Morgunblaðið - 07.12.2013, Síða 60
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Stundaði kynlíf með sjúklingi
2. Vændiskonur staðgenglar …
3. Lögreglumaður sakfelldur
4. Leiðréttingin ávísun á vonbrigði
Norræn kvikmyndagerð hlaut sér-
stök heiðursverðlaun á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Marrakech í
Marokkó 4. desember sl. Á hátíðinni
var fjöldi kvikmynda frá Norðurlönd-
unum sýndur og tók einn leikstjóri
frá hverju landi við hinum sameig-
inlegu verðlaunum, Dagur Kári Pét-
ursson fyrir Íslands hönd.
Bandaríski leikstjórinn Martin
Scorsese var forseti dómnefndar há-
tíðarinnar og fór fögrum orðum um
norræna kvikmyndagerð í opnunar-
ræðu sinni. Þrjár íslenskar kvikmynd-
ir voru sýndar á hátíðinni, 101 Reykja-
vík eftir Baltasar Kormák, Nói albínói
eftir Dag Kára og Borgríki eftir Ólaf
Jóhannesson. Af einstökum gestum
hátíðarinnar má nefna kvikmynda-
stjörnurnar Noomi Rapace, Marion
Cotillard og Mads Mikkelsen og leik-
stjórann Susanne Bier.
Morgunblaðið/Kristinn
Dagur Kári tók við
heiðursverðlaunum
Hinir ástsælu Spaðar halda tón-
leika í kvöld kl. 22 á Café Rosenberg.
Hljómsveitin varð þrítug á árinu og
fagnaði því með útgáfu hljómplöt-
unnar Áfram með smjörið. Í kvöld
munu Spaðar m.a. leika lög af plöt-
unni og þ. á m. „Þorláksmessukall“,
fyrsta og eina jólalag hljómsveit-
arinnar sem fjallar um hlutskipti
þeirra sem eru undir áhrifum og lykta
af skötu á Þorláksmessu, eins og
Spaðar lýsa því. Spaða skipa Guð-
mundur Andri Thorsson, Guðmundur
Ingólfsson, Aðalgeir
Arason, Þorkell
Heiðarsson,
Magnús Haralds-
son, Guðmundur
Pálsson og Sig-
urður G. Val-
geirsson.
Feriltónleikar og
jólalag hjá Spöðum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 15-23 m/s og snjókoma um landið sunnanvert, hvassast
syðst. Dregur úr vindi og úrkomu sunnanlands eftir hádegi. Austan 10-18 m/s í kvöld.
Frost 0 til 10 stig síðdegis, mildast syðst.
Á sunnudag Suðaustan 10-20 m/s með snjókomu en síðan slyddu eða jafnvel rigningu
sunnan- og vestantil en úrkomulítið norðaustantil fram eftir degi. Snýst í suðvestanátt
með éljum vestantil um kvöldið. Minnkandi frost, en hiti 1 til 4 stig með suðurströndinni.
Mikið var um dýrðir í Costa do Sauipe
í Brasilíu í gær þar sem dregið var í
riðla fyrir heimsmeistarakeppnina í
fótbolta sem fram fer þar í landi á
næsta ári. Heimamenn leika upphafs-
leikinn gegn Króatíu sem komst á HM
með því að leggja Ísland í umspili,
Englendingar eru í erfiðum riðli með
Úrúgvæ og Ítalíu og Aron Jóhannsson
mætir Cristiano Ronaldo. »1
Riðlarnir fyrir HM í
Brasilíu klárir
„Þetta hefur verið mikið æv-
intýri hjá okkur síðan í
haust,“ segir Alexander Stef-
ánsson, blakmaður hjá
sænska liðinu Göteborg Unit-
ed, en hann og Ingólfur Hilm-
ar Guðjónsson úr Íslands-
meistaraliði HK á síðasta vori
gengu til liðs við sænska liðið
í byrjun október. Liði Göte-
borg United hefur gengið
flest í haginn og er þegar
komið upp um deild. »4
Mikið ævintýri síð-
an í haust
Flest bendir til þess að landsliðs-
markvörðurinn Guðbjörg Gunn-
arsdóttir gangi í raðir þýska stórliðs-
ins Turbine Potsdam. Guðbjörg æfði
með liðinu í vikunni og fékk þau
skilaboð frá forráðamönnum félags-
ins að samningstilboð væri á
leiðinni til hennar. Skrifi
Guðbjörg undir samn-
inginn mun hún ganga í
raðir Potsdam í janúar
og semja til eins og
hálfs árs. »3
Guðbjörg fer líklega til
eins besta liðs í heimi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þú ert nú meiri jólasveinninn,“ er
kunnugt orðatiltæki en sennilega
hafa fáir fengið að heyra það eins
oft og Hurðaskellir og Stúfur eða
öðru nafni Magnús Ólafsson leikari
og Þorgeir Ástvaldsson, útvarps-
maður á Bylgjunni.
