Morgunblaðið - 07.12.2013, Side 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert gefin/n fyrir það að taka
áhættu og nú er eitthvað upp á teningnum
sem hefur heltekið þig svo ekkert fær þig
stöðvað. Farðu varlega í umferðinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu varkár þegar þú þarft að tala út.
Hlustaðu á það sem aðrir segja, tjáskipti eru
þýðingarmeiri en fólk gerir sér almennt grein
fyrir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Metnaður þinn ýtir þér út í að leika
listir þínar þegar rétta fólkið er að fylgjast
með. Skortur á innblæstri er nánast óbæri-
legur. Þú átt allt það besta skilið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú lumar á safaríku leyndarmáli og
blóðlangar til þess að kjafta frá. Bara það að
koma hlutunum á blað losar um innri
spennu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Bara það að sækjast eftir stöðu gerir
hana raunverulega í þínum augum. Þú ert í
góðri stöðu til að sigra heiminn. Láttu það
eftir þér að fara í dekur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu þér hægt í þeim fjárfesting-
arplönum sem þú ert að hugsa um. Gefðu
þér tíma til íhugunar og notaðu frítíma þinn
á uppbyggilegan máta.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst þú eiga eitthvað erfitt með að
einbeita þér og þá er sama hvað þú tekur
þér fyrir hendur. Líttu á samhengi hlutanna
með bros á vör og þá gengur þér allt í hag-
inn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér líður eins og allar syndir
heimsins hvíli á þér. Veldu þau verkefni, sem
þér henta best og láttu aðra um að ganga
frá hinum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Manneskja sem máli skiptir í lífi
þínu þarf ekki að gera mikið til þess að koma
þér úr jafnvægi. Núna finnst þér óþægilegt
að láta kylfu ráða kasti, enda nægur tími til
undirbúnings.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er rétti tíminn til að hringja í
gamla vini eða skrifa þeim línu. Kannski gerir
þú friðarsamkomulag byggt á gagnkvæmu
trausti?
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert á góðri leið með að taka til
í þínum eigin garði. Vissar upplýsingar slá
þig ekki út af laginu eins og aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft á öllum þínum innri styrk að
halda til þess að komast í gegnum þá erf-
iðleika sem við þér blasa. En mannveran er
ótrúlega seig svo ekki gefa upp vonina.
Davíð Hjálmar Haraldssonstenst ekki mátið og yrkir um
nýlegan leka á persónugögnum frá
símafyrirtæki í borginni:
Vitnast allt hjá Voðafón
sem var þar látið flakka:
Selma keypti sagógrjón
og 17 verjupakka.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi, prjónar við það:
Vitnast allt hjá Voðafón
víða roðnar kinn.
Halla fór að hitta Jón
og hundsar kallinn sinn.
Á DV.is birtist frétt um erfða-
fræðing sem segir menn hafa orðið
til við æxlun apa og svína. Ármann
Þorgrímsson var fljótur að kasta
fram:
Sannleik ekki segja máttu,
sjálfsagt ertu haugruglaður:
„Svín og api saman áttu
sælustund og úr varð maður.“
Ragnar Ingi Aðalsteinsson stenst
ekki mátið:
Kenning sem þessi hún kveikir á peru,
það kemur til mín
að langflestir meðbræður okkar þeir eru
apar og svín.
Jón Gissurarson rifjar upp vísur
eftir Gísla Björnsson fyrrverandi
bónda og oddvita á Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð, en þær rakst hann á er
hann grúskaði í gömlu handriti
Gísla. Þær eru stafsettar eins og
Gísli gekk frá þeim. Sú fyrri ber yf-
irskriftina Á mölinni:
Hér er alin hrekk vísi
hér eru galin læti
hér á malar helvíti
hart er undir fæti.
Og Gísli var orðinn gamall er
hann gerði þessa vísu: Þetta líf já
það er stríð, þó skal ekki víla, bein-
in mín í Blönduhríð bráðum fá að
hvíla.
