Morgunblaðið - 27.01.2014, Qupperneq 2
„Erlendir lána-
markaðir virðast
vera opnir.“
Yngvi Harðarson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Aðgengi íslenskra fyrirtækja að er-
lendu lánsfé hefur aukist með vaxandi
áhuga erlendra aðila á að lána fé til Ís-
lands.
Hagvöxtur í fyrra umfram vænt-
ingar, bætt afkoma af rekstri ríkis-
sjóðs og batamerki í atvinnulífinu,
einkum ferðaþjónustu, eiga þátt í
þessum umskiptum.
Þetta segir Yngvi Harðarson, hag-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Analytica, sem byggir þetta á sam-
tölum við erlenda bankamenn.
„Lánsféð er hins vegar ekki ódýrt
en það ræðst af lánshæfi ríkisins. Það
markar enda vaxtakjörin. Lánshæfi
ríkisins er nú BBB- en var þegar best
lét AAA. Nýlegar skuldabréfaútgáfur
Íslandsbanka og Arion banka sýna að
það er talsvert vaxtaálag hjá þessum
bönkum,“ segir Yngvi sem telur út-
gáfurnar batamerki.
„Pöntuð af kröfuhöfum“
Um miðjan mánuðinn sagði í frétt
Reuters að lánamarkaðir væru að
opnast fyrir evrulöndunum Írlandi,
Portúgal og Grikklandi, en þau hafa
öll glímt við skuldakreppu. „Ísland er
enn í frosti á alþjóðamörkuðum,“
sagði í fréttinni.
Yngvi telur þessa greiningu ranga.
Hún sé eins og „pöntuð af kröfuhöfum
bankanna“.
„Erlendir lánamarkaðir virðast
vera opnir, að minnsta kosti fyrir val-
in íslensk fyrirtæki. Ég byggi það
bæði á samtölum við erlenda banka-
menn og íslensk fyrirtæki. Ákveðinn
hópur er viljugur til þess að skoða Ís-
land. Það er ekki endilega sami hópur
og áður.
Erlendir banka eru hins vegar ekki
mikið á þeim buxunum að lána fé til
Íslands. Það er frekar að þeir hafi
milligöngu um fjármagn. Það hefur
þrengt að erlendum bönkum, bæði í
regluverki og eftirliti. Þeir hafa ekki
sama svigrúm til þess að lána út á eig-
in efnahagsreikning og áður. Reglu-
verkið hefur verið hert. Þeir hafa tap-
að fé á lánveitingum, eins og til
Grikklands. Efnahagsreikningur
bankanna hefur orðið fyrir áfalli. Út-
lánagetan er því ekki sú sama og áð-
ur. Erlendir bankar hafa því meira
farið í þann farveg en áður að miðla fé
frá fjárfestum til lántaka. Það á við
um Ísland.“
Vilja aftur lána fé til Íslands
Erlendir bankar miðla fé frá erlendum fjárfestum til valinna íslenskra fyrirtækja
Hagfræðingur segir þetta batamerki Hafnar umræðu um einangrun Íslands
Lánshæfið metið
» Lánshæfi erlendu matsfyrir-
tækjanna Fitch og Standard &
Poor’s er í þessari röð aftur að
BBB-: AAA, AA+, AA, AA-, A+,
A, A-, BBB+, BBB og loks BBB-.
» Lánshæfismatið vitnar um
hversu traustur lántakinn þykir
hjá fyrirtækjunum.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Inniheldurplöntustanólester
sem lækkar kólesteról
MEÐ
PLÖNTUSTANÓLESTER
Í NÆRINGU
EIN
AF
10
STÆ
RSTU UPPGÖTVUNUM
Kólesteról er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma
2 fylgja fríttmeð ms.is/benecol
Vel viðraði til útivistar á höfuðborgarsvæðinu í
gær og fjölmargir fóru út að ganga, skokka,
hlaupa og á skíði í Bláfjöllum. Á Seltjarnarnesi
rakst ljósmyndari blaðsins á þessa hressu fjöl-
skyldu sem var saman á skokkinu og hundurinn
fékk að fljóta með, enda hreyfingin holl.
