Morgunblaðið - 06.01.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.01.2014, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2014 ✝ Þorvarður Ell-ert Björnsson fæddist í Reykjavík 5. mars 1943. Hann lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. des- ember 2013. Foreldrar hans eru Inga Jóels- dóttir, húsmóðir, f. 24. apríl 1922 og Björn Guðjónsson, f. 11. nóvember 1921, d. 30. nóv- ember 2008. Systkini Þorvarðar eru Sigrún Björk, f. 21. desem- ber 1945, maki: Örlygur Sigurðs- son, Guðrún Gerður, f. 31. maí 1947, maki Þórður Eiríksson, f. 21. apríl 1941, d. 16. júní 2000, 11. desember 1991. Foreldrar Steingerðar eru Ágústa Anna Valdimarsdóttir, f. 19. desember 1931 og Steindór Guðmundsson, f. 19. september 1921, d. 10. nóv- ember 1993, lífsförunautur Ágústu Önnu er Guðmundur Guðnason. Systkini Steingerðar eru: Þórður Grétar, Hinrik Ingi, Sigurður Þórarinn, Þórir og Anna Brynhildur. Árið 1973 keypti Þorvarður verslun Silla og Valda að Há- teigsvegi 2 og gaf henni nafnið Háteigskjör og varð verslunin að litlu fyrirtæki fjölskyldunnar til ársins 2012. Þorvarður stundaði einnig hrognkelsaveiðar ásamt föður sínum frá unga aldri. Þor- varður var virkur félagi Knatt- spyrnufélags Þróttar sem leik- maður, þjálfari og dómari. Hann dæmdi einnig fjölmarga leiki sem alþjóðadómari. Útför Þorvarðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 6. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. sambýlismaður Guðrúnar Gerðar: Jóhann H. Þór- arinsson, Guðjón Jóel, f. 10. febrúar 1959, maki: Helena Þ. Karlsdóttir, Ás- geir, f. 25. mars 1960, maki: Kristín Jónsdóttir. Fyrri kona Þor- varðar var Hrafn- hildur Mar- inósdóttir, f. 18. október 1946, d. 6. maí 1986. Þorvarður kvæntist 27. apríl 1991 Steingerði Stein- dórsdóttur, f. 11. september 1962. Synir Þorvarðar og Stein- gerðar eru Atli Már, f. 30. sept- ember 1987 og Brynjar Smári, f. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl þú í friði, elsku eiginmað- ur og faðir. Steingerður, Atli Már og Brynjar Smári. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Enn erum við minntar á, hversu litlu við ráðum og að í lífsins bók er blöðunum ekki flett til baka. Hugurinn hvarflar til bernsk- unnar, í Fordson með mömmu og pabba. Eitt sinn á leið okkar suður í Leiru sátum við systkinin þrjú undir segli, það rigndi og Fordsoninn lak. Elli, eins og við systur kölluðum hann, var elstur og gætti systra sinna. Við vorum oft í Leirunni, elstu barnabörnin, en móðursystkinin fjögur bjuggu þá enn með afa og ömmu. Þegar heyjað var fengum við að sitja ofan á heyvagninum, sem hest- urinn Fífill dró. Hesturinn var „þarfasti þjónninn“ enda vélvæð- ing engin. Við lékum okkur í fjörunni eða uppi í heiði, þar sen við tíndum ber. Við fórum inn í Keflavík, þar sem Elli átti að kaupa eftir minnismiða, í búð Ingimundar og koma með vör- urnar heim í „græna léreftspok- anum“ enda fyrir tíma plastpok- anna. Hvað við vorum frjáls svona ung. Í bænum var það fótboltinn sem átti hug Ella allan. Hann byrjaði líka snemma að hjálpa pabba við hrognkelsaveiðarnar á vorin og var viðloðandi þær svo lengi sem þær voru stundaðar í vörinni við Ægisíðu. Við vorum vinamargir ung- lingar og heima á Ægisíðu var sem félagsmiðstöð fyrir alla fé- laga okkar. Um tíma vann Elli á milli- landaskipum og ekki var leiðin- legt