Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013 Bækur Guðmundar Páls Ólafs- sonar heitins setja svip sinn á bókaskápa um land allt og störf hans í þágu íslenskrar náttúru eru landsmönnum vel kunn. Í að- sendri grein sem birtist í Morgun- blaðinu skömmu eftir bankahrun, þann 17. október 2008, sagði Guð- mundur Páll að í hverju landi væru í raun tvö hagkerfi. „Annað snýr að mannlegum athöfnum og hér er það lamað vegna rangra ákvarðana og stefnuleysis. Hitt hagkerfið er náttúra landsins sem semur sín stef alla daga og býr yf- ir höfuðstóli sem ávaxtast, fái náttúran frið til þess. Hagkerfi náttúrunnar er margfalt mikil- vægara en hitt vegna þess að það er fjöregg mannkyns.“ Í blaðinu í dag er rætt við Blævi Guðmunds- dóttur og Leif Rögnvaldsson sem höfðu veg og vanda af því að ljúka hinsta ritverki Guðmundar Páls, stórvirkinu um vatnið. Með því er lagt enn eitt lóðið á vogarskál- arnar til eflingar því hagkerfi sem í raun skiptir mestu máli – hag- kerfi náttúrunnar. Með þeim verkum sem leiddu til sakfellingar í Al Thani-málinu sem dómar féllu um í vikunni kom enn ein staðfestingin á því að það hagkerfi sem snýr að mannlegum athöfnum er eins ófullkomið og mennirnir sjálfir. Bankaforstjórar fengu frið en höfuðstóllinn ávaxtaðist ekki. Friðinn til athafna nýttu þeir til markaðsmisnotkunar eins og nú hefur verið staðfest. Á sama tíma og hinir þungu dómar falla yfir bankamönnunum berast fregnir af flúormengun vegna álvera, hringdlandaháttar með náttúru- verndarlög og almennt minni áherslu á umhverfismál. Það er freistandi að vísa í orð Guð- mundar Páls Ólafssonar heitins og velta upp spurningunni: Hvað með að náttúran fái nú frið en ekki stjórnendur banka? RABBIÐ Hitt hagkerfið Eyrún Magnúsdóttir Þessar vel klæddu unglingsstelpur voru tilbúnar með fargjaldið sitt í vikunni þar sem þær biðu eftir strætisvagni í frostinu. Unga fólkið situr ekki auðum höndum þessa dagana. Í mörgum grunn- og framhaldsskólum landsins lauk prófum í vikunni auk þess sem aðventunni tilheyra kór- og hljóðfæratónleikar, jólasamkomur og ýmiss konar aðrar uppákomur. Desember er því mánuður þar sem unglingar landsins eru löglega afsakaðir og þurfa ekki að taka til í herberginu sínu enda eiga þau nóg með sitt. Þá tekur sinn tíma líka að bíða eftir strætó. julia@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Ómar BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ DESEMBER ER ANNASAMUR MÁNUÐUR, EKKI SÍÐUR HJÁ TÁNINGUNUM EN ÞEIM SEM FULLORÐNIR ERU. ÞAU ÞREYTA PRÓF, KLÁRA RITGERÐIR, SPILA Á JÓLATÓNLEIKUM OG BÍÐA EFTIR STRÆTÓ ÞESS Á MILLI. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Jólatónleikar Sinfóníuhjómsveitar Íslands. Hvar? Eldborgarsalur Hörpu. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 14 og 16. Nánar: Hátíðleg jólastemningin í Hörpu þar sem hefð er fyrir að áhorfendur syngi með undir lokin í Heims um ból. Jól og Sinfó Hvað? Ævintýrið um Augastein. Hvar? Tjarnarbíó. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl.15. Nánar: Drengurinn Augasteinn lendir í höndum jólasvein- anna en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn. Grýla og Augasteinn Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Uppistand Bill Burr. Hvar? Silfurberg Hörpu. Hvenær? Sunnudag kl. 20. Nánar: Bill Burr á að baki langan og farsælan feril í uppistandi. Hefur einnig leikið í fjölda kvikmynda og þátta, meðal annars í Breaking Bad. Hlátrasköll í Hörpu Hvað? Aðventu- tónleikar Karlakórs Reykjavíkur. Hvar? Hallgríms- kirkja. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl.17. Nánar: Í ár eru liðin 20 ár síðan Karla- kór Reykjavíkur hóf að syngja aðventu- og jólalög. Afmælisjólatónleikar Hvað? Jólagleði Brother Grass. Hvar? Café Rosenberg. Hvenær? Sunnudag kl. 21. Nánar: 12 frumsamin, notaleg og tíma- laus jólalög á notalegum stað í borginni. Tónlistargleði á aðventu Hvað? Orðahátíð. Hvar? Hátíðasalur Háskóla Íslands. Hvenær? Laugardag kl. 14. Nánar: Verðlaun veitt fyrir tillögur að fegursta orðinu. Pistlar um orðaleitina. Hátíð orðanna * Forsíðumyndina tók Golli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.