekki var farin
Hægri grænir fengu ekki braut-
argengi í kosningunum og má fólk nú
vita hvað það fór á mis við. Ef flokk-
urinn hefði komist til nægilegra
áhrifa þá væri verðtryggingin þegar
löngu afnumin. Það er ennþá hægt að
gera það með því að viðurkenna eða
staðfesta strax lög nr. 108/2007 m.a.
um ólögmæti afleiðna á neyt-
endalánum til almennings eða þá að
setja um það sérstök lög. Þá hefði
flokkurinn ekki tekið það í mál að láta
Seðlabankann ráða ferðinni, stofnun
sem síðustu árin hefur varið verð-
bólguvaldandi verðtrygginguna og
afleiðinguna ofurhátt vaxastig og af-
neitar tilvist magnbundinnar íhlut-
unar, Quantitative easing (mí/Qe),
sem hefur gefist svo vel erlendis
vegna ýmissa afmarkaðra aðgerða.
Sú leið hefði tekið strax á vanda allra
í þessu sambandi, sama hver fjár-
hæðin hefði verið, með því að færa öll
lán í gildi eftir 1.11. 2007 niður um
verðtrygginguna og skuldbreyta
þeim til langs tíma og stilla greiðslu-
byrðina af við greiðslugetuna og láta
svo tímann og ákveðinn vaxtamun
greiða fyrir dæmið innan lokaðs leið-
réttingarsjóðs í Seðlabankanum.
Sem betur fer ýjaði hinn röski for-
sætisráðherra að því að þetta gæti
enn gerst en hvers vegna ekki strax
eða vilja menn bíða eftir því að verð-
tryggingin verði dæmd ólögleg, sem
er mjög líklega á leiðinni? Ekki held
ég að mönnum muni lítast betur á
blikuna þá. Mí/Qe er hins vegar fljót-
virk og ódýr aðferð sem leysti öll
þessi vandamál og ekkert lenti á rík-
issjóði. Málið væri þá úr sögunni fyr-
ir fullt og allt og allir sáttir.
Gjaldeyrishöftin
Það er þrátalað um að afnema
þurfi gjaldeyrishöftin sem fyrst en
lítið gert til þess að svo megi verða.
Gott væri ef að þrotabúunum yrði
gert sem fyrst að skipta gjaldeyr-
iseign sinni yfir í krónur sem mundi
létta mjög undir því að hægt sé að af-
nema höftin, en t.d. Icesavedómurinn
kvað á um að greiða mætti kröfu-
höfum í krónum. Síðast þegar ég vissi
nam þessi eign jafnvirði um 3.000
milljarða króna eða á að fara að
semja um reglur og dóma við
þrotabúin? Auk þess má enn skipta
um íslenskan gjaldmiðil og þvinga
með honum fram samninga við alla
gammana eins og ég hef áður fjallað
um.
Jóla hvað?
Oft er talað um að vilji sé allt sem
þarf. Án þess að ég ætli að vanvirða
einn eða neinn þá er stundum hætta
á að fræði- eða stjórnmálamenn fjar-
lægist lífið niðri á jörðinni og ein-
angrist frá fólkinu og veruleika og
vandamálum þess. Ég hef til þessa
borið mikla von í brjósti og traust til
þessarar ríkisstjórnar. Ég vona ein-
læglega að hún valdi ekki kjósendum
sínum vonbrigðum þegar upp verður
staðið. Hún getur enn gert margt
fljótt og gott ef hún vill það nógu
mikið.
Vonbrigði
Eftir Kjartan Örn
Kjartansson
Kjartan Örn
Kjartansson
» Það er út í hött að
ætla að skattaaf-
sláttur af sparnaðinum
geri bótaþeganum og
láglaunamanninum eitt-
hvað að gagni.
Höfundur er hægri grænn og
fyrrv. forstjóri.
4
4
Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara!
Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara!
Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara!
Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara!
Jólagjöfin
á einstöku verði
www.tivoliaudio.de
thdan@simnet.is