að fá hann til að versla fyrir sig. Hann hóf svo verslunarstörf og lengst af rak hann verslunina Háteigskjör. Elli kvæntist Hrafnhildi sem lést 1986 eftir margra ára veikindi. Seinni kona hans er hún Steingerður og sam- an eiga þau synina Atla Má og Brynjar Smára. Þeim og móður okkar sendum við samúðarkveðjur með þeirri vissu að minning um góðan mann lifir. Sigrún Björk og Guðrún Gerður. Foringinn í systkinahópnum er fallinn. Baráttan, sem búin er að standa í nokkur ár, tapaðist. Þegar engin von er lengur í stöð- unni er gott að stríðinu ljúki. Þorvarður eða Elli, eins og við kölluðum hann, var stóri bróðir og fórst það hlutverk vel úr hendi. Til að byrja með voru orð hans lög og ekkert lýðræði til staðar. Með tímanum jafnaðist þó aldursmunurinn jafnt og þétt út og jafnræði gilti okkar á milli. Vinátta og traust var alltaf til staðar. Bróðir okkar ólst upp á Grímsstaðaholtinu á Bjarnastöð- um til að byrja með og síðar Æg- isíðunni í húsinu sem foreldrar okkar byggðu. Á vorin snerist lífið um sjósókn, aðgerð og sölu á rauðmaga og grásleppu. Alltaf var líf og fjör í vörinni. Íþróttir urðu snemma hluti af lífi Þorvarðar og Þróttur að sjálfsögðu félagið. Eftir að keppnisferlinum lauk tók dóm- gæslan við og varð hann einn af betri knattspyrnudómurum landsins. Kaupmennska varð ævistarfið og Háteigskjör fastur punktur í tilverunni um áratuga skeið. Við yngri bræðurnir byrjuðum fljótt að hjálpa til í búðinni og alltaf stóð vinna til boða á sumrin og með skóla. Gott var að finna fyrir því trausti sem okkur var sýnt. Segja má að einkalíf Ella bróður hafi skipst í fyrri og seinni hálfleik. Fyrri hlutinn byrjaði vel en snérist fljótt í bar- áttu upp á líf og dauða þegar Hrafnhildur, fyrri kona hans, veiktist alvarlega og háði langa og stranga baráttu sem tapaðist á endanum. En lífið hélt áfram og með seinni konu sinni, Steingerði, eignaðist Þorvarður tvo mynd- arlega og góða stráka, Atla Má og Brynjar Smára. Í hönd fóru góðir tímar og dýrmætar minn- ingar urðu til. Nú hefur leikurinn verið flaut- aður af hjá Þorvarði og það gerði æðsti dómari okkar allra, þegar staðan var töpuð og þjáningin orðin óbærileg. Við minnumst Ella alltaf sem góðs bróður sem okkur þykir vænt um og berum virðingu fyr- ir. Móðir okkar og við ásamt Kristínu og Helenu sendum Steingerði og strákunum samúð- arkveðjur á erfiðum tíma. Guðjón og Ásgeir. Ég minnist þín, kæri Þorvarð- ur, með þakklæti fyrir að fá að kynnast þér og eiga með þér ótalmargar samverustundir í gegnum árin. Ég eignaðist svo miklu meira en tengdason þegar þið Steingerður hófuð búskap. Fyrst í Stigahlíð og síðan í Funa- fold. Því þú varst líka svo góður vinur. Þú hjálpaðir mér ómet- anlega mikið þegar Steindór, tengdafaðir þinn, veiktist. Mér fannst ég rétt vera búin að leggja símtólið á þegar þú birtist við útidyrnar. Þú hafðir þá tekið sprettinn úr Stigahlíðinni til mín í Hörgshlíðina. Þú hefur örugg- lega sett met í spretthlaupi þetta kvöld þrátt fyrir að vera í fasta- svefni þegar símtalið barst. Þú gafst mér svo allan þann tíma sem ég þurfti á sjúkrahúsinu og veitti það mér mikinn stuðning. Við Guðmundur eigum svo eftir að ylja okkur á minningum um allar þær ferðir sem við fórum með ykkur fjölskyldunni því þær eru ótal margar og allar skemmtilegar að minnast. Aldrei brá skugga á okkar góðu vináttu á öllum þeim samverustundum sem við áttum saman. Blessuð sé minning þín, kæri tengdasonur og vinur. Ágústa Anna Valdimarsdóttir. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Nú er kær mágur og vinur lát- inn eftir erfið veikindi. Þorvarð- ur Ellert, eða Varði eins og hann var oftast kallaður, kom inn í fjölskylduna árið 1986. Fyrstu kynni af Varða voru þegar Stein- gerður systir mín kom með hann í fjölskylduútilegu og tókust strax með okkur góð kynni. Góð- legt fas hans og hlýlegt viðmót var einkenni hans og alltaf stutt í húmorinn. Í öllum fjölskylduboð- um og afmælum var hann mjög yfirvegaður og hafði góða nær- veru. Þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast honum og notið stunda með honum. Vottum Steingerði, Atla Má, Brynjari Smára og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Sofðu vinur vært og rótt verndi þig Drottinn góður. Dreymi þig vel á dimmri nótt dýrð þíns Jesú bróður. (Þorkell G. Sigurbjörnsson) Þórður og Vigdís. Vinur okkar, Þorvarður, er látinn eftir harða baráttu við sjúkdóm sem hafði að lokum yf- irhöndina. Kynni okkar hófust fyrir áratugum og fylgdumst við að í störfum fyrir Knattspyrnu- félagið Þrótt, Þorvarður í dóm- arastörfum en við í stjórnar- störfum. Varði, eins og við kölluðum hann, kynntist snemma Þrótti enda var hann uppalinn á gömlum slóðum fé- lagsins við Ægisíðuna. Áhuga- mál hans varð knattspyrna og lék hann upp alla yngri flokka fé- lagsins og síðar í meistaraflokki þar sem hann lék alls 105 leiki. Eftir knattspyrnuferilinn þjálf- aði hann hjá félaginu í nokkur ár, en fór fljótlega í dómarastörf í knattspyrnu og varð landsdóm- ari 1968 og síðan milliríkjadóm- ari 1977. Farsæll dómaraferill Varða spannaði áratugi og eftir það varð hann eftirlitsdómari hjá KSÍ í mörg ár. Varði var fastur gestur á heimaleikjum Þróttar og fylgdist vel með sínu félagi. Hann var sæmdur gullmerki Þróttar fyrir hans miklu störf og einnig gullmerki KSÍ. Ævistarf Varða var verslunar- stjórn og síðar verslunarrekstur í áratugi í hinni merku búð Há- teigskjöri á Háteigsvegi 1. Við félagarnir fórum í mörg ár til veiða í Straumum í Borgar- firði og fastur liður var að Varði kom með signa grásleppu, en hann veiddi grásleppu í marga áratugi með föður sínum og gerðu þeir út frá Ægisíðunni. Þá höfum við spilað brids ásamt Sölva Óskarssyni nú mörg und- anfarin ár, en Varði var góður bridsari og verður hans nú sárt saknað á þeim vettvangi. Þorvarður var tryggur vinur vina sinna og skemmtilegur í við- ræðum og ekki síst þegar rætt var um Liverpool, en hann var mikill poolari. Nú við leiðarlok þökkum við honum áratuga vin- áttu og samferð í gegnum lífið. Nú andar næturblær um bláa voga. Við bleikan himin daprar stjörnur loga. Og þar sem forðum vor í sefi söng nú svífur vetrarnóttin dimm og löng. (Tómas Guðmundsson) Við, ásamt eiginkonum okkar Dagnýju og Maríu, sendum Steingerði, Atla Má og Brynjari, móður hans Ingu og öðrum að- stendendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Tryggvi E. Geirsson, Guð- mundur Gaukur Vigfússon. Knattspyrnufélagið Þróttur var sannkallað stórveldi í dóm- gæslunni á árum áður. Það skil- aði hverjum dómaranum á fætur öðrum inn í knattspyrnuheiminn áratugum saman. Þar má m.a. nefna Bjarna Pálmarsson, Bald- ur Þórðarson, Halldór Back- mann Hafliðason, Hjálmar Bald- ursson og Gunnar Ingvarsson. Ennfremur má nefna sex heið- ursmenn úr frækinni sveit Þrótt- ara sem urðu alþjóðlegir dóm- arar fyrir Íslands hönd; þá Eystein B. Guðmundsson, Magn- ús Vigni Pétursson, Grétar Norðfjörð, Óla P. Olsen, Þorvarð Björnsson og Garðar Örn Hin- riksson. Þeir félagar fóru víða um heim sem slíkir og voru landi og þjóð til sóma. Þorvarður Björnsson hefur nú kvatt þessa jarðvist eftir lang- varandi og erfiða baráttu við krabbamein. Hann lagði allt sitt í þann slag en varð að játa sig sigraðan. Kallið kom rétt fyrir jólin. Við félagar Þorvarðar í dóm- arahópnum kölluðum hann stundumVarða harða á góðri stundu. Honum þótti vænt um það viðurnefni. Hann vissi jafn vel og við að gælunafnið var allt að því öfugmæli, því jafnlyndari og rólegri maður en Þorvarður var vandfundinn. Þegar dagblöð- in tóku upp á því að birta lista yf- ir spjaldagjöf dómara, þ.e. hvaða dómarar gáfu flestar áminningar og vísuðu leikmönnum af leik- velli, skipaði Varði undantekn- ingarlaust eitthvert botnsætanna á þeim lista – og var oftast í neðsta sæti! Staðreyndin er nefnilega sú að Varði gaf mönn- um sárasjaldan gult spjald í leik og enn sjaldnar það rauða. Einu sinni vorum við félagarnir að ræða atvik úr leik sem Varði dæmdi og vorum flestir á því að hann hefði átt að áminna tiltek- inn leikmann fyrir tiltekið brot. Varði sagði að það kynni vel að vera rétt hjá okkur en bætti við: „En ég er viss um að hann ætlaði ekki að gera þetta!“ Og þar er Varða rétt lýst. Hann var ró- lyndur innan og utan vallar og virti mönnum ævinlega allt til betri vegar. Kannski þess vegna þurfti hann sjaldnar að veifa spjöldunum en við hinir en hafði þrátt fyrir það fullt vald á að- stæðum. Við kveðjum góðan dreng með söknuði og virðingu. Fyrir hönd Knattspyrnusambands Íslands og félaga Þorvarðar í hópi knatt- spyrnudómara sendum við fjöl- skyldu hans og vinum hugheilar samúðarkveðjur. Bragi V. Bergmann, Gylfi Þór Orrason. Þorvarður vinur minn er lát- inn. Eftir þriggja ára baráttu vid erfiðan sjúkdóm. Hann neitaði að gefast upp allan veikindatím- ann en undir lokin vissi hann að komið var að leiðarlokum. Fyrstu kynni okkar voru þeg- ar ég fluttist í Vesturbæinn úr miðbænum og settist á skóla- bekk með honum í Gaggó Vest. Þar sátum við saman í öftustu röð í fjögur ár og náðum vel saman og urðum góðir vinir. Eftir skólaárin tók vinnan við og vináttan hélst áfram. Hann hóf störf í Egilskjöri og vann sig fljótt upp í stöðu verslunarstjóra. Seinna stunduðum vid milli- landasiglingar hjá Eimskipum, bæði saman og hvor á sínu skip- inu. Hann var afar vel liðinn, stundvís og góður verkmaður. Þá var komið að því að stofna fjölskyldu og konan hans, Hrafn- hildur, og konan mín urðu fljótt góðar vinkonur. Hrafnhildur lést langt um aldur fram úr erfiðum sjúkdómi og reyndist Varði henni stoð og stytta í veikind- unum og ferðum til Boston í leit að lækningum. Þá hafði hann keypt versl- unina Háteigskjör sem hann rak með seinni konu sinni og tveim sonum alveg þangað til veikindin urðu honum ofviða og þau seldu búðina. Hann var sannarlega kaupmaðurinn á horninu í tugi ára. Varði var Þróttari í húð og hár. Lék með öllum flokkum fé- lagsins í fótbolta. Síðan gerðist hann knattspyrnudómari sem varð til þess að ég fylgdi í fót- spor hans og urðu árin 25 sem við störfuðum saman. Hann varð fljótt alþjóðadómari og starfaði