Félagarnir hafa verið í jólasveina-
bransanum í áratugi en byrjuðu
saman 1982. „Við tókum við sem
jólasveinar af Ómari Ragnarssyni,
þegar hann sagðist ekki nenna
þessu lengur,“ segir Magnús. Þor-
geir bætir við að Ómar hafi verið í
allt of mörgum hlutverkum í leikriti
lífsins og beðið Gáttaþef að halda
sig til hlés. „Þá stukkum við fram á
sjónarsviðið.“
Handteknir 1982
Magnús segir að byrjunin hafi
ekki lofað góðu. „Fyrsta árið ætl-
uðum við að fara niður á Alþingi og
gefa þingmönnunum epli,“ rifjar
hann upp. „Það endaði með því að
þangað komu tveir lögreglubílar og
átta lögregluþjónar og ég var hand-
tekinn.“ Þorgeir segir að hann hafi
komist undan á hlaupum og komið
sér upp í Útvarpshús á Skúlagöt-
unni. „Ég náði varla andanum þegar
Jón Múli Árnason kom og spurði
frétta. Honum þótti sagan góð,
breytti fréttatímanum og hóf lest-
urinn með fyrstu frétt: „Sá fáheyrði
atburður gerðist í Reykjavík nú
laust eftir hádegið að þingverðir
létu handtaka jólasveina …“
Félagarnir hafa skemmt víða
saman og meðal annars gefið út
þrjár jólaplötur. „Vinsælasta platan
er Stúfur og Hurðaskellir staðnir að
verki,“ segir Þorgeir.
Þegar jólasveinar eru annars veg-
ar hafa Magnús Ólafsson og Þorgeir
Ástvaldsson alltaf komið fram sem
Hurðaskellir og Stúfur. „Okkur
fannst vaxtarlagið á okkur vera
þannig, þegar við byrjuðum, Þor-
geir svona lítill og ég svona stór og
mikill, þegar ég var sem stærstur,“
segir Magnús. „Þetta eru miklar
andstæður,“ segir Þorgeir. „Hurða-
skellir er stórtækur í öllu, klaufi og
hefur hátt, en Stúfur er samn-
ingalipur og laginn og kemur ýmsu í
kring. Hann er líka fljótari að
hlaupa.“
Magnús áréttar að það sé mjög
krefjandi að vera jólasveinn og þeir
vandi vel til verka með vandaðri
dagskrá. „Sumar helgar höfum við
verið á fjórum til átta jólaböllum.
Ein jólin stakk Þorgeir upp á því að
við hefðum fugladansinn. Þá var
Þorgeir með nikkuna uppi á sviði og
ég sendur út í sal að dansa fugla-
dansinn. Ég var rosalega feitur og
mikill og var alveg búinn, að ég tali
ekki um eftir átta skemmtanir sömu
helgina. Þetta tók rosalega á en við
gerum þetta alltaf af fullum krafti.“
Ekkert stöðvar jólasveinana
Magnús og
Þorgeir saman í
yfir þrjátíu ár
Morgunblaðið/Ómar
Alltaf vinsælir Þorgeir Ástvaldsson með nikkuna og Magnús Ólafsson þekkja Stúf og Hurðaskelli manna best.
Þegar Þorgeir var í Mennta-
skólanum í Reykjavík leitaði
hann til fjalla með Gísla Baldri
Garðarssyni, skólabróður sínum,
til að bæta fjárhaginn. Síðan lá
Stúfur í dvala í um áratug áður
en hann tók aftur upp fyrri iðju.
Í yfir 30 ár hefur Þorgeir sem
Stúfur dreift jólapökkum á að-
fangadag. Einu sinni mætti hann
í barnaboð og ætlaði inn í húsið
um þakglugga. „Ég var með full-
an poka af pinklum og litla
harmoniku á bakinu, en þegar ég
náði þakbrúninni fauk stiginn og
ég hékk á rennunni. Það varð
mér til lífs að nágranni átti leið
hjá og bjargaði mér.“ Öðru sinni
hafði Stúfur boðað komu sína til
vinar síns og mætti á tilteknum
tíma. Hann bankaði án afláts en
engin viðbrögð. Hann bankaði
fastar og tók þá eftir hreyfingu
innanhúss. „Ég tók í hurðina og
hristi hana. Þá var opnað var-
færnislega og ég sá fimm eða
sex manna indverska fjölskyldu
nær dauða en lífi af hræðslu.
Þetta fólk hafði aldrei séð jóla-
svein en vinur minn hafði gleymt
að segja mér að hann væri flutt-
ur.“
Indverjar nær dauða en lífi
STÚFUR HEFUR STAÐIÐ Í STRÖNGU