Morgunblaðið - 07.12.2013, Qupperneq 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Hróbjartur Jónatansson hrl. skrifar grein í Morg-
unblaðið 4. desember sl. Í greininni ræðir hann misnotk-
un fjölmiðlamanna á gögnum um einkamál; gögnum,
sem einhver hefur komist yfir á ólöglegan, saknæman
og sérlega ógeðfelldan hátt og afhent fjölmiðlum. Grein-
in er löngu tímabær, og hafi hann þökk fyrir.
Á undanförnum misserum hafa leitað á mig efasemdir
um það siðferði fjölmiðlamanna, að frjálst sé að stela
gögnum úr tölvum og öðrum gögnum einstaklinga og
opinberra aðila og afhenda þessi gögn til birtingar í fjöl-
miðlum. Sú spurning hefur leitað á mig, hvaða hvatir
liggja því að baki, að menn gera sig seka um slíkt.
Ekki minnist ég þess, að þeirri spurningu hafi verið
velt upp, hvort fé sé borið á menn í þessum tilgangi, og
er þó ærið tilefnið. Hitt hefur mér þótt augljóst, að fjöl-
miðlamenn hafa séð fjárhagslegan ávinning síns miðils í
því að birta slíkt, en þeir hafa einlægt skotið sér undan
ábyrgð með því að tala um trúnað gagnvart heim-
ildamönnum sínum. Ekki þykir mér merkilegt siðferði
manna, sem stela gögnum, sem þeim hefur verið trúað
fyrir, og afhenda þau til birtingar, hvort sem það er gert
af hugsjón eða fyrir peninga. Ekki þykir mér merkilegt
siðferði þeirra manna, sem birta stolin gögn í sínum
miðlum til að afla sér vinsælda og fjár.
Oftast er því borið við, að gögnum sé stolið frá ein-
staklingum og opinberum stofnunum, sem hafi óhreint
mjöl í pokahorninu. Sá sem stelur og þjófsnauturinn í
fjölmiðlastétt setjast þá í sæti dómara og meta hvað er
óhreint mjöl.
Svo langt hefur verið gengið í málflutningi fjölmiðla,
að það er kallað árás á tjáningarfrelsi ef ekki má birta
stolin gögn. Svo langt hefur verið gengið í þeim mál-
flutningi, að dómstólar hafa bognað fyrir þeim rökum.
Þetta siðferði fjölmiðlamanna virðist eiga að ríkja í
framtíðinni. Er þá ekki næsta skrefið að einkapóstur
manna sé skorinn upp og afhentur fjölmiðlum (gegn
greiðslu?) til birtingar svo þeir megi dafna af soranum?
AXEL KRISTJÁNSSON
lögmaður.
Fjölmiðlar og
stolin gögn
Frá Axel Kristjánssyni
Bréf til blaðsins
Nú erum við enn og aftur komin í
sömu stöðu og við virðumst því mið-
ur vera í ár eftir ár. Ráðuneyti heil-
brigðismála kemur fram með mis-
gáfulegar og að okkar mati
vanhugsaðar tillögur um niður-
skurð og breytingar á heilbrigð-
isstofnunum á Vestfjörðum. Það er
dapurlegt til þess að hugsa að
ákvörðunin komi fram nú þegar að
ástand í heilbrigðismálum hefur
sjaldan verið jafn viðkvæmt og nú
er.
Það hefur líklega ekki farið fram hjá einu
einasta mannsbarni á Íslandi í dag að það er
ætlun ríkisstjórnarinnar að ná fram halla-
lausum rekstri og það þýðir einfaldlega eitt,
blóðugur niðurskurður og hagræðing. Flest-
ir hafa skilning á þeim vilja, en því miður
verða oft vanhugsaðar ákvarðanir teknar við
slíkar aðstæður, því hagræðingin lítur afar
vel út í Excelnum en endar svo í raunveru-
leikanum á að valda enn meiri kostnaði.
