Morgunblaðið - 18.12.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
Jólagjafahugmyndir
Peysa, sjal, leðurtaska, skór, kápa, kjóll…
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Gjöfin
sem vermir
GÆÐI OG GÓÐ ÞJÓNUSTA Í MEIRA EN 70 ÁR!
FÖNIX Raftækjaverslun • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • fonix@fonix.is • www.fonix.is
Nilfisk er
hrein snilld
fyrir jólin!
Um áratugaskeið hafa Nilfisk ryksugurnar
sannað yfirburði sína sem gæðamerki sem
uppfyllir ströngustu kröfur
FÖNIX Raftækjaverslun • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • fonix@fonix.is • www.fonix. s
Elite Comfort
Almennt verð:
Verð nú: 58.80
74.200
0
Coupe Neo
Almennt verð: 26.800
Verð nú: 19.800
Handy 2 in 1 - 18 v
Almennt verð: 29.800
Verð nú: 23.400 Handy 2 in 1 - 14 vt verð: 24.800
: 19.800
nn
nú
Power Eco
Almennt verð: 56.800
Verð nú: 39.800
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
HÁRBEITT
SKEMMTISAGA
„Ný Íslendingasaga.
Launfyndin og víða
sprenghlægileg
samfélagsskoðun, uppfull
af gæsku og gamansemi ...“
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
HHHH
FRÁSAGNARGLEÐI,
NÆMI, GRÁGLETTNI.
„SÖGUSVIÐIÐ ER
HLÍÐARDALUR
... DALURINN ER
UNDARLEGA LÍKUR
FLJÓTSHLÍÐINNI.“
SKAFTI Þ. HALLDÓRSSON /
MORGUNBLAÐIÐ
Fangelsi
og 92 millj-
ónir í sekt
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
framkvæmdastjóra einkahluta-
félags fyrir meiri háttar brot gegn
skattalögum. Maðurinn var dæmd-
ur í 10 mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til að greiða 92 milljónir
króna í sekt til ríkissjóðs. Tólf
mánaða fangelsi kemur í stað sekt-
arinnar verði hún ekki greidd inn-
an fjögurra vikna.
Hann var framkvæmdastjóri,
stjórnarmaður og prókúruhafi
einkahlutafélags sem tekið var til
athugunar í september 2011. Skatt-
rannsóknarstjóri ríkisins vísaði
málinu til embættis sérstaks sak-
sóknara með bréfi dagsettu 8. júní
2012.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
hann sé sakfelldur fyrir að hafa
ekki staðið skil á skilagreinum
einkahlutafélagsins vegna stað-
greiðslu opinberra gjalda á lög-
mæltum tíma, vegna greiðslu-
tímabilanna september til
desember rekstrarárið 2009 og jan-
úar til desember rekstrarárið 2010
og fyrir að hafa ekki staðið rík-
issjóði skil á staðgreiðslu opinberra
gjalda sem haldið var eftir af laun-
um starfsmanna félagsins vegna
sömu greiðslutímabila, samtals að
fjárhæð 46.035.824 krónur.
Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað
samninganefndir Samtaka atvinnu-
lífsins og landssambanda Alþýðu-
sambands Íslands til nýs samninga-
fundar eftir að upp úr viðræðum
slitnaði í fyrradag. „Við sjáum hvað
gerist á næstu dögum. Vonandi
hreyfist eitthvað í vikunni þótt ég sé
svartsýn á það,“ sagði Ólafía B.
Rafnsdóttir, formaður VR.
Starfsgreinasamband Íslands,
Flóabandalagið og Landssamband
íslenskra verslunarmanna hafa vísað
kjaradeilu til ríkissáttasemjara, auk
VR. Formenn landssambandanna
hittust á fundi í gær til að ræða stöðu
mála. Skeytin hafa gengið á milli for-
ystumanna ASÍ og SA. Á vef ASÍ í
gær var það tekið fram að hugmynd-
ir ASÍ-félaganna um launahækkanir
væru vel innan þeirra þolmarka um
verðbólgu sem Seðlabanki Íslands
hefði nefnt.
Verðbólga myndi vaxa
Þessu er mótmælt í yfirlýsingu á
vef Samtaka atvinnulífsins. Ítrekað
er það markmið samtakanna í yfir-
standandi samningalotu að leggja
grunn að stöðugu verðlagi og betri
lífskjörum. Það mat er lagt á óform-
legar tillögur ASÍ um 3,25% launa-
hækkun, að lágmarki 11 þúsund kr.
hækkun mánaðarlauna, að þær feli í
sér liðlega 4% hækkun launakostn-
aðar.
„Ef sú yrði niðurstaða kjarasamn-
inga og við bættist síðan önnur
launamyndun […] gæti launavísitala
ársins 2014 hækkað um 5-6%. Það
myndi leiða til vaxandi verðbólgu og
stuðla að enn hærri vöxtum sem
bitna illa á skuldsettum fyrirtækjum
og heimilum,“ segja Samtök atvinnu-
lífsins. helgi@mbl.is
Ekki boðað til nýs fundar
Deilt um áhrif óformlegs tilboðs ASÍ á verðlagsþróun