Morgunblaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna,
bókmenntaverðlauna kvenna, voru
kynntar í Aðalsafni Borgarbóka-
safns Reykjavíkur í gær. Alls eru
níu bækur tilnefndar til verð-
launanna, þrjár í hverjum flokki, þ.e.
flokki fagurbókmennta, fræðibóka
og barna- og unglingabóka.
Í flokki barna- og unglingabóka
eru tilnefndar bækurnar: Freyju
saga – Múrinn eftir Sif Sigmars-
dóttur sem Mál og menning gefur
út; Strokubörnin á Skuggaskeri eftir
Sigrúnu Eldjárn sem Mál og menn-
ing gefur út og Stína stórasæng eftir
Lani Yamamoto sem Crymogea gef-
ur út. Í umsögn dómnefndar um
Freyju sögu - Múrinn segir m.a.:
„Hún er listavel skrifuð og Sif nær
að halda lesendum í heljargreipum.“
Um bók Sigrúnar segir: „Stroku-
börnin á Skuggaskeri er sammann-
leg saga um málefni sem skipta alla
máli.“ Um Stínu stórasæng segir:
„Bókin er óvenju falleg, ljúf og
vönduð að allri gerð og er kærkomin
viðbót í íslenska myndabókaflóru.“
Í flokki fagurbókmennta eru til-
nefndar bækurnar: Af hjaranum eft-
ir Heiðrúnu Ólafsdóttur sem Ung-
mennafélagið Heiðrún gefur út;
Dísusaga – Konan með gulu töskuna
eftir Vigdísi Grímsdóttur sem JPV
gefur út og Stúlka með maga – skál-
dættarsaga eftir Þórunni Erlu- og
Valdimarsdóttur sem JPV gefur út.
Í umsögn dómnefndar um Af hjar-
anum segir m.a.: „Ljóðin eru ort af
smekkvísi, kímni og hlýju og verða
lesendum sérlega eftirminnileg fyrir
vikið.“ Um bók Vigdísar segir:
„Dísusaga opnar öll fyrri verk höf-
undar því Dísa segir frá. Hún vill
engu leyna og opnar ýmis sár og
hittir lesandann í hjartastað.“ Um
Stúlkuna með maga segir: „ Rödd
sögukonunnar er sterk og frumleg,
eins og sagan sjálf, hæðin þegar það
á við, en líka elsku- og hugg-
unarrík.“
Í flokki fræðibóka og rita almenns
eðlis eru tilnefndar bækurnar: Sag-
an af Guðrúnu Ketilsdóttur. Ein-
sögurannsókn á ævi 18. aldar vinnu-
konu eftir Guðnýju Hallgrímsdóttur
sem Háskólaútgáfan gefur út;
Prjónabiblían eftir Grétu Sörensen
sem Vaka Helgafell gefur út og
Önnur skynjun – ólík veröld. Lífs-
reynsla fólks á einhverfurófi eftir
Jarþrúði Þórhallsdóttur sem Há-
skólaútgáfan gefur út. Í umsögn
dómnefndar um bók Guðnýjar segir
m.a.: „Guðný sýnir hvernig hægt er
að gera áhugaverða sögu úr heimild
sem virðist harla brotakennd og
hafði af mörgum fyrri fræðimönnum
verið talin lítils virði.“ Um Prjónabi-
blíuna segir: „Bókin veitir nýtt sjón-
arhorn á prjónaskap.“ Um bók Jar-
þrúðar segir: „Bókin er skrifuð af
næmum skilningi á einhverfu.“
Níu bækur tilnefndar
til Fjöruverðlaunanna
Bókmenntaverðlaun kvenna afhent í febrúar á næsta ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilnefning F.v. Heiðrún Ólafsdóttir, Þóra S. Ingólfsdóttir f.h. Vigdísar, Jar-
þrúður Þórhallsdóttir, Guðný Hallgrímsdóttir, Gréta Sörensen, Sigrún Eld-
járn, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir, Sif Sigmarsdóttir og Lani Yamamoto.
Jólatónleikar Söngfjelagsins verða
haldnir í Grafarvogskirkju laugar-
daginn 14. desember kl. 17 og
sunnudaginn 15. desember kl. 18. Á
efnisskránni verða þekkt og sígild
jólalög í bland við nýrri tónlist frá
ýmsum löndum.
Gestir Söngfjelagsins eru að
þessu sinni kórinn Vox Populi og
kvartettinn Mr. Norrington, Björg
Þórhallsdóttir sópran, Kristjana
Arngrímsdóttir alt og Ragnheiður
Gröndal, ásamt kammersveit.
Stjórnandi er Hilmar Örn Agn-
arsson. Frumflutt verður nýtt jóla-
lag eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson
tónskáld, sem samið var fyrir
Söngfjelagið af þessu tilefni, og
Ragnheiður Gröndal frumflytur
einnig nýtt jólalag. Miðasala á midi-
.is og við innganginn.
Jólatónleikar
Söngfjelagsins
Sópran Björg Þórhallsdóttir.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Pollock? (Kassinn)
Lau 14/12 kl. 19:30 24.sýn Sun 15/12 kl. 19:30 25.sýn
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýnigar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn
Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23.
sýn
Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn
Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 14/12 kl. 11:00 Sun 15/12 kl. 12:30 Lau 21/12 kl. 14:30
Lau 14/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 14:00 aukas. Sun 22/12 kl. 11:00
Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 12:30
Sun 15/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:00 aukas.
Uppselt á allar sýningar!
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn
Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30
Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Fetta bretta (Kúlan)
Lau 14/12 kl. 14:00 Lau 14/12 kl. 15:30
Ný barnasýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 mánaða til 3ja ára.
Mary Poppins –★★★★★ „Bravó“ – MT, Ftíminn
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 13/12 kl. 19:00 Fös 27/12 kl. 19:00 Lau 4/1 kl. 13:00
Lau 14/12 kl. 19:00 Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00
Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 12/1 kl. 13:00
Fim 26/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Fim 19/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fös 20/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Lau 28/12 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Sun 29/12 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Þri 17/12 kl. 20:00 Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla bíói Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Mið 18/12 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Flytur í Gamla bíó í janúar v. mikilla vinsælda
Hamlet (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Fim 23/1 kl. 20:00 6.k.
Þekktasta leikrit heims
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 21/12 kl. 20:00 12.k Lau 4/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Sun 22/12 kl. 20:00 Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 14/12 kl. 11:00 aukas Lau 21/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 13:00
Lau 14/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 14:30 Fös 27/12 kl. 14:30
Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 16:00 aukas Lau 28/12 kl. 13:00
Sun 15/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 14:30
Sun 15/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 13:00
Sun 15/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas Sun 29/12 kl. 14:30 aukas
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
Tilboðin gilda sunnudaga til fimmtudaga.
Munið að framvísa Moggaklúbbskortinu.
Borðapantanir í síma 445 9500
2 FYRIR 1 AF MATSEÐLI
EÐA
25% AFSLÁTTUR
AF JÓLAMATSEÐLI
Á VEITINGASTAÐNUM
MADONNA TIL 19. DES.