Hreyfingin holl fyrir menn og dýr
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskylda saman úti að skokka á Seltjarnarnesi
„Það er ánægjulegt hversu margir öflugir og hæfileika-
ríkir einstaklingar sóttu um stöðu útvarpsstjóra. Það
ríkti eindrægni um niðurstöðuna í stjórninni enda var
það álit stjórnar að Magnús Geir uppfyllti best, af mörg-
um hæfum umsækjendum, þær hæfniskröfur sem settar
voru fram,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður
stjórnar RÚV, í tilkynningu sem send var fjölmiðlum á
tólfta tímanum í gærkvöldi um ráðningu Magnúsar Geirs
Þórðarsonar sem nýs útvarpsstjóra.
Magnús var talinn hæfastur 39 umsækjenda, en hann
var áður leikhússtjóri Borgarleikhússins. Að fenginni til-
lögu ráðgjafa Capacent voru 11 umsækjendur boðaðir í
viðtal, sem þóttu best uppfylla kröfur um reynslu af
stjórnun, rekstri og stefnumótunarvinnu. Í framhaldinu
þótti ljóst að sex þóttu best uppfylla hæfniskröfur. Í kjöl-
far viðtala við þá var hópurinn þrengdur niður í fjóra,
sem stjórn RÚV ohf. ræddi við í gær. Eftir þau viðtöl var
ákveðið samhljóða á stjórnarfundi í gærkvöldi að ráða
Magnús Geir. agf@mbl.is
„Það ríkti eindrægni um
niðurstöðuna í stjórninni“
Morgunblaðið/Golli
Útvarpsstjóri Magnús Geir Þórðarson var talinn hæf-
astur af 39 umsækjendum um stöðu útvarpsstjóra.
Stjórn RÚV ohf. réði
Magnús Geir Þórðarson
Kristján Þór Júl-
íusson heilbrigð-
isráðherra harm-
ar ákvörðun
stjórnar Slökkvi-
liðs höfuðborgar-
svæðisins, SHS,
um að slíta sam-
starfi um sjúkra-
flutninga sem
hann telur að hafi
verið farsælt og
hagstætt fyrir alla aðila. „Ég hef
alltaf sagst vera tilbúinn að semja
við slökkviliðið um raunkostnað
sjúkraflutninga á höfuðborgar-
svæðinu en samkvæmt mínum upp-
lýsingum eru fjárhæðir í samnings-
grundvelli slökkviliðsins hærri en
nemur raunverulegum kostnaði,“
segir Kristján og bendir á að þá sé
ríkið farið að greiða niður rekstur
slökkviliðs á höfuðborgarsvæðinu.
Kristján segist ítrekað hafa óskað
eftir viðræðum við SHS um nýjan
samning og nú síðast í bréfi sem
hann sendi stjórn slökkviliðsins en
þeir hafi aldrei léð máls á því.
Slökkviliðið lítur á samkomulags-
grundvöll frá því í fyrra sem gildan
samning. „Samkomulagsgrundvöll-
urinn sem gerður var í fyrra var
aldrei samþykktur sem samningur
af fyrrverandi ríkisstjórn enda eitt
af mínum fyrstu verkum sem ráð-
herra að óska eftir viðræðum við
SHS um gerð nýs samnings,“ segir
Kristján sem nú bíður svara frá
slökkviliðinu.
Rætt á Alþingi í dag
Staða sjúkraflutninga á höfuð-
borgarsvæðinu verður rædd á Al-
þingi í dag í sérstökum umræðum.
Málshefjandi er Árni Þór Sigurðs-
son, VG, og Kristján Þór verður til
andsvara. vilhjalmur@mbl.is
Tilbúinn að
greiða raun-
kostnað
Kristján Þór
Júlíusson
Ráðherra harmar
ákvörðun SHS
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fékk tilkynningu um miðjan dag í
gær um ölvaðan mann á hóteli í
borginni. Hafði hann vaðið þar inn,
náð sér í lykla að herbergi og læst
að sér. Lögreglumenn handtóku
manninn og vistuðu í fangaklefa á
meðan mál hans var skoðað.
Gærdagurinn var annasamur hjá
lögreglu, m.a. tilkynnt um innbrot,
eignaspjöll og rúðubrot í tveimur
skólum og innbrot í eina bifreið.
Tekinn á hóteli eftir
að hafa læst að sér