Annars var Jón sjálfur í níræð-
isafmæli Björns Eysteins Jóhann-
essonar, fyrrverandi bónda í Stokk-
hólma í Skagafirði. Þetta var
fjölmenn veisla og Jóni varð að
orði:
Níutíu ára er’ann
ýmislegt þó fallegt sér’ann
margir hérna vildu ver’ann
verðum líka öll að þér’ann.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Voðafón, helvíti,
svíni og apa
Í klípu
„ÉG GLEYMI ÞVÍ ALLTAF - ERUM
VIÐ MEÐ EÐA Á MÓTI KLÓNUN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÚN GETUR BEÐIÐ UM
RAÐGREIÐSLUR Á 14 TUNGUMÁLUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skrúfa fyrir hljóðið
þegar hún er að læra.
REYNDU AÐ
NÁ BANDINU,
GRETTIR!
BARA EF
ÞAÐ OPNAR
FALLHLERA.
ÞETTA ER LJÚFFENGT,
INNFLUTT VÍN SEM FÆST Á
MJÖG GÓÐU VERÐI ...
HVAÐAN ER ÞAÐ
FLUTT INN?
FRÁ
HVERAGERÐI.
Það er erfitt að skrifa um e-ð ann-að en frosthörkuna, jólahaldið
og allt sem þessi erilsami jólamán-
uður hefur upp á að bjóða. Á leið í
vinnuna heyrði Víkverji brot út
þætti á RÚV. Einstaklega skemmti-
legum þætti, Sagnaslóð heitir sá.
Þar er dregin upp mynd af alþýðu-
fólki þessa lands á síðustu öldum.
x x x
Sagt var frá manni sem hafði alistupp í mikilli fátækt. Foreldrar
hans hröktust á milli bæja og þurftu
að endingu að skilja vegna fátæktar
og honum komið fyrir hjá vandalaus-
um, þar sem ást og matur var af
skornum skammti. En þorstinn eftir
visku og lærdómi dreif þennan ein-
stakling áfram í von um betra líf.
x x x
Þetta vakti Víkverja aðeins til um-hugsunar. Upplýsingaflæðið, val
um betra líf og menntun er enda-
laust. Þessu er tekið sem sjálfsögð-
um hlut í nútímasamfélagi. Víkverji
hefur aðeins stundað það undanfarið
að hlaupa á milli búða í kapp við tím-
ann í von um að ná örugglega besta
tilboðinu fyrir jólin. Sankað að sér
skrani og birgt sig upp af ýmsu góð-
gæti og góssi. Því ekki má nú svelta.
x x x
Í viðlíka frosthörku eins og hefurverið undanfarið þá getur Víkverji
ekki annað en rómað þennan hlýja
nýtískufatnað sem velflestir eiga.
Þessar flíkur hafa vægast sagt kom-
ið sér vel og veitt mikið skjól. Hvern-
ig fór fólk að hér áður fyrr? spyr
Víkverji oftar en ekki. Svarið er
hreinlega – það dó. Íslendingurinn
sem þú ert – þú mátt þakka fyrir að
vera á lífi.
x x x
Víkverja þykir oftar en ekki fólkgleyma því að bera virðingu fyr-
ir harkinu sem fyrri kynslóðir lögðu
á sig til þess eins að lifa og koma af-
komendum á legg. Við viljum alltaf
meira og meira; ekkert er nóg.
x x x
Að þessu sögðu þá ætlar Víkverjiað skunda á heitum jeppanum
og næla sér í súsí. Ekki sættir mað-
ur sig við neitt annað.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína. (Sálmarnir 66:20)
HEITT & KALT
Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is | www.heittogkalt.is
Hátíðarstemning
að þínu vali:
Þægileg jólaveisla
Heimilisleg jólaveisla
Klassísk jólaveisla
Jólasmáréttir
Jólaveisla sælkerans
Verð á mann frá: 4.890 kr.
Allar upplýsingar og matseðlar
á www.heittogkalt.is
Jólaveisla
Fyrirtækja- og veisluþjónusta