Morgunblaðið - 12.12.2013, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
Ógleymanleg
jól með Pandora
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
JÓLATILBOÐ 1
Leðurarmband og snjókúla kr. 14.900.-
JÓLATILBOÐ 2
Silfurarmband með skínandi kúlu kr. 19.900.-
MÍN SAGA, MÍN HÖNNUN
Upplifðu jólin með okkur – ný jólalína
Óvenjuleg ljóðabók EiríksArnar Norðdahl, Hnefieða vitstola orð, hefst á„Formála: Kreppusonn-
ettunni“ þar sem fimm skammstaf-
anir eru endurteknar aftur og aft-
ur í sonnettuhætti, studdar
upphrópunarmerkjum. Það eru
IMF!, OMG!, FME!, FIT! og
LOL! Og tónninn er sleginn.
Gjaldeyrissjóðurinn, Fjármálaaft-
irlitið og fliss. Þetta er bálkur ag-
gressífra og háværra kreppuljóða,
eins konar kreppuljóðapönk, ljóð
ort í útlöndum „meðan Ísland
brann, bankar hrundu og ráð-
herrar brugðust“, eins og segir í
káputexta. Skáldið sat erlendis og
horfði á gengið falla og tekjur sín-
ar „verða að engu í gengisfim-
leikum“.
Þetta er óvenjuleg bók að ytra
sem innra formi,
13 x 13 cm, og
þar sem lesand-
inn er vanur að
sjá blaðsíðutal á
síðunum birtist
fölleitt gengi
evrunnar hverju sinni; 81,98 ISK í
byrjun og 171,45 ISK í lokin. Heiti
allra ljóðanna er það sama, X.,
enda er verkið eitt heildstætt
flæði, textarnir færast um síður í
anda konkretljóða og sækja sitt-
hvað til Dada, súrrealisma og fút-
úrista, og kalla að mati þessa les-
anda á að skáldið lesi þau fyrir
hann, hátt og ákveðið.
Fleiri skuldir
Meiri skuldir
Betri skuldir
Þannig hefst bókin og með þessa
írónísku vissu er vaðið af stað; oft
talar ljóðmælandinn digurbarka-
lega, er fullur sjálfsöryggis, en
heimurinn hrynur engu að síður
reglulega yfir hann, allt er merkt
óvissunni, sjá má vonarglætu en
heldur fer þó meira fyrir myrkr-
inu, vonleysinu, háðinu og yfir öll-
um bálkinum ríkir þessi of-
urmælska og flæðandi vitund.
Vísað er í bókmenntir, fjölmiðla,
samskiptamiðla, hugmyndir og
stjórnmál, ekkert er heilagt, sífellt
er snúið út úr tungumálinu, farið í
orðaleiki, þulur spunnar, máls-
hættir búnir til og efast um allt –
enda heimurinn kominn á hvolf.
Á einni síðunni er orðið „ÚT-
RÁST“ endurtekið sjö sinnum, á
þeirri næstu er orðið aðeins eitt:
„Göfuguggi!“; þá kemur að ótt-
arunu sem hefst þannig: „Kveikið
ljósið það er myrkt
Óttast gjaldþrotaskipti & óttast
innheimtuaðgerðir & óttast kröfur
í þrotabú & óttast innheimtumenn
ríkissjóðs …“ Mörgum línum neð-
ar, eftir að hafa útmálað sig um
allrahanda ótta, endar textinn
þannig: „… & óttast & óttast &
óttast baráttuna um ímynd Íslands
Slökkvið ljósin, það er háttatími“
Dæmi um annað ljóð er:
„Kraftur, friður, frelsi, geisp /
Orka, auður, framsýni, geisp /
Snerpa, kjarkur, sannleikur, geisp
/ Bjartsýni, djörfung, reynsla,
geisp // Japl, jaml, fuður geisp.“
Um það má deila hversu djúpur
skáldskapurinn er, en skáldinu
liggur hins vegar mikið á hjarta,
því liggur hátt rómur, og Hnefi
eða vitstola orð birtir markverð
viðbrögð einangraðs skálds í út-
löndum við gerningaviðri efna-
hagshrunsins.
Morgunblaðið/Ómar
Efast „Vísað er í bókmenntir, fjölmiðla, samskiptamiðla, hugmyndir og stjórnmál, ekkert er heilagt, sífellt er snúið
út úr tungumálinu, farið í orðaleiki, þulur spunnar, málshættir búnir til og efast um allt,“ segir m.a. í dómi.
Orka, framsýni, geisp
Ljóð
Hnefi eða vitstola orð bbbmn
Eftir Eirík Örn Norðdahl.
Mál og menning, 2013. 144 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Sérstök hátíðardagskrá til heiðurs
Edvard Munch hefst í Listasafni Ís-
lands í dag kl. 17, en liðin eru 150
ár frá fæðingu þekktasta myndlist-
armanns Norðurlanda.
