Morgunblaðið - 18.12.2013, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nýtt ár vekur þér löngun til að betr-
umbæta heimili þitt. Taktu vini í neyð vel, því
bón hans er vel innan þess sem þú ert í fær-
um um.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er heillaráð að leggja á ráðin um
framtíðina. Sýndu þolinmæði og fylgdu þeim
eftir í rólegheitunum. Aðrir eru forvitnir og
reyna að finna veikan blett á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir
vilja vera nálægt þér. Himintunglin sýna fram
á að þú ert umkringd/ur fólki sem hægt er að
treysta og átt eftir að laða einn þeirra að þér
án fyrirhafnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að venja þig á að tala skýrt
og skorinort svo þeir sem hlusta á þig velkist
ekki í vafa um fyrirætlanir þínar. Gættu þess
bara að valda fólki ekki vonbrigðum við nán-
ari kynni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur ekkert að skammast þín fyrir
og getur því alveg horft stolt/ur framan í
heiminn. Veldu rétta augnablikið og vertu
vandlát/ur á það sem þú lætur fara frá þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðfangsefni í einkalífinu tekur á sig
mynd. Ef þú sýnir öðrum að þú viljir leggja
mikið á þig munu þeir fara að þínu dæmi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú setur markið hátt og nærð því. Og
reyndu að komast hjá þeirri hrikalegu leti að
láta aðstæður eða aðra ákveða líf þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn hentar vel til að taka á
leyndarmálum eða feimnismálum. Festa þín
gerir það að verkum að enginn reynir að and-
mæla þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu daginn til þess að gera
langtímaáætlanir í fjármálum. Svaraðu kall-
inu ef þú vilt en ef ekki þá vertu óhrædd/ur
við að segja það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekkert er eins bráðdrepandi fyrir
vináttuna og peningamál. Forðastu slíka
reynslu með því að gefa þér nægan tíma.
Hugsanlega á það vel við í ástum að setja úr-
slitakosti.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lausn verkefnis þíns liggur nær
þér en þig grunar í fljótu bragði. Láttu þig
dreyma! Ekki þykjast vita hvað fólk hugsar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Í dag er dagurinn sem þú átt að gefa
hjarta þitt allt í vináttu eða ástarsamband.
Vertu hvergi smeyk/ur, því þú ert með allt
þitt á hreinu.
Stolin krækiber“ er vísnasafn,sem út kom í lok september.
„Skopmyndaskreytt úrval vísna-
þátta úr Skessuhorni“ er undirtitill-
inn. En Dagbjartur Dagbjartsson,
bóndi í Hrísum í Flókadal, hefur um
tveggja áratuga skeið skrifað vísna-
þætti fyrst í héraðsfréttablaðið
Borgfirðing en 15 síðustu árin í
Skessuhorn og er bókin afrakstur
þeirrar vinnu. Bjarni Þór Bjarnason
á Akranesi hefur myndskreytt bók-
ina og gerir það ágætlega.
Höfundatal eða efnisyfirlit fylgir
ekki bókinni og er það galli, því að
fyrir bragðið er hún nær óbrúkleg
sem uppflettirit. En það breytir ekki
því, að okkur vísnavinum þykir
skemmtilegt að grípa niður í henni
og byrja ég á fyrst tveim vísunum:
Vísan stendur öld og ár,
oft er send til varnar.
Hún er að benda á bros og tár
bak við hendingarnar.
Þessi hringhenda er eftir Ásgrím
Kristinsson. Vísu fylgir sú athuga-
semd að menn geti velt fyrir sér
hvernig vísur eigi að velja í svona
bók og tæpast yrðu allir á eitt sáttir.
En sér finnist hæfa nokkuð vel þessi
mannlýsing Egils Jónassonar á
Húsavík:
Hlýtt og vandað, kalt og klúrt,
hvorugt grandar hinu.
Virðist blandað sætt og súrt
saman í andlitinu.
Ég greip niður á bls. 65: „Á fyrstu
árum atómljóðanna orti Bjarni frá
Gröf:
Ég elska þessi atómljóð sem enginn skilur.
Þau hvíla alveg í mér vitið
sem er að verða þreytt og slitið.