Ein slík Excel-hagræðing liggur nú fyrir
á Vestfjörðum þar sem lagt er til að sameina
heilbrigðisstofnanir Vestfjarða á Ísafirði og
á Patreksfirði án tafar. Það hljómar auðvit-
að eins og góð hugmynd í Excel-skjalinu
enda tvær heilbrigðisstofnanir í sama lands-
hlutanum en staðreyndin er allt önnur. Að
okkar mati hafa fullnægjandi rök ekki verið
sett fram um ágæti þessarar sameiningar og
fráleitt að ætla að fara í tilraunastarfsemi
með jafn viðkvæmt mál.
Í okkar huga er auk þess algjör grund-
vallarforsenda fyrir sameiningu að hægt sé
að vísa til reynslu af gagnkvæmu samstarfi
sem leiði þá mögulega til frekari umræðu
um samvinnu og sameiningu, en í tilviki
þeirra stofnana sem um ræðir þá hefur svo
ekki verið. Það hefur einfaldlega ekki verið
forsenda til þess að hlutirnir þróuðust þann-
ig, enda um að ræða afar viðkvæma þjón-
ustu sem hefur bein áhrif á daglegt líf íbú-
anna og gæði búsetu.
Samstarf milli stofnana eða sveitarfélaga
á Vestfjörðum er þó að sjálfsögðu ekki
óþekkt. En við þekkjum það af eigin raun
hversu erfitt það getur verið að eiga í slíku
samstarfi, þar sem vetrarsamgöngur milli
norður- og suðursvæðis Vestfjarða, geta
ekki talist eðlilegar með um 454 kílómetra á
milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar 6-8 mán-
uði á ári. Þessi vegalengd þýðir að það er
heilsdags ferðalag á milli staða að keyra, já
eða fljúga til Reykjavíkur og fljúga þaðan til
Bíldudals eða öfugt, sem tekur í það minnsta
tvo daga, en þess má geta að kostnaður við
flug fyrir einstakling frá Ísafirði til Patreks-
fjarðar og til baka væri um 100 þúsund
krónur.
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga
hefur lýst yfir andstöðu sinni við sameiningu
og sveitarfélög á Vestfjörðum hafa sömu-
leiðis mótmælt áformum ráðherra. Íbúar í
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi hafa
lýst því á fjölmennum íbúafundi að þeir álíta
fyrirhugaða sameiningu ógna þeirra öryggi
og þá sérstaklega hvað varðar sjálfstæði og
framtíð stofnunarinnar á Patreksfirði. Íbúar
í Vesturbyggð og á Tálknafirði hafa gengið
hús úr húsi til að safna undirskriftum gegn
þessari sameiningu, enda sjaldan verið jafn
mikið í húfi að þeirra mati.
Verður hlustað á íbúa og sveitarstjórnir,
eða hafa þessir aðilar ekkert vægi þegar
jafn mikilvægar ákvarðanir eru teknar?
Við undirritaðar hörmum það að ráðherra
hafi farið í þessa vegferð, algjörlega án sam-
ráðs við heimamenn og íbúa á áhrifasvæð-
inu, sem og að því er virðist án samráðs við
þingmenn kjördæmisins.
Skilaboð okkar til ráðherra og ráðuneytis
heilbrigðismála eru einföld: Hættið við sam-
einingu! Skilaboð okkar til ríkisstjórn-
arinnar og Alþingis eru einföld: Komið í veg
fyrir sameiningu heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða á Ísafirði og heilbrigðisstofnunar á
Patreksfirði með öllum ráðum. Brýnt er að
tekið sé tillit til sérstöðu þeirra byggða sem
ekki njóta jafnra réttinda og aðrir lands-
menn, hvort þá heldur er í formi samgangna
eða annarrar opinberrar þjónustu.
Eftir Albertínu Friðbjörgu
Elíasdóttur og Friðbjörgu
Matthíasdóttur.
» Skilaboð okkar til ráð-
herra og ráðuneytis heil-
brigðismála eru einföld:
Hættið við sameiningu!
Albertína Friðbjörg
Elíasdóttir
Friðbjörg
Matthíasdóttir
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands
og Alþingis Íslendinga
Albertína er forseti bæjarstjórnar í Ísafjarð-
arbæ og formaður Fjórðungssambands Vest-
firðinga. Friðbjörg er forseti bæjarstjórnar í
Vesturbyggð og varaformaður Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga.
Lækjargata 2a og Vesturgata 2a 101 Reykjavík. Opið frá 9 - 22 alla daga