Morgunblaðið - 18.12.2013, Side 41
MÚSÍK Í
LJÓSVAKA
Guðmundur Emilsson
ge244@simnet.is
Gáfumenni rita á sig göt um galdur
tónlistar – alveg frá Grikklandi til
forna. Misvitrir líka. Tuttugusta öld
er ekki ein um það: Hitler, Stalín og
Maó voru duglegir og höfðu á hrað-
bergi úrkynjaða list, gúlag og menn-
ingarbyltingu. En listagyðjurnar láta
illa að stjórn. Ráðherrann sagði
„klessuverk“. Hann er gleymdur,
ekki Kjarval.
Söngur 6.30 mín.
YouTube: William Byrd mass for three voi-
ces (Kyrie et Gloria) Collegium Musicum
Sancti Sebastiani Gameraniensis.
Marteinn Lúther, Hinrik VIII og
William Byrd áttu samleið 1483-1623.
Lúther sagði páfanum upp. Nú skal
syngja einraddaðar dægurflugur á
germönsku. Hinrik sá leik á borði og
sagði konum upp eða tók af lífi. El-
ísabet tók við. Byrd nennti ekki að
þjóna duttlungum svona hreppstjóra
og keypti sér eyðikot í heiðinni og
hélt áfram að semja kaþólska fjöl-
röddun: „Þú getur haft mig fyrir því
að frelsið er meira vert en lofthæðin í
bænum.“ Byrd var endurlífgaður á
tuttugustu öld. Ekki Hinrik.
Orgelleikur 1.07.01.
YouTube: Bach – Organ Works – DVD1.av
– Primera parte de Grandes Obras para
órgano de Johann Sebastian Bach, int-
erpretadas por Hans-André Stamm.
Johann Sebastian er kallaður fyrir
hreppstjóra Tómasarkirkjunnar í
Leipzig, sem þolir ekki krúsidúllur –
of flókið fyrir almenning – sér-
viskulegt! Gröf Bachs týndist. Hann
var endurlífgaður tæpri öld síðar.
Ekki hreppstjórinn.
Óperukór
12:41.
YouTube: Richard
Wagner – Tann-
häuser Richard
Wagner – The Pil-
grim’s chorus
Karl Sig-
hvatsson hreifst
af Wagner. RÚV bannaði það hljóðrit
– „líkt og djass og aðra úrkynjaða
negramúsík áður“ – sagði Jón Múli.
Kalli og Múli lifa. Hreppstjóri RÚV
er steingleymdur.
Af misvitrum
hreppstjórum
Í Sænautaseli. Frelsið
er meira vert en loft-
hæðin í bænum.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Glæpir taka á sig ýmsarmyndir og viðbrögðin viðþeim eru með marg-víslegum hætti. Í spennu-
sögunni Lygi tekur Yrsa Sigurð-
ardóttir fyrir glæpi og afleiðingar
þeirra með þeim hætti að hárin rísa
á okkur sem þau
hafa. Hinir fá
þau hugsanlega
aftur.
Fáum dettur í
hug að fjögurra
manna viðhalds-
hópur í Þrí-
drangavita eigi
eitthvað sameig-
inlegt með fjöl-
skyldu í Skerjafirði sem snýr til
baka frá Bandaríkjunum eftir
íbúðaskipti, hvað þá að þetta fólk
tengist lögreglukonu og eiginmanni
hennar í Reykjavík. Sögur ólíks
fólks sem ekkert virðist eiga saman
að sælda fléttast engu að síður í
Lygi Yrsu og úr verður hin besta
spennusaga.
Yrsu tekst vel upp í þessari sögu.
Efniviðurinn er pottþéttur og per-
sónusköpunin góð. Snemma í bók-
inni segir að öllum merkjum lyg-
arans sé skellt saman í einn graut
(bls. 91), en í sögunni er áberandi
hvað margir læðast eins og köttur í
kringum heitan graut. Yrsa lýsir vel
jafnréttisbaráttu kvenna innan lög-
reglunnar og því hvernig ráðandi
menn eru tilbúnir að setja lepp fyr-
ir augað til að rugga ekki bátnum.
Hún bregður líka á létta strengi í
annars óhugnanlegri sögu.
Sagan gerist á síðasta þriðjungi í
janúar á næsta ári. Nokkurn tíma
tekur að kynnast helstu persónum
en síðan fer allt á flug og ekki er
allt sem sýnist. Af augljósum
ástæðum, sem skýrast þó ekki fyrr
en undir það allra síðasta, datt rýni
helst í hug Hannibal Lecter með
aðra hönd á síðu í lokin.
Höfundurinn „Yrsu tekst vel upp í þessari sögu. Efniviðurinn er pottþéttur
og persónusköpunin góð,“ segir um nýja spennusögu Yrsu Sigurðardóttur.
Lygi bbbbn
Eftir Yrsu Sigurðardóttur. 323 bls.
Veröld 2013.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Veiðiferð í anda Hannibals Lecters
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
FROZENENSTAL2D KL.5:40-8-10:30
FROSINN ÍSLTAL2D KL.5:40-6
FROSINN ÍSLTAL3D KL.6
HOMEFRONT KL.5:40-8:20-10:40
HOMEFRONTVIP KL.5:40-8-10:20
MACHETEKILLS KL.10:30
DELIVERYMAN KL.8:20-10:40
THOR-DARKWORLD3DKL.8
ESCAPEPLAN KL.10:40 KRINGLUNNI
FROZEN ENSTAL2D KL. 8
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 5:40
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 5:40
FALLSTAFF ÓPERA KL. 18:00
HOMEFRONT KL.8-10
MACHETE KILLS KL. 10:20
THOR - DARKWORLD 2D KL. 10:20
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 3:20 - 5:40
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 3:20
HOMEFRONT KL. 3:20 - 5:45 - 8 - 10:15
DELIVERYMAN KL. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
ENDERS GAME KL. 5:30
THOR - DARKWORLD 2D KL. 8
MACHETE KILLS KL. 10:30
ESCAPE PLAN KL. 8 - 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
FROZEN ENSTAL2D KL.8
HOMEFRONT KL.8-10:20
HUNGERGAMES:CATCHINGFIRE KL.10:20
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
AKUREYRI
FROZEN ENSTAL2D KL. 5:40 - 8
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 5:40
HOMEFRONT KL. 8 - 10:20
MACHETE KILLS KL. 10:20
EMPIRE
TOTAL FILM
VAR BARA BYRJUNIN
CHRIS
HEMSWORTH
TOM
HIDDLESTON
FRÁBÆR
GAMANMYND
VARIETY
FAÐIR 533 BARNA.BARA VESEN!
GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYNDMEÐ JASON STATHAM
JÓLAMYNDIN Í ÁR
FRÁ ÞEIM SÖMUOG FÆRÐUOKKUR TANGLED OGWRECK-IT RALPH
BESTA TEIKNIMYNDDISNEY SÍÐAN LION KING
SÝND Í 2D OG 3DMEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
USA TODAY
LOS ANGELES TIMES
STATHAMDOESNT
DISAPPOINT
THE PLAYLIST
S.B. Fréttablaðið
★★★★★
T.V. Bíóvefurinn/Vikan
„ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ
FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA“
S.B. Fréttablaðið
12
L
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FROSINN 2D Sýnd kl. 5:45
HUNGER GAMES 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 9
Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is | opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga
SKÓR ERU
HANDGERÐIR
Í WALES