Margir hafa reynt sig á formi fer-
skeytlunnar með misjöfnum árangri
enda sagði Bjarni líka:
Vanalega verður hálf
vísan illa kveðin
ef hún kemur ekki sjálf
eins og hjartagleðin.“
Á bls. 109 er sagt, að Einar Bein-
teinsson hafi gert sér fullljóst, að allt
er breytingum undirorpið og ekki
verður allt á morgun eins og það er í
dag:
Lofn þó kveiki lostaflugur,
löngum sveik það vænan pilt,
þar sem reikull hefur hugur
holdi veiku að málum fylgt.
Og síðan kemur þessi vísa vest-
urheimska skáldsins Þorskabíts,
sem „hefur vafalaust séð það fullvel
eins og fleiri hvað mannanna láni er
misskipt og orti einhvern tíma þegar
honum þótti nóg um“:
Svíðingana sólgna metta
svitadropar fátæks manns,
ágirndin er engispretta
í akurlöndum kærleikans.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gripið niður í Stolin krækiber
Í klípu
„ÉG GET EKKI GERT VIÐ HANN,
HANN KITLAR SVO MIKIÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER Í ÞRIÐJA SKIPTI
SEM ÞÚ ERT SAMMÁLA HONUM!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... aðgerð sem getur
bjargað lífi.
BLÓÐBAN
KI
HARMONIKKAN
MÍN ER TÝND!
Ó NEI, EN
HRÆÐILEGT.
GETUR ÞÚ ÍMYNDAÐ
ÞÉR EITTHVAÐ
HRÆÐILEGRA EN
ÞAÐ, GRETTIR?
NEI, EKKI
NEITT
HRÆÐILEGRA.
HEEEY... !
ÞEGAR MAÐUR RÆÐST Á KASTALA
ER ALLTAF VERIÐ AÐ VARA MANN
VIÐ GRIMMUM HUNDUM ...
VARÚÐ!
EIGANDINN
BÍTUR
... EN ÞETTA ER
FÁRÁNLEGT!
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavík-ur, lagði til í ræðu á borgarstjórn-
arfundi í gær að enskukennsla yrði
efld á kostnað dönsku. „Við ættum að
hætta að kenna dönsku,“ sagði borg-
arstjóri. „Ég tel hana úrelta í ís-
lensku skólakerfi.“
x x x
Víkverji áttar sig á því að margraára dönskukennsla í íslenskum
skólum skilur ekki mikið eftir sig.
Dönskuslettur eru mikið til horfnar
úr málinu og tengslin kannski ekki
eins og áður var. Þó fara enn þús-
undir Íslendinga í nám til Danmerk-
ur og annarra norrænna ríkja og þá
kemur sér vel að hafa einhverja und-
irstöðu í dönsku, sem einnig nýtist í
Noregi og Svíþjóð.
x x x
Víkverji lærði sína dönsku knúinnbókmenntaþorsta. Á uppvaxt-
arárum hans voru blöðin um Andrés
önd á dönsku og var því ekki um ann-
að að ræða en að læra málið, eða
mæla göturnar fáfróður ella.
x x x
Þótt Víkverji þykist slarkfær ídönsku, geta bæði lesið hana sér
til gagns, skrifað og jafnvel talað,
strandar skilningurinn ævinlega á
hinu talaða máli. Þegar Danir tala
verður Víkverji annaðhvort að þykj-
ast skilja eða hvá við hvert orð.
x x x
Ríkissjónvarpið hefur undanfariðsýnt þáttaröð, sem heitir Brúin.
Þar starfa saman sænskir og danskir
lögreglumenn. Í þessum þáttum ríkir
alger veruleikafirring – ekki vegna
þess að sögufléttan sé langsótt, held-
ur vegna þess að persónur eru látnar
tala saman á móðurmáli sínu eins og
þær skilji hver aðra hikstalaust. Allir
sem til þekkja vita að það er útilokað.
x x x
Í norrænu samstarfi hafa menn tal-að sitt móðurmál. Það er sennilega
ástæðan fyrir því að norrænt sam-
starf hefur verið farsælt. Gera má
ráð fyrir því að menn skilji ekki þriðj-
ung þess sem sagt er og haldi því
frekar að sér höndum en að gera ein-
hverja fádæma vitleysu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Jólatúlípanar