„Í fórum Listasafnsins eru 18
ómetanlegar grafíkmyndir eftir
listamanninn,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Á dagskránni í dag flytja m.a.
ávörp þeir Halldór Björn Runólfs-
son safnstjóri og Dag Wernø Hol-
ter, sendiherra Noregs á Íslandi. Ástin Á öldum ástarinnar eftir Munch.
Hátíðardagskrá til
heiðurs Munch
Vatnið í náttúru Íslands, lokabindi
hinnar miklu ritraðar Guðmundar
Páls Ólafssonar um íslenska nátt-
úru, kemur út í dag. Af því tilefni
hefst útgáfuhátíð klukkan 17 í
Hörpu, þar sem einnig verður opn-
uð sýning á ljósmyndum Guð-
mundar og sýnd endurgerð kvik-
myndar hans og Óla Arnar
Andreasen – Mörg eru dags augu.
Guðmundur féll frá árið 2012
þegar verkið var langt komið en
nánir samverkamenn hans hafa bú-
ið það til prentunar, þar á meðal
dóttir hans Blær sem annast um-
brot bókarinnar og frændi hans
Leifur Rögnvaldsson sem annast
hefur ljósmyndahliðina.
Guðmundur Páll hafði unnið að
bókinni árum saman og ferðaðist
hann víða um heim til að fá sem
gleggstan skilning á þýðingu vatns-
ins fyrir lífið á jörðinni, og til að
safna ljósmyndum.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fjölhæfur Leifur Rögnvaldsson gengur frá upphengingu sýningarinnar á
myndum Guðmundar Páls í Hörpu. Þær fjalla um vatn frá ýmsum hliðum.
Bók um vatnið kemur
út og sýning opnuð
Hljómsveitirnar Halleluwah, Vök
og Good Moon Deer bjóða til raf-
poppstónleikaveislu á Harlem í
kvöld sem hefst kl. 21.30. Halle-
luwah skipa Sölvi Blöndal og söng-
konan Rakel Mjöll, og Vök, sig-
ursveit síðustu Músíktilrauna, þau
Margrét Rán, Andri Már og Ólafur
Alexander. Good Moon Deer er
skipuð þeim Guðmundi Inga og Ív-
ari Pétri Kjartanssyni.
Vök Andri Már og Margrét Rán.
Rafpopp á Harlem
Um 15 mánuðir
eru liðnir frá því
Ásgeir, þá nefnd-
ur Ásgeir
Trausti, hélt út-
gáfutónleika í
Reykjavík, á Ak-
ureyri og
Hvammstanga
vegna plötunnar
Dýrð í dauða-
þögn. Ásgeir mun endurtaka leik-
inn nú í árslok, eftir að hafa haldið
um 160 tónleika víða um heim.
Föstudaginn 27. des. kemur hann
fram í Gamla bíói, 28. des. á Græna
hattinum, Akureyri og 29. des. í fé-
lagsheimilinu á Hvammstanga.
Norska tónlistarkonan Farao hitar
upp tónleikagesti.
Ásgeir 160 tón-
leikum síðar
Ásgeir
Sérstök hátíðarsýning fyrir boðs-
gesti verður haldin í Smárabíói í
kvöld á kvikmynd leikarans og leik-
stjórans Bens Stillers, The Secret
Life of Walter Mitty. Myndin var
tekin upp hér á landi í fyrrasumar
og fóru nokkrir íslenskir leikarar
með hlutverk í henni, m.a. Ólafur
Darri, Gunnar Helgason, Ari Matt-
híasson og Þórhallur Sigurðsson,
en Stiller fer með aðalhlutverkið.
Tónlist íslensku hljómsveitarinnar
Of Monsters and Men hljómar í
myndinni og munu liðsmenn úr
hljómsveitinni sækja sýninguna í
kvöld, að því er segir í tilkynningu.
Fyrirtækið True North aðstoðaði
Stiller og tökulið hans við gerð
myndarinnar og mun tökulið True
North taka upp efni í kvöld á sýn-
ingunni fyrir bandarískar sjón-
varpsstöðvar á borð við VH1, NBC,
CBS og Fox. Fulltrúar erlendra
fjölmiðla munu einnig sækja sýn-
inguna, m.a. frá VH1 News, Parade
Magazine, NBC Newsfeed, Fox and
Friends / Fox DC, Breitbart News,
The Film Experience og CBS Phoe-
nix. Almennar sýningar á myndinni
hefjast 3. janúar næstkomandi.
Íslandsvinur Stilla úr kvikmynd Still-
ers, The Secret Life of Walter Mitty.
Hátíðarsýning á
kvikmynd Stillers