Morgunblaðið - 18.12.2013, Síða 19
markaðinum London Metal Ex-
change þrýst verðinu enn meira nið-
ur, að mati sérfræðinga.
Stóð ekki til að selja strax
Eiríkur bendir á að Magma-bréfið
hafi aldrei verið á eignasölulista
Orkuveitunnar, en í Planinu svo-
nefnda, aðgerðaáætlun sem stjórn og
eigendur OR réðust í vorið 2011 til að
bæta rekstrarafkomuna, var gert ráð
fyrir að fyrirtækið myndi eiga skulda-
bréfið fram að gjalddaga í árslok
2016.
„Síðan virtist sem svo að áhugi
væri fyrir kaupum á bréfinu og var þá
farið yfir það hvort rétt gæti verið að
agna kaupin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
selja,“ segir Eiríkur Hjálmarsson.
„Tilboði var tekið með fyrirvara um
fjármögnun en ekki tókst að ljúka
henni í tæka tíð. Menn eru nú bara að
íhuga stöðuna. Það er áfram heimild
sem forstjórinn hefur frá stjórn
Orkuveitunnar til að selja bréfið ef
önnur tækifæri gefast.“ Nokkrir fjár-
festar, bæði innlendir og erlendir,
hafi sýnt bréfinu áhuga.
Aðspurður hvort nú sé rétti tíminn
til að selja bréfið segir Eiríkur það
vera áhættusamt út af fyrir sig að
eiga skuldabréf að þessari fjárhæð.
Mikilvægt sé að dregið verði úr
skuldabréfaáhættu á eignahlið fyrir-
tækisins.
Magma Orkuveita
Reykjavíkur eignaðist
skuldabréfið árið 2009.
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Breska ráðgjafarfyrirtækið Capital
Economics telur að skuldaniðurfell-
ingin, sem ríkisstjórnin kynnti í lok
nóvembermánaðar, muni hafa já-
kvæð áhrif á hagkerfið. Segir fyrir-
tækið jafnframt að skatturinn, sem
stjórnvöld hyggjast leggja á skuldir
þrotabúa föllnu bankanna, geti bætt
stöðu þjóðarbúsins og eflt tiltrú fjár-
festa á íslensku efnahagslífi.
Í greiningu fyrirtækisins, sem
Morgunblaðið hefur undir höndum,
segir að niðurfellingin muni bæta
fjárhagsstöðu heimila og auka einka-
neyslu. Þá spáir fyrirtækið um 3%
hagvexti hér á landi á næstu árum.
Ósammála Fitch
Í umfjöllun sinni um tillögur rík-
isstjórnarinnar benti matsfyrirtækið
Fitch á að fyrirhugaður skattur á
þrotabú föllnu bankanna gæti skað-
að viðhorf fjárfesta til íslensks við-
skiptaumhverfis. Í greiningu Capital
Economics er hins vegar bent á að
skatturinn geti hvatt erlenda kröfu-
hafa til að semja fyrr en áður um
uppgjör bankanna. Það geti styrkt
erlenda stöðu þjóðarbúsins og þar
með aukið tiltrú fjárfesta á Íslandi.
Ráðgjafarfyrirtækið bendir þó á
að aukin innlend eftirspurn geti sett
þrýsting á verðbólgu. Verðbólgan
mældist 3,7% í nóvember sem er
töluvert yfir 2,5% verðbólgumark-
miði Seðlabanka Íslands. Segir í
greiningunni að skuldaniðurfellingin
auki líkurnar á því að Seðlabankinn
grípi til vaxtahækkana á næsta ári,
sem myndu halda aftur af auknum
útgjöldum íslenskra heimila.
Í fyrradag benti matsfyrirtækið
Moody’s á að einkaneysla myndi
væntanlega aukast á næsta ári.
Morgunblaðið/Þorvaldur
Trú Capital Economics telur að að-
gerðirnar muni hafa jákvæð áhrif.
Gæti aukið tiltrú
fjárfesta á Íslandi
Capital Econo-
mics tjáir sig um
niðurfellinguna