mikið á erlendri grund. Varði var Liverpool-maður alla tíð eftir að hafa dæmt á Anfield í Evrópu- keppni. Við fórum oft saman og bar aldrei skugga á samstarf okkar. Oft var gaman í litla kjalla- herberginu á Ægisíðunni og stundum lítið sofið áður en Bjössi bankaði á dyrnar um fimmleytið og á grásleppuna skyldi róið. Takk fyrir samveruna, kæri vinur. Innilegar samúðarkveðjur til þín, Steingerður, Atla Más, Brynjars, Ingu og systkina. Óli Pétur Olsen. Þorvarður Ellert Björnsson ✝ Ólafur Sig-urðsson fædd- ist í Reykjavík 24. maí 1932. Hann lést á Droplaug- arstöðum 22. des- ember 2013. Foreldrar hans voru Guðrún Sveinbjörg Árna- dóttir, f. 23.11. 1905, d. 29.1. 1999, og Sigurður Ólafs- son, kolakaupmaður, f. 12.1. 1901, d. 27.10. 1969. Ólafur giftist 9.4. 1954 Erlu Guðbjörgu Einarsdóttur, f. 16.6. 1933, d. 21.3. 2013. For- eldrar hennar voru Guðrún Jó- hanna Einarsdóttir, f. 5.12. 1904, d. 8.6. 1982, og Einar Oddur Kristjánsson, skipstjóri, f. 23.12. 1895, d. 29.6. 1941. Börn Erlu og Ólafs eru: 1) Guðrún Hanna, f. 14.6. 1955, giftist Ásmundi Jónssyni, f. 15.3. 1955. Þau skildu. Sonur Guðrúnar og Ás- mundar er Ólafur Örn, f. 25.10. 1976. Guðrún er gift Gunnari Jensen, f. 19.10. 1954. Börn þeirra eru: Sig- urður, f. 29.11. 1978, Gunnar Æg- ir, f. 8.4. 1982 og Svava, f. 5.9. 1985. 2) Einar Oddur, f. 14.5. 1959. 3) Sig- urður Óli, f. 1.6. 1968, kvæntur Björgu Harðardóttur, f. 29.4. 1968. Börn þeirra eru: Oddur, f. 21.11. 1990, og Elísabet, f. 5.9. 1994. Langafabörn Ólafs eru átta talsins. Ólafur stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands og síðar við verslunarháskóla á Eng- landi. Hann vann sem skrif- stofumaður í 50 ár hjá Ræsi hf. Útför Ólafs verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, 6. janúar 2013, og hefst klukkan 11. Elsku afi. Við sitjum hér aftur, aðeins níu mánuðum eftir að hafa skrifað minningarorð um ömmu Erlu, og minnumst nú þín. Það tók mikið á þig að missa ömmu. Hún hafði verið stoð þín og stytta í 60 ár og síðustu mán- uðir voru þér erfiðir. Það velur sér enginn fjöl- skyldu en við vorum ótrúlega heppin. Þér þótti óendanlega vænt um alla afkomendur þína – börn, barnabörn og barna- barnabörn. Þú varst mjög heimakær og lagðir mikið upp úr góðu heimili. Þegar við vor- um yngri fórum við með þér í langa bíltúra um helgar og oft fengum við að fá að gista hjá ykkur ömmu. Reglulega spurðir þú okkur hvort það væri eitt- hvað sem okkur vantaði og varst alltaf tilbúinn að hjálpa til. Bílar voru líf þitt og yndi. Starfsmaður Ræsis hf. í 50 ár og áttir rúmlega 130 bíla um ævina. Það var ekki sama hvaða bíl við keyptum þegar við höfð- um náð bílprófi. Bestir voru þýskir bílar en reglan var að alls ekki mátti kaupa franska bíla. Við fylgdum þeirri reglu. Þér fannst gaman að ferðast með ömmu á meðan þú hafðir heilsu til. Eftir að við fluttum til útlanda hélstu áfram að fylgjast vel með því sem við vorum að gera. Nokkrum sinn- um komuð þið að heimsækja okkur og þá var líf og fjör í húsinu og mikið dekrað við okk- ur barnabörnin. Elsku afi. Við munum alltaf sakna þín en erum jafnframt þakklát fyrir allar góðu minn- ingarnar sem við eigum frá tíma okkar saman. Þú varst okkur bæði fyrirmynd og vinur. Ást þín og umhyggja mun alltaf búa með okkur. Oddur og Elísabet. Ólafur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.