Morgunblaðið - 27.01.2014, Side 1
M Á N U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 22. tölublað 102. árgangur
FJÖLHÆF
LISTAKONA
Í ÚGANDA
FARANGUR
AF
MINNINGUM
SNYRTIVÖRUR
ÚR AUÐLINDUM
HAFSINS
NÝTT DANSVERK 34 HRÖNN MAGNÚSDÓTTIR 16ELÍNRÓS 10
Guðmundur Magnússon
Baldur Arnarson
Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum
fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur
frá síðustu kosningum samkvæmt
nýrri skoðanakönnun sem Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
gerði fyrir Morgunblaðið dagana 15.
til 22. janúar. Flokkurinn fær 25%
atkvæða og 4 borgarfulltrúa kjörna.
Hann fékk 33,6% atkvæða í kosning-
unum 2010 og 5 fulltrúa.
Meirihlutinn í borgarstjórn heldur
sínum 9 fulltrúum samkvæmt könn-
uninni. Þó verður tilfærsla á einum
fulltrúa á milli flokkanna sem hann
mynda Samfylkingunni í hag. Björt
framtíð, arftaki Besta flokksins,
mælist með 29,3% fylgi og fengi 5
fulltrúa kjörna. Samfylkingin mælist
með 21,8% fylgi og fengi 4 fulltrúa.
Píratar ná inn manni
Píratar njóta fylgis 10,5% kjós-
enda og ná inn einum manni í borg-
arstjórn. VG heldur sínum fulltrúa
með 8,2% fylgi. Framsóknarflokkur-
inn er úti í kuldanum með 2,8% fylgi
og engan fulltrúa.
S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar
framtíðar í Reykjavík, segir flokkinn
með byr í seglin. „Þetta er mjög
ánægjulegt. Við höfum fundið fyrir
jákvæðni í okkar garð þannig að
þetta kemur ekki á óvart.“
Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, segir barátt-
una að hefjast. „Viðbrögð mín eru
þau sömu og við fyrri könnunum, að
ég tel kannanir ekki segja alla sög-
una fyrr en heildarmyndin skýrist og
kosningabaráttan er komin af stað.“
MMeirihlutinn traustur »14-15
Sjálfstæðisflokkur með 25%
Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í Reykjavík Björt
framtíð stærsti flokkurinn Oddviti flokksins segir það ekki koma á óvart Meirihlutinn er traustur
Ellefta Evrópumóti karla í hand-
knattleik lauk í Danmörku í gær þar
sem Frakkar hömpuðu Evrópu-
meistaratitlinum í þriðja sinn. Danir
urðu í öðru sæti á mótinu, Spánverj-
ar í þriðja, Króatar í fjórða og Ís-
lendingar höfnuðu í fimmta sæti og
náðu þar með sínum þriðja besta ár-
angri á EM frá upphafi.
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur
Sigurðsson var valinn í úrvalslið
Evrópumótsins en Guðjón varð ann-
ar markahæsti leikmaður á mótinu
með 44 mörk.
Í gær var svo dregið í umspil fyrir
næsta stórmót í handknattleik sem
verður í Katar í janúar á næsta ári.
Segja má með sanni að Íslendingar
hafi dottið í lukkupottinn en Bosnía-
Hersegóvína verður andstæðingur
Íslands og fer fyrri leikurinn fram
ytra.
„Það er ákveðnu fargi létt af mér
við þessa niðurstöðu. Það er alveg
ljóst að við hefðum getað verið
óheppnari með andstæðing þótt
hann hefði vissulega líka getað verið
léttari,“ sagði Aron Kristjánsson
landsliðsþjálfari þegar Morgun-
blaðið spjallaði við hann skömmu
eftir dráttinn í Herning í Danmörku
í gær. gummih@mbl.is
» Íþróttir
Ísland heppið með andstæðing
Guðjón Valur valinn í úrvalslið Evrópumótsins og varð annar markahæstur
Guðjón Valur Í úrvalsliði EM.
Fyrirtækið Arctic Trucks hefur
komið að ýmsum vísinda- og ævin-
týraleiðöngrum á suðurskautinu og
undirbúa forsvarsmenn þess nú
frekari sókn í ríki ísfrerans.
Sú hindrun er hins vegar í vegi
frekari umsvifa að annaðhvort þarf
fyrirtækið að stofna félag í ríki sem
á aðild að Suðurskautssamningnum
eða að telja íslensk stjórnvöld á að
gerast aðili að samkomulaginu.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra segir kosti og galla
aðildar að Suðurskautssamn-
ingnum til skoðunar í utanríkis-
ráðuneytinu. Unnið sé að öflun
gagna um samninginn. »13
Sjá sóknarfæri
á suðurskautinu
Ísbreiða Frá suðurskautinu.
EPA
Magnús Geir
Þórðarson verð-
ur næsti útvarps-
stjóri. Stjórn
Ríkisútvarpsins
ákvað þetta sam-
hljóða á fundi
sínum í gær-
kvöldi og var
Magnúsi boðin
staðan í kjölfar-
ið. Magnús Geir
var áður leikhússtjóri Borgarleik-
hússins og var talinn hæfastur
þeirra 39 einstaklinga sem að sóttu
um stöðuna, en umsóknarfrestur
rann út þann 13. janúar sl. Magnús
Geir tekur við af Páli Magnússyni
sem sagði starfi sínu lausu þann 17.
desember sl. agf@mbl.is »2
Magnús Geir verður
næsti útvarpsstjóri
Magnús Geir
Þórðarson
Þessi stúlka var ein af mörgum börnum sem
lögðu leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
um helgina, en af svip hennar að dæma þótti
henni spennandi að gægjast inn fyrir hrossagirð-
inguna í garðinum.
Mikið líf er í garðinum á þessum tíma árs þrátt
fyrir að kalt sé í veðri, en flest dýrin halda sig þó
innandyra um þessar mundir þar til sólin lætur
sjá sig.
Morgunblaðið/Ómar
Lítil hnáta lítur á hrossin í Húsdýragarðinum
Dýrin í Húsdýragarðinum gleðja unga sem aldna
Fylgi flokka í borgarstjórn
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 15.-23. janúar 2014.
Björt framtíð 29,3%
Sjálfstæðisflokkurinn 25,0%
Samfylkingin 21,8%
Píratar 10,5%
Vinstri - grænir 8,2%
Framsóknarflokkurinn 2,8%
Aðrir 2,4%
29,3%
25,0%
21,8%
10,5%
8,2%
2,